Frjáls verslun - 01.05.1969, Síða 67
frjals verzlun
59
um 5000,00 íslenzkar krónur í er-
lendan gjaldeyri til þess að hafa
fyrir ýmsum útgjöldum. Ferðalag
á sólarströnd Spánar getur tæp-
ast orðið verzlunarferð eins og
þær, sem íslenzkir ferðamenn hafa
orðið frægir fyrir síðustu ár. Hir.s
vegar er mikið úrval af ódýrum
leðurvörum á mörkuðum eða í
verzlunum þar ytra, sömuleiðis
handunnir dúkar og ýmis útskurð-
ur, sem seldur er við hlægilega
lágu verði.
EINSTAKLÍNGSFERÐIR
Þeir, sem vilja ferðast algjör-
lega upp á eigin spýtur, geta nú
notið hinna nýju sérfargjalda til
Spánar og Portúgals, sem til sölu
verða á timabilinu frá 1. apríl til
31. október, til eftirfarandi staða:
Barcelona, verð farseðils kr. 16,-
630,00, Farao í Portúgal, kr. 18,-
903,00, Lissabonn, kr. 18.639,00,
Malaga, kr. 19.834,00 og Palma á
Mallorka kr. 17.434,00. f öllum til-
vikum er söluskattur 884,00 krón-
ur, þ. e. a. s. þá er miðað við, að
flogið sé um London.
Reglur urn þessi fargjöld eru
þær, að viðdvöl á leiðinni út er ó-
heimil og aðeins ein viðdvöl hsim-
il á heimleiðinni. Frá 16. júní til
30. september má aðeins ferðast
á þessum fargjöldum á mánudög-
um og þriðjudögum.
Hótelgisting og matur reiknast
um 500 pesetar á dag. Fyrir 15
daga dvöl á Spáni má því reikna
með, að útgjöld vegna dvalar þar
verði tæpar 9.000,00 krónur á
mann.
Verðlag í Portúgal er mjög svip-
að og á Spáni.
með sunnu til mallorca
Mallorca er stærst Spánareyja
í Miðjarðarhafinu, skammt undan
strönd Spánar, í Valenciaflóanum.
Talsvert á aðra öld hefur eyjan
verið eftirsóttur áfangastaður
ferðafólks, sakir töfrandi náttúru-
fegurðar og hins hlýja góða lofts-
lags, sem mörgum reynist allra
meina bót. Á nítjándu öld var
Mallorca fyrst og fremst eftirsótt-
ur vetrardvalarstaður. Það var
áður en það komst í tízku að liggja
við sjóböð á sjávarsandi og öðlast
brúnan lit sólbrunans. Með til-
komu aukinnar flugtækni, fljótari
og hraðari samgangna, hefur Mall-
orca orðið einn eftirsóttasti ferða-
mannastaður í Evrópu því þar er
sjórinn, sólskinið og skemmtana-
lífið eins og flestir vilja hafa það.
Ferðaskrifsto'fan Sunna hefur
undanfarin fjögur ár gefið íslenzk-
um ferðamönnum kost á furðu-
ódýrum ferðum til Mallorca, á-
sarnt uppihaldi á góðum hótelum
þar. Á þessu ári verða Mallorca
ferðir Sunnu tiltölulega ódýrari
en nokkru sinni fyrr, þrátt fyrir
gengisfellingu.
FLOGIÐ BEINT
Þetta ótrúlega lága verð er
mögulegt vegna hagkvæmrar sam-
vinnu Sunnu um leiguflug með
íslenzkum millilandaflugvélum
frá íslandi beint til Mallorca, og
samninga, sem Sunna hefur gert
mikið landslag og margt fagurt og
skemmtilegt að sjá. Þar eru marg-
ar fagrar og sögulegar byggingar,
300 km strandlengja, listaháskóli
og almennur háskóli, leikhús og
sinfóníuhljómleikar, málaraskóli
og listamannanýlenda og einn
stærsti nautaatshringur á Spáni,
sem rúmar 18000 áhorfendur.
22 FERÐIR
í ár hefur Sunna auglýst 22
hópferðir til Mallorca og í flest-
um þeirra verður höfð 2ja daga
viðdvöl í Lundúnum á heimleið.
Meðan dvalizt er á Mallorca og
í Lundúnum er ferðatilhögun
frjáls, en starfsfólk Sunnu á Mall-
orca skipuleggur ferðir og leið-
beinir um það, sem fólk vill fá að
Forstjórar stærstu ferðaskrifstofanna hér á landi, Guðni Þorðaxson,
Suainu og Engólfur Guðbrandsson, Utsýn. Þeir hafa byggt upp öfluga
starfsemi, sem gerir íslendingum kleyft að ferðast á öruggan þægi-
legan og ódýran ihátt.
við góð hótel á eftirsóknsrverð-
um stöðum á Mallorca til margra
ára. Flogið er beint til Mallorca
og lent þar eftir fjögurra til sjö
stunda flug frá íslandi. Á Mall-
orca er síðan dvalizt í tvær vik-
ur á hóteli því. sem farþegar velja
sér. Hægt er að velja um hótel eða
íbúðir í höfuðborginni Palma eða
við stærstu baðströnd landsins,
um tíu mínútna akstur frá mið-
borginni. Öll herbergi hafa bað
og sólsvalir og sundlaug er fyrir
gestina.
Á Mallorca er fjölbreytt og glað-
vært skemmtanalíf, og tilkomu-
vita. Enda þótt tilhögun sé alveg
frjáls, eins og fyrr segir, er boðið
upp á skemmti- og skoðunarferð-
ir, sem starfsfólk Sunnu á Mall-
orca skipuleggur og undirbýr.
Ferðaskrifstofan hefur bíla til um-
ráða fyrir farþega sína; hún tek-
ur ekki þátt í ferðum með almenn-
ingsbílum.
MARGT AÐ SJÁ
Mallorca er stórt land, um 3.600
km að flatarmáli, nærri 100 km
frá austri til vesturs. Skiptast á
gróðursælar sléttur, skógivaxnar
fjallshlíðar og berir tindar. sem