Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1968, Qupperneq 42

Frjáls verslun - 01.07.1968, Qupperneq 42
4- □ FRJALS VEHZLUN skemmri tíma, allt eftir þörfum hvers einstaks tryggingartaka. Á síðari árum hefir það mjög færzt í vöxt, að atvinnurekendur kaupi slysatryggingu fyrir á- kveðna starfsmenn sína, sem sinna ábyrgðarmiklum störfum innan fyrirtækjanna, eða störfum sem krefjast mikilla ferðalaga. Oft eru slíkar tryggingar bundnar við vinnutímann eingöngu, eða inni- fela einnig ferð milli vinnustaðar og heimilis. Með slíkri tryggingu nýtur hinn tryggði ekki trygging- arverndar í frítíma sínum, en get- ur sjálfur bætt þar um með þvi að kaupa sérstaka frítímatrygg- ingu, sem er mjög ódýr, svo fremi hann stundi ekki einhverja tóm- stundaiðju, sem telja verður mjög áhættusama, svo sem flug, köfun, bjargsig, eða keppni í áhættusöm- um íþróttagreinum, svo nokkuð sé nefnt. Nokkur stéttarfélög hafa í frjáls- um samningum við viðsemjendur sína komið fram kröfu um slysa- tryggingu fyrir félaga sína, og má þar nefna verkfræðinga, flug- menn. verkstjóra, fiskimenn og farmenn einnig sölumenn í verzl- unarstétt og iðnverkafólk Mjög er mismunandi hvernig tryggingarvernd þessara starfs- hópa þjóðfélagsins er háttað, enda hlýtur ætíð svo að verða. Hóparn- ir leggja mismunandi áherzlu á þá þætti. sem slysatryggingin býður, og i frjálsum samningum verður einnig að hafa í huga, að ekki ná allar kröfur fram að ganga. Sá misskilningur virðist mjög ríkjandi, að slysatryggingaþáttur almannatrygginganna sé nægileg tryggingarvernd fyrir einstakling- inn, en því fer víðs fjarri. Slysa- bætur þaðan eru ætíð mjög tak- markaðar og auk þess miðaðar við þjóðfélagslegar aðstæður manna, þannig að bæturnar geta aldrei orðið nema lítil hjálp. Er því full ástæða til þess að hvetja lands- menn almennt til að kynna sér þá tryggingarvernd, sem þeir njóta nú þegar, og auka síðan sjálf- ir tryggingu sína samkvæmt persónulegum þörfum. Sjóvátrygg- ingarfélag íslands h.f. hefur um- boðsmenn um allt land og eru þeir reiðubúnir til að hjálpa hverjum og einum til að fá þá tryggingar- vernd, sem þeim hentar. Með auknum ferðalögum til út- landa hafa stutttíma ferðaslysa- tryggingar stóraukizt, enda er ið- gjöldum mjög stillt í hóf og hafa þau reyndar stórlækkað á síðari árum. Þetta á sér tvennar ástæð- ur, aukið og vaxandi öryggi í sam- göngum og hinn mikli fjöldi fólks, sem tryggir sig í slíkum ferðum. Sömu bótaflokkar eru í boði og fyrir frjálsa slysatryggingu og al- gengast er að menn kaupi sér fulla tryggingarvernd, þ. e. að auk dauða- og örorkutryggingarinnar eru dagpeningar tryggðir, ef um tímabundinn starfsorkumissi verð- ur að ræða. Iðgjald, sem einstakl- ingur greiðir fyrir 20 daga ferða- slysatryggingu, að fjárhæð kr. 1.000.000,00 við dauða eða allt að 100% varanalega örorku, og alit að kr. 5.000,00 á viku vegna tíma- bundins starfsorkumissis, er að- eins krónur 630,00. Upphæðirnar má takmarka eft- ir vilja hvers og eins. Vegna hins lága iðgjalds og þess öryggis, sem tryggingin veitir, ætti enginn að leggja upp í ferðalag ótryggður. í stuttri tímaritsgrein sem þess- ari er ekki mögulegt að gera þessu efni nein tæmandi skil, heldur er aðeins hægt að draga fram nokk- ur atriði lesandanum til umhugs- unar. Siysin gera ekki boð á und- an sér og menn skyldu varast að treysta um of á hugtökin öx-yggi og tækni, hvorugt greiðir bætur ef slys ber að höndum. Hver er sjálfum sér næstur og verður að tryggja efnahagslegt öryggi sitt og sinna, beri ógæfuna að garði. Einn þátturinn í slíkri forsjálni er að kaupa sér slysatryggingu. Sjóvátryggingarfélag fslands h.f., ber í dag þessa áhættu fyrir þús- undir manna. Það hefði einnig ánægju af að sjá yður fyrir þess- ari nauðsynlegu tryggingarvernd.

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.