Frjáls verslun - 01.07.1972, Page 23
einhvevjar meiriháttar fram-
kvæmdir af hans hálfu í þágu
verzlunarstéttarinna.r, — að
fjármunirnir verði notaðir með
nýjum hætti?
GG: — Af hálfu launþeg-
anna hefur komið fram áhugi
á því að sjóðir sameinist hugs-
anlega um byggingu íbúðarhús-
næðis. Innan V.R. er sérstak-
ur áhugi á byggingu íbúða
fyrir einstæða foreldra, er
starfa innan vébanda félagsins.
Eignaraðild gæti orðið með
breytilegum hætti. í félaginu
eru um 2500 konur, stór hluti
20—30 ára og margar þeirra
einstæðar mæður. í þessu til-
,,Flugfélag Islands góð fyrir-
mynd."
liti einblínum við ekki á
stærstu gerð fjölbýlishúss held-
ur hugsanlega tveggja hæða
hús með rúmgóðum og vel
skipulögðum svæðum í kring.
En öll þessi áform eru að
sjálfsögðu háð samþykki borg-
aryfirvalda.
Af öðrum fjárfestingarmál-
um lífeyrissjóðsins má nefna,
að hann keypti hlutabréf í
Eimskipafélagi íslands fyrir
eina milljón í apríl 1971. Við
vildum fá hlutabréf fyrir 5
milljónir, sem hefði orðið afar-
góð fjárfesting, því að á aðal-
fundi Eimskips í ár var ákveð-
ið að gefa út þreföld jöfnunar-
hlutabréf. Auk þess hefur Eim-
skip borgað góðan arð. Verzl-
unarmannafélag Reykjavíkur
hefur keypt hlutabréf fyrir 3
milljónir i Al?þýðubankanum
h.f. og lífeyrissjóðurinn hluta-
bréf í Fjárfestingarfélagi ís-
lands fyrir 15 milljónir króna.
FV: — Er það ekki í sjálfu
sér óeðlileg þróun, að svo mikl-
ir fjármunir safnist fyrir í
sjóðum verkalýðsfélags, að for-
ráðamenn þess burfi að velta
vönguni yfir því, hvar bezt sé
að korna öllum þessum pen-
ingum í fjárfestingu? Eru
verkalýðsleiðtogarnir ckki
farnir a.ð spekúlera einuna of
mikið þar með?
LEGGJA ÞARF HÖFUÐ
ÁHERZLU Á ÞÁTTTÖKU í
REKSTRI FYRIRTÆKJANNA.
„Eimskip heíur borgað góðan
arð."
GG: — Ég hef alltaf litið á
verzlunar- og skrifstofufólk
sem nýja stétt innan launþega-
hreyfingarinnar, er eigi að
koma fram með nýjar hug-
myndir og nálgast lausn við-
fangsefnanna eftir nýjum leið-
um. Utan sjálfrar kjarabarátt-
unnar finnst mér að þessir
starfshópar eigi að leggja höf-
uðáherzlu á þátttöku í rekstri
fyrirtækjanna með öðrum
hætti en bara þeim að sinna
þar daglegum störfum, Þessu
marki vei'ður náð með því að
starfsfólkið gerist meðeigendur
og félagið og sjóðir tengdir
því verði einnig aðilar að fyr-
irtækjum að takmörkuðu leyti.
Með aukinni iðnvæðingu og
vaxandi þéttbýli hafa fyrir-
tækin breytzt. í stað litlu fyr-
irtækjanna hvílir nú megin-
þunginn á stórfyrirtækjunum,
sem verða að hafa dreifða
eignaraðild og bjóða upp á
virka þátttöku eigendanna i
stjórn þeirra. Hin fjölmennu
stéttarfélög, sem risið hafa
upp, verða að eiga kost á
aukinni þátttöku í fyrirtækja-
rekstrinum þannig, að áhuga-
og hagsmunamál fólksins verði
sem sterkast tengd þeim grund-
velli, er afkoma þess hvílir á.
Betri aíkoma og miklar sjóð-
myndanir félaganna gera það
óumflyjanlegt að tekin sé af-
staða til þess, hvernig fjár-
magnið skuli nýta hverju sinni
„Þátttaka í stjórnmálalííinu ó-
umflýjanleg."
og hverjum sé falið að fjalla
um frekari umsjá málanna.
Andstæðingar miðstjórnarvalds
hljóta að vera fylgjandi þessu.
í slíkum aðgerðum felst ákveð-
in dreifing valdsins og aukin
ábyrgð.
FV: — Nú virðist sem opn-
unarmál sölubúða séu nokkuð
óljós og allmikið ber á til-
kynningum frá verzlunum um
að þær muni á næstunni hafa
lokað á ákveðnum tímum, sem
hafa til þessa verið innan
ramma hins hefðbundna þjón-
ustutíma þeirra. í þessu sam-
bandi er líka rétt að spyrja að
því, hvort þú sért sammála
forstöðumönnum KEA á Ak-
ureyri um að íslendingar hafi
ekki efni á þeirri vinnutíma,-
styttingu sem ákveðin var í
FV 6-7 1972
23