Frjáls verslun - 01.06.1970, Blaðsíða 48
46
FRJALS VERZLUN
að takmörkuðu leyti hjá smá-
framleiðendum. Þó eru þeir all-
nokkrir stærri framleiðendurn-
ir, sem standa orðið framar-
lega frá tæknilegu sjónarmiði.
En það má segja, að talsverð á-
tök þurfi til þess að breyta frá
gamla laginu, þegar allir flutn-
ingar á fiski og salti voru í
hjólbörum eða í höndunum,
og hausun, flatning og þvottur
einnig í höndunum.
Fjórar tegundir. Saltfisk-
framleiðslan, eins og hún er
nú, skiptist nær eingöngu í
fjórar tegundir: Óverkaðan
saltfisk, verkaðan (þurrkaðan)
saltfisk, þunnildi og söltuð
hrogn. Við seljum hlutfallslega
miklu meira af saltfiskinum ó-
verkuðum en t. d! Norðmenn
og Kanadamenn. Þeir verka
megnið af þeim saltfiski, sem
þeir flytja út. Einnig gera
þeir smávegis af því að vinna
fiskinn frekar, í neytendaum-
búðir. Til skamms tíma hefur
það tíðkazt hjá okkur, að verka
aðeins la'kari saltfiskinn. Síðan
i fyrra er nokkur breyting að
verða á þessu og meira tekið af
góðum fiski til verkunar. Verk-
unin skapar mikla vinnu og
nokkra verðmætisaukningu, en
í henni er einnig bundið mikið
fjármagn. Framleiðendur eru
t. d. að fá greitt fyrir óverkaða
fiskinn frá s. 1. vetrarvertíð
um þessar mundir, en fyrir
verkaða fiskinn fá þeir
ekki greitt fyrr en eftir hálft
ár í viðbót eða meira. Þetta
veltur því m. a. á lánsfé. Þá
grípa að sjálfsögðu sölumögu-
leikarnir inn í. Kaupendur í
Suður-Ameríku vilja yfirleitt
ekki nema verkaðan saltfisk,
enda illmögulegt að koma þang-
að óverkuðum fiski óskemmd-
um, vegna fjarlægðarinnar.
Hins vegar hafa Spánverjar og
Portúgalar lagt kapp á að
verka sjálfir saltfisk með sínu
ódýra vinnuafli, og þá eins
þann saltfisk sem þeir kaupa
af okkur. Þessar þjóðir, ásamt
ítölum, eru okkar stærstu
kaupendur, eins og er.
Frekari vinnsla. Fyrir nokkr-
um árum, segir Loftur enn-
fremur, gerðum við lítilsháttar
tilraun með að vinna saltfisk
í neytendaumbúðir. Þetta var
tekið upp aftur í fyrra og verð-
reynt frekar nú. í þessu
skyni höfum við tekið valin
flök, sem síðan eru s'óltuð,
þurrkuð og beinskorin, síund-
um einnig roðflett. Þá eru þau
pressuð í mót og sett í loftþétt-
ar umbúðir og loks í litlar öskj-
ur, y2 kg. í hverja. Þessi fisk-
ur getur geymzt mjög lengi
kældur, árum saman, og fram-
an af batnar hann með geymsl-
unni. Neytendur þurfa ekki
annað en útvatna fiskinn áður
en hans er neytt. Við höfum
einnig reynt að pakka fiskinn
útvatnaðan, en aðferðin er erf-
iðari, þar sem slíkan fisk verð-
ur að frysta. Norðmenn og
Kanadamenn vinna nokkuð af
saltfiski í neytendaumbúðir,
mest á svipaðan hátt, en þeir
taka þá til óverkaðan salt-
fisk. Það er miklu meiri vinna
að beinskera hann og roðfietta
heldur en nýjan fisk. Hins
vegar geta þeir þá unnið að
þessu eftir hendinni, til þess að
fylla upp í. En ég get fullyrt,
að sá fiskur, sem við höfum
unnið í neytendaumbúðir er
lúxusvara og talsvert verðmæt-
ari en verkaði saltfiskurinn,
sem svo aftur er verðmætari
en óverkaði saltfiskurinn. Það
er að sjálfsögðu ekki mitt að
meta, hvort um raunverulega
möguleika er að ræða til að
gera saltfiskinn þetta verðmæt-
ari í miklum mæli. En ef hægt
er að selja fiskinn þannig, trúi
ég ekki öðru en verðmætis-
aukningin og vinnan, sem skap-
ast og er mikil, borgi þá fyrir-
greiðslu, sem huganlega þarf
til að koma. Hún getur aldrei
orðið svo mjög veruleg.
CTFLUTNINGUR á lýsi, mjöli, hrognum og skreið.
BERNH. PETERSEN,
Hanarhúsinu v/Tryggvagötu, Reykjavík. Sími 11570.
Afgreiðum með stuttum fyrirvara BOTNVÖRPUR og
RÆKJUNÆTUR.
NETAGERÐ VESTFJARÐA,
ísafirði, símar 3413, 3332 og 3342.
Útgerð, fiskiðnaður, fiskverkun.
Kaupum hvers konar fiskafurðir til frystingar, söltunar,
herzlu og mjölvinnslu. Seljum beitusíld, salt, veiðarfæri,
olíur o. fl.
ÚTGERÐARSTÖÐ GUÐMUNDAR JÓNSSONAR,
Sandgerði — Sími 7515.
Útflutningur á alls konar fiskmjöli og lýsi, skreið,
söltuðum þorskflökum og þunnildum.
G. ALBERTSSON,
Garðastræti 38, Reykjavík. Sími 19314.