Frjáls verslun - 01.06.1970, Síða 31
FRJALS VERZLUN
29
Sjávarútvegur, fiskiðnaður
Frumkvæði á sviði tækninnar
er frumnauðsyn i sjávarútvegi
Grein eftir Jón Sveinsson, tæknifræðinxf
Við íslendingar eigum öðrum
þjóðum fremur afkomu okkar
undir sjávarútvegi komna, þ. e.
öflun, nýtingu og sölu sjávar-
afurða.
Fyrir fáum árum voru sjávar-
afurðir um 95% af útflutnings-
afurðum okkar. Örlítið hefur
þetta breytzt á seinustu misser-
um, einkum með tilkomu stór-
iðju, þar sem álframleiðslan
hófst á seinasta ári og út var
flutt ál yrir kr. 519.071.000,00.
Þrátt fyrir það eru sjávaraf-
urðir og munu ennþá lengi
verða höfuð uppistaða í okkar
afurðasölu eins og sést vel á
skiptingu útflutnings fyrir árið
1969, á línuriti I.
1. Útfluttar ísl. afurðir jan.-des.
1969.
2. Sjávarafurðir,
í þús. kr. 7.743.417= 81,79%
3. Landbúnaðarafurðir,
í þús. kr. 798.017= 8,43%
4. Al, skip og annað,
í þús. kr. 924.934= 9,78%
Samtals
þús. kr. 9.466.368=100,00%
Gerðir og stærðir fiskiskipa
og afli. Til þess að sækja feng
í greipar Ægis konungs, undan
ströndum íslands, þarf duglega
sjómenn, en þeir þurfa góð og
vel búin fiskiskip, sem stand-
ast verða samanburð við skip
annarra þjóða, bæði hvað gerð
og búnað snertir.
í febrúar 1970 eru fiskiskip
okkar talin vera 755 að tölu,
samtals 79.164 rúmlestir brúttó.
Skipting þessa fiskiskipastóls,
sem aflar mesta hluta gjaldeyr-
is okkar, er sýndur á töflu I
eftir notkun og gerð:
Tafla I varpar nokkru ljósi
á stærð og hreyfingu í samsetn-
ingu fiskiskipaflotans, ásamt
TAFLA I
aflamagni, á árunum 1964-70.
Sláandi er að sjá 1240 þús.
tonna afla á árinu 1966 á móti
599 þús. tonna afla á árinu
1968.
Á töflu I sést að frá 1966-
1970 hefur togurum fækkað um
15, úr 38 í 23 skip. Fiskiskipum
undir 100 rúmlestum hefur
fækkað um 70, úr 595 í 525
báta. Þetta er fækkun um 93
skip.
Fiskibátum 100 rúmlesta og
meira hefur á sama tímabili
Skipting og afli fiskiskipaflotans eftir notkun og stærð.
Fjöldi skipa óg brúttó lestir.
1964 1965 1966 1967 1968 1969 1970
Botnvörpuskip 38 26708 32 22876 30 21491 28 20104 23 16837
Hvalveiðiskip 7 2858 7 2858 7 2858 7 2858 5 2858
Önnur fiskiskip 100 B.R.L. og meira 171 30795 184 35474 208 43293 204 43014 202 42078
_ _ 50-99 B.R.L. 190 12591 177 11682 174 11600 173 11558 171 11600
— — 12-49 B.Rii. 242 6276 229 5976 211 5476 198 5167 195 5153
— — undir 12 B.R.L. 163 1288 159 1252 153 1209 149 1176 159 1236
Tala fiskiskipa alls 311 788 783 759 755
B.R.L. — — 80516 80116 85927 83877 79164
Vátr.verðmæti í millj. kr. 3506,1 3570,9 4663,6 4776,8 5961,0
Fiskafli í tonnum upp úr sjó alls 972271 1199028 1240292 895288 599296 685853
Þar af togarafiskur alls t. 73G06 60601 72538 78701 84101