Frjáls verslun - 01.06.1970, Síða 6
4
FRJALS VERZLUN
*ENNÞÁ drýgra"
OG BRAGÐMEIRA
BREYTT
ÚTLIT
KAFFI
Við höfum ekki aðeins breytt útliti kaffipakkans
heldur einnig mölun kaffisins.
Ó. Johnson og Kaaber kaffið er nú fínmalaðra og
drýgra. Þannig viljum við tryggja húsmóðurinni
enn betra kaffi.
NÝ KVÖRN + NÝR POKI = BETRA OG DRÝGRA
RÍÓ KAFFI:
O.JOHNSON
.»» & KA&BER HF. 4
Lesendabréf
ORÐ I BELG
Hvað gerist nú?
Nú eru allir ánægðir. Vinnu-
deilurnar eru úr sögunni í bili
og aftur kominn vinnufriður.
En hætt er við að ekki sé sopið
kálið, þótt í ausuna sé komið.
Verkföllin stöðvuðu atvinnu-
lífið víðast um land í byrjun
hábjargræðistímans. Atvinnu-
fyrirtækin töpuðu stórfé, laun-
þegar töpuðu stórfé, þjóðarbúið
tapaði stórfé, og þó er enn eftir
að koma fram mikið tap, t. d.
á sviði ferðamála og flutninga-
starfsemi okkar íslendinga á
alþjóðavettvangi. Það sem laun-
þegar græddu, nægir ekki til
þess að bæta þeim tjón þeirra
af verkföllunum fyrr en eftir
langan tíma, en vísitölusamn-
ingurinn mun þó koma í veg
fyrir, að þær bætur verði að
nokkru. Annað tjón verður ekki
bætt. Hvers konar hringavit-
leysa er þetta eiginlega? Er
ekki kominn tími til að við ís-
lendingar förum að semja okk-
ur að siðmenningu á sviði
kjaramála? Ekkert eitt atriði
er vænlegra til framfara með
þjóðinni á sviði efnahagsmála.
Og hvers vegna er þá pólitízk-
um spilagosum látið haldast
uppi að ala á siðleysinu?
Það er mál allra sem til
þekkja og ekki eru blindaðir af
póltík, að kjarasamningar að
þessu sinni hefðu ekki orðið
neitt vandamál, ef að þeim hefði
verið staðið af heilindum, sem
kj arasamningum og með þjóð-
arhag í huga. Að vísu virðist
hafa gengið furðu hægt, að
koma á skipulegri rannsóknar-
starfsemi af hálfu aðila að
vinnumarkaðnum, varðandi af-
komu atvinnuveganna, greiðslu-
þol þeirra og kjör launþega.
Engu að síður lágu þó fyrir þær
meginstaðreyndir, sem kjara-
samningarnir ultu á, þegar
snemma á árinu, en ekkert var
gert fyrr en á síðasta augna-
bliki og þá með yfirgangsað-
gerðum, sem engu tali tóku, •—
en þá voru kosningarnar fram-
undan. Siðleysi af þessu tagi,