Frjáls verslun - 01.06.1970, Side 24
22
F.V.: Þær raddir heyrast oft
að miklum og dýrmætum tíma
sé sóað í biðstofum bankastjór-
anna. Er einhver hagræðing í
því efni til?
S.H.: Ýmsar leiðir geta kom-
ið til greina til þess að spara
mönnum þrásetur í biðstofum
bankanna og hefur sitt hvað
verið reynt, sumt gefizt vel og
annað miður. Niðurstaða okkar
er sú, að þrátt fyrir allt sé nú-
verandi fyrirkomulag í aðalatr-
iðum heppilegast bæði fyrir
bankann og viðskiptamanninn,
a.m.k. í flestum tilfellum. Við
teljum mikils virði að hafa
heildaryfirsýn yfir sem flesta
viðskiptaaðila og fá tækifæri
til að ræða við þ‘á sjálfa eða
umboðsmenn þeirra, fá af
þeirra vörum nauðsynlegar
upplýsingar um hagi þeirra og
tilgang. Tvö tilfelli eru aldrei
eins. Á okkar landi, þar sem
eftirspurn er meiri en framboð
á lánsfé, er nauðsynlegra en
ella að meta fýsilei-k og þörf
lánveitinga hverju sinni. Ef
jafnvægi væri eða framboð
meira en eftirspurn þyrfti þessa
A ISAFIRÐI
SELJUM
HRAÐFRFRYSTAN FISK
OG SKREIÐ,
BEITU OG ÍS.
ÍSH ÚSFÉLAG
ÍSFIRÐINGA H.F.
ÍSAFIRÐI SÍMI 3351.
e.t.v. ekki með og nægilegt að
leggja fram fullnægjandi trygg-
ingu fyrir láni og gengju þá
allar minni háttar lánveitingar
næstum sjálfkrafa fyrir sig.
MEÐ VIÐTALSAÐFERÐINNI
ERU MEIRI LÍKUR Á ENDAN-
LEGUM SVÖRUM.
Sú aðferð, sem mun hafa ver-
ið reynd, að leggja inn útfyllta
beiðni eða spurskrá, mundi lít-
ið bæta úr fyrir flestum og hætt
við að svör drægjust þá lengur
viðskiptamanninum til óhag-
ræðis t.d. vegna vöntunar við-
bótarupplýsinga. Með viðtals-
aðferðinni eins og hún er nú,
eru meiri líkur fyrir endanleg-
um svörum fljótt og kann svo
að vera, að í fleiri tilfellum
hafi dýrmætur tími verið spar-
aður með því að bíða stundar-
korn eftir viðtali. Að því er
kaupmenn snertir einkum inn-
flytjendur er í flestum tilfell-
um, eins og kunnugt er, fyrir-
fram samið um kaup á vöru-
víxlum og nægir þá að senda
víxlana til bankans. Sé fyrir-
fram samið um framlengingar-
skilmála eru viðtöl óþörf á
gjalddögum og það jafnvel þótt
minni háttar afbrigði verði á
umsömdum greiðslum, og legg-
ur víxlafulltrúi slík mál fyrir
bankastjórn utan viðtalstíma.
>á er og algengt að fastir við-
skiptamenn komi óskum sínum
um frávik frá fyrirfram gerð-
um samningum áleiðis fyrir
milligöngu starfsmanna, bréf-
lega, í síma eða í sérstökum
viðtalstíma. Þá var sá breyting
gerð fyrir tveim árum í Búnað-
arbanka, að báðir bankastjórar
hafa viðtalstíma daglega í stað
annars áður og hefur þetta með
öðru valdið því, að viðtöl ganga
nú greiðlegar en áður, þannig
að algengt er, að bið sé sára-
lítil eða engin. En að sjálfsögðu
er þetta ákaflega misjafnt, sum-
ir dagar, vikur, árstíðir betri
eða verri en aðrar, en mestu
ræður þó í þessu efni ástand í
peningamálum á hverjum tima.
PÓLITÍSKIR EÐA
EKKI PÓLITÍSKIR ?
F.V.: Það er oft sagt um yð-
ur, að þér séuð einn af fáum
„ópólitískum” bankast j órum.
FRJÁLS VERZLUN
Teljið þér pó'litíska skipun
bankastjóra eðlilega? Hvaða
áhrif hefur slík skipun á starf-
semi viðkomandi banka?
S.H.: Þetta er nokkuð nær-
göngul spurning og þess eðlis
að ég ætti að svara henni út í
hött, enda veit ég ekki nákvæm-
lega hvaða merkingu þér leggið
í „ópólitískur” í þessu tilfelli.
Ég er alveg eins pólitískur og
gerist og gengur, hins vegar
ekki tiltakanlega flokkspóli-
tískur. Ég vil gjarnan geta stutt
góð mál og verið á móti vond-
um málum án tillits til þess
hvaðan þau eru runnin.
Við vitum, að bankaráð rík-
isbankanna eru kosin af Al-
þingi, pólitískum kosningum,
og þau ráða bankastjóra. Ég
sé ekkert athugavert við þá
aðferð, aðalatriðið er að hæfir
menn ráðist til starfa, og mun
það mála sannast, að „pólitísk
skipun”, eins og þér orðið það,
hefur bókstaflega engin áhrif
á útlán eða aðra starfsemi
bankanna. Ef um einhver póli-
tísk áhrif er að ræða, dettur
mér helzt í hug, að pólitískir
frændur séu frændum verst-
ir. Það getur verið að
flokksbundinn bankastjóri
verði fyrir meiri ágengni af
hendi flokksbræðra sinna og
samherja, en það er hans mál
og gerir honum aðeins erfiðara
fyrir í starfi.
Meiri vafi leikur hins vegar
á því, hvort heppilegt sé, að
útibússtjórar bankanna úti á
landi standi í pólitísku vafstri
og eigi undir tiltölulega fá-
mennan hóp viðskiptamanna
sinna að sækja um pólitískt
fylgi. í mörgum héruðum eru
útibússtjórarnir einir úthlutun-
armenn f jármagns andstætt því
sem er í aðalbönkunum í
Reykjavik og eiga viðskipta-
menn þeirra e.t.v. ekki í önnur
hús að venda með úrlausn sinna
mála.
Ég tel a.m.k. óhyggilegt, að
þeir embættismenn gefi kost á
sér í pólitísk framboð til meiri
háttar opinberra starfa og þá
fyrst og fremst til þingsetu enda
leiðir slíkt til langvarandi fjar-
vista frá daglegum skyldum,
sem er mjög óheppilegt í slík-
um störfum.