Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1969, Page 44

Frjáls verslun - 01.08.1969, Page 44
44 FRJÁLS VERZLUN AUMUR REKSTUR Rootes var áður fyrst og fremst fjölskyldufyrirtæki. Stofnendur þess, bræðurnir William og Regi- nald Rootes, voru eigendur 51% Peter Sellers í verkfallsham í kvikmyndinni, „Allt í lagi Jack“, fara verkamennirnir í verkfall í mótmælaskyni við dugnað eins fé- laga þeirra. Chrysler fékk að finna fyrir álíka hugsunarhætti. af hlutafénu. Fyrirtækið fram- leiddi nokkrar ágætar bifreiða- gerðir, til að mynda Hillman Minx, Hunter, auk Sunbeam og Humber. En salan var ekki í hlut- falli við gæðin. Hún var aðeins 200 þúsund bifreiðar á ári, og þar með innifalinn útflutningur. Fyrirtækið átti bílaverksmiðj- ur, sem dreifðar voru um gjör- vallt Bretland. En sá var galli á gjöf Njarðar, að verksmiðjurnar voru ekki aðeins komnar til ára sinna og úreltar, heldur voru þær, sem framleiddu vinsælustu gerð- irnar, allt of litlar og dreifðar til að anna eftirspurn. Rootes-fjölskyldan var ekki svo skyni skroppin, að hún skildi ekki nauðsyn endurnýjunar. Hún ákvað að reisa nýjar samsetningarstöðv- ar. En þá kom ríkisstjórnin til skjalanna. Það hefur löngum ver- ið stefna hennar að þvinga brezk fyrirtæki til að reisa nýjar verk- smiðjur á kreppusvæðum. Þann- ig skyldi atvinna aukin í þessum héruðum, hvað sem liði legu þeirra og óhagstæðum aðstæðum. í anda „jafnvægisstefnunnat“ neyddi ríkisstjórnin Rootes til að reisa nýju verksmiðjurnar í Skot- landi. Ráðstöfunin verkaði eins og að hella oliu á eld. Vandi fyrir- tækisins stafaði ekki sízt af pví, hversu gömlu verksmiðjurnar stóðu dreift. Á þennan vanda var nú aukið stórum með Skotlands- verksmiðjunum. Ofan á bættist svo það, að bifreiðagerðin, sem verksmiðjan átti að framleiða, Hillman. Imp, reyndist ekki sá métsölubíll, er Rootes hafði von- að. Imp-gerðin naut aldrei vin- sælda að ráði. Þegar verksmiðjan í Skotlandi hafði verið reist, festi Rootes kaup á stáliðjuveri í nágrenninu. Þar voru yfirbyggingar mótaðar, og var þetta fyrsta yfirbyggingar- smiðja í eigu Rootes. Var henni einungis ætlað að framleiða yfir- byggingar fyrir Hillman Imp. Hvað varðaði miðlungsdýrar gerð- ir, var Rootes eftir sem áður und- ir keppinauti sínum British Mct- or Corp. Sama gilti um vörubif- reiðar. En illa skipulögð framleiðsla var ekki eini dragbíturinn. Öll stjórn Rootes-fjölskyldunnar á fyr- irtækinu var í megnustu óreiðu. Þótt ársframleiðslan væri aðeins 200 þúsund bifreiðar, var Rootes skipt niður í 30 sjálfstæð fyrir- tæki. Fyrirtækjamergðin gerði það að verkum, að vinnsluvirðið á hvern verkamann nam aðeins rúrnum 16 þús. Bandaríkjadala. Hjá Ford-verksmiðjunum var þessi tala helmingi hærri. Hin litla nýt- ing leiddi til hærra verðlags, þann- ig að bifreiðar Rootes voru mun dýrari en keppinautanna. ÓREIÐA í Rootes-verksmiðjunum fyrir- fannst ekkert það, sem minnti á nútíma bókhalds- og fjármála- kerfi. Sumar verksmiðjurnar töp- uðu fé, aðrar græddu. En stjóin fyrirtækisins gat með engu móli gert sér grein fyrir, hver afkoma einstakra verksmiðja var, slík »'ar óreiðan. Einn af bókhöldurunum, sem Chrysler gerði út af örkinni, til að koma reglu á fjármálin, sagði eftirfarandi um ástandið: „Fjár- málavit Rootes-fjölskyldunnar náði aldrei lengra en að fylgjast með því, sem inn kom af peni.ng- um. Rootes-fólkið var þess þó mætavel meðvitandi, að í heiid starfaði fyrirtækið með tapi. Það hafði ekki minnstu hugmynd um, Sendiferðabílar frá Rootes hafa verið fluttir inn hér á laiuli.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.