Frjáls verslun - 01.05.1969, Side 71
FRJÁLS VERZLUN
63
í perlubænum Malakor, þar sem
fólki gefst kostur á að kaupa
hringa og festar og aðra skraut-
muni með hinum víðfrægu Mall-
orca-perlum.
Auk þessara ferða um Mallorca,
annast Sunna skipulagningu eins
dags ferðar með flugvél til norður-
strandar Afríku. Flogið er frá
Palma snemma morguns suður til
Afríku og eftir 75 mín. flug er
lent á flugvellinum í Algeirborg,
og deginum varið til að skoða sig
um í Alsír. Komið er aftur til
Palma um kvöldið.
ÝMSIR VERÐFLOKKAR
Mallorcaferð með Sunnu kostar
á tímabilinu júní til september-
loka frá 16.900 krónum og upp í
27.850 krónur fyrir hvern farþega,
ef dvalizt er á hótelum. Þá er inni-
falið í verði ferðarinnar: flugfar-
gjald, ferðir á milli flugvalla og
hótela, gisting og þrjár máltíðir.
Velji farþegarinar hins vegar
þann kostinn að búa í séríbúðum,
er verð ferðarinnar á þessu sama
tímabili 13.600 krónur eða 14.200
krónur; fer það eftir því, hvort
fjórir farþegar eða tveir eru um
hverja íbúð. Matur er ekki inni-
falinn í þessu verði. Reikna má
með því, að tvær máltíðir kosti
um 160 krónur íslenzkar, og er
hægt að kaupa matarmiða fyrir ís-
lenzka peninga, áður en ferð er
hafin. í tveim ferðum, sem Sunna
hefur auglýst í október, er verð
með gistingu á hóteli frá 14.900
krónum upp í 24.900 krónur, en
með gistingu í íbúðum 11.800 eða
13.600 krónur. Fullt fæði er inni-
falið, ef farþegar búa á hótelum,
en ekki, ef þeir velja íbúðirnar.
Þeir, sem koma við í Lundún-
um á heimleið, dveljast á Regent
Palace hótelinu. Verða farþegar
að greiða 2.000 króna aukagjald
vegna viðkomunnar í Lundúnum.
í auglýstu verði Sunnu á Mall-
orca er ekki innifalið: Skemmtan-
ir, vín og gosdrykkir, skemmti- og
skoðunarferðir, svo og söluskatt-
ur og flugvallargjald, sem eru alls
samtals 940 krónur á farþega og
gildir það um allar ferðir, sama
hvert hótelið er. Skoðunarferðir
má hins vegar greiða í íslenzkum
peningum og greiðast mánuði eft-
ir heimkomu.
AFSLÁTTUR VEITTUR
Afsláttur er veittur fyrir börn
í Sunnuferðum: Barn innan
tveggja ára fær frítt far. Hins
vegar greiða foreldrar hótelinu
beint, krefjist það einhverrar
greiðslu fyrir barnið. Börnum 2ja
til 7 ára er veittur 25% afsláttur.
Hjón, sem dveljast í íbúðum, fá
25% fjölskylduafslátt fyrir börn
sín, er með þeim ferðast, eldri en
2ja ára, án tillits til aldurs. Engr-
ar greiðslu er krafizt fyrir börn
innan 2ja ára aldurs.
Þá er og veittur hópferðaafslátt-
ur félagasamtaka og starfsmanna,
5% ef tíu til 15 manns taka sig
saman, en ef 15 manns eða fleiri
eru í hópnum reiknast afsláttur-
inn 10%.
MÖRG HÓTEL OG ÍBÚÐIR
Alls geta Sunnu-farþegar valið
milli átta hótela á Mallorca og er
verðlag á þeim allbreytilegt, en
þau eru ýmist í lúxus gæðaflokki,
fyrsta flokki eða í öðrum flokki.
Flest herbergin eru með baði, —
við þau eru stórar svalir, sundlaug
í garði hótelsins og örskammt út
á baðströndina. Þeir, sem óska að
njóta Mallorcadvalarinnar út af
fyrir sig, geta valið nýtízku einka-
íbúðir, sem eru 2 eða 3 herbergi
og eldhús, bað, forstofa og sólar-
svalir meðfram allri íbúðinni. í-
búðirnar eru í nýju sambýlishúsi
við eitt af hótelunum, sem Sunna
verzlar mikið við. Þar er útsýni
fagurt til fjalla og út yfir höfn-
ina og hafið. íbúðirnar eru búnar
fallegum spönskum húsgögnum og
nauðsynlegasta eldhúsútbúnaði,
svo og ísskáp. Þær eru taldar sér-
lega heppilegar fyrir fjölskyldur.
Ferðaskrifstofan Sunna hefur opn-
að skrifstofu í Palma á Mallorca,
og eru fararstjórar Sunnu ávallt
reiðubúnir til aðstoðar og koma
til viðtals á hótelin einu sinni á
dag, auk þess, sem þeir hafa við-
talstíma í síma á ákveðnum tíma.
FERÐIR FRÁ MALLORCA
Á þessu ári tekur Sunna upp
þá nýbreytni að bjóða upp á ferð-
ir til annarra staða á Spáni, Afr-
íku, Ítalíu og Frakklandi, frá Mall-
orca. Þá er notazt við ódýra leigu-
flugið beint til Palma, sem er mið-
svæðis, og þaðan stutt flug til ann-
arra áfangastaða. svo sem Torre-
molinos, Valencia, Nizza og Alsír.
Tíðar flugferðir eru daglega frá
Palma og gera slík framhaldsferða-
lög auðveld og ódýr og fararstjór-
ar frá skrifstofu Sunnu í Palma
eru oft til leiðsagnar í slíkum ferð-
um. Þannig er hægt að velja um
2 vikur af öllu annars staðar en
á Mallorca, eða viku á Mallorca
og viku á völdum stað eða
á skemmtiferðaskipi á Miðjarðar-
hafi.
VEITINGAR
VIÐ
ALLRA
HÆFI.
Opið frá kl. 0.700,
til kl. 23.30.
SMÁRAKAFFI,
Laugavegi 178,
sími 34780.