Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1972, Page 37

Frjáls verslun - 01.07.1972, Page 37
FV 6-7 1972 BLAÐAUKI III ið fjarskiptaþjónustu við flug- vélamar svo að dæmi séu nefnd. Atvinnulíf Vestfirðinga skipt- ir íslenzkan þjóðarbúskap höf- uðmáli. Fiskvinnslufyrirtækin, sem eru á annan tug, hafa meginhlutverki að gegna í út- flutningsframleiðslunni. Frysti- hús á Vestfjörðum framleiða 17% af öllum útflutingi SH. Þess vegna verður að sjá til þess að byggð geti áfram þrif- izt á þessum stöðum, í sjávar- þorpunum og inni í sveitunum. En til þess að svo megi verða. þarf nauðsynlega að koma í veg fyrir augljósa mismunun og óraunhæfar aðgerðir ómann- legs kerfis stjómsýslunnar og skrifstofuvaldsins. Húsnæðisskortur er víðast alvarlegur í útgerðarbæjunum á Vestfjörðum. Gert hefur ver- ið ráð fyrir því, að bygginga- framkvæmdir á við þær, sem framkvæmdanefnd hefur stað- ið fyrir í Breiðholti í Reykja- vík, gætu farið fram annars staðar á landinu. Vestfirðingar spyrja, af hverju þeir hafi ekki enn getað fengið sömu lánafyrirgreiðslu til húsnæðis- bygginga og fólk í þéttbýlinu. Það er tómt mál að tala um jafnvægi í byggð landsins, byggðaþróun eða hvað það nú heitir, meðan ráðamenn koma í veg fyrir að fólkið úti á landsbyggðinni eins og t.d. á Vestfjörðum fái í þessu tilliti sömu fyrirgreiðslu hjá hinu opinbera og íbúar höfuðborgar- svæðisins. Dæmi um hið ómennska kerfi skrifstofuvaldsins em fyr- irætlanir um nýskipun læknis- héraða. Samkvæmt þeim eiga íbúar A-Barðastrandarsýslu, syðst á Vestfjörðum, að sækja læknisþjónustu til Stykkis- hólms, hinum megin við Breiðafjörð. Þetta er glöggt dæmi um það, hvemig mið- stjórnarvaldið ætlar með einu pennastriki að útiloka þá veigamiklu þætti samfélags- hátta, sem landfræðileg skipan og samskipti fólks í marga mannsaldra hafa komið hefð á. Framtíð byggðar á Vestfjörð- um er kannski ekki í yfirvof- anidi hættu. Hins vegar er það lágmarkskrafa, að þjóðfélagið tryggi þeim, sem búa vilja í dreifbýlinu við erfiðar aðstæð- ur, sömu möguleika til þess að eignast þak yfir höfuðið og gerist í þéttbýlinu. Flateyri: Hluthafar 160 í frystihúsinu Einar Oddur Kristjánsson heitir ungur maður, sem stjóm- ar rekstri fiskiðjunnar Hjálms h.f. á Flateyri. Hjálmur h.f. var stofnaður árið 1968 og era hluthafar mn 160 talsins. Hraðfrystihúsið á Flateyri komst í greiðsluþrot árið 1967 og hætti fyrirtækið þá störf- um en bráðabirgðafélag var sett á stofn til að annast rekst- ur þess um sinn, m.a. með þátttöku sveitarfélagsins. Síðan tók Hjálmur h.f. við og keypti upp eignir frystihússins, fisk- verkunarstöð og beinamjöls- verksmiðju. 19 MILLJÓNIR í LAUN í FYRRA. Gengisfellingarnar áttu sinn þátt í að bæta rekstrarlega af- komu Hjálms h.f. og síðan 1969 hefur þróunin verið já- kvæð, en erfitt er að spá um framtíðina eins og ann- ars staðar í frystihúsaiðnað- inum. Hjá Hjálmi h. f. leggja upp þrír stórir bátar, eitt 200 tonna stálskip og tvö minni, sem stundað hafa línu- Einar Oddur Kristjánsson, forstjóri fiskiðjunnar Hjálms h.f. á Flateyri.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.