Frjáls verslun - 01.07.1972, Page 53
tonn, sem þykja lágmarksbirgð-
ir og er um það bil mánaðar-
neyzla. Þetta eru minnstu
birgðir síðan 1960. Smjörneyzl-
an er nú orðin 7,7 kíló á mann
að meðaltali og sagði Óskar, að
auglýsingar á smjörinu og upp-
runa þess, hafi greinilega auk-
ið neyzluna eitthvað.
Smjörframleiðsian er mest
yfir sumartímann og er þá
framleiddur forði til vetrarir.s.
í fyrra voru 300 tonn flutt út
með útflutningsuppbótum, en
í ár eru horfur á að ekkert
verði flutt út. Smjörneyzlan fer
nokkuð eftir efnahag og nið-
urgreiðslum. Hún er mikil
núna, enda efnahagur góður og
hvert kíló smjörs greitt niður
um helming framleiðslukostn-
aðarins. —
IX/lfólkursamsala Reykjavíkur:
IVfjólkurafurðirnar stöðugt vinsælli
— Neyzla mjólkurafurða er
alltaf nokkuð háð niðurgreiðsl-
um, en hún fer greinilega vax-
andi nú upp á síðkastið, eink-
um með tilkomu þeirra nýj-
unga, sem 'komið hafa á mark-
aðinn að undanförnu, sagði
Stefán Björnsson, forstjóri
Mjólkursamsölu Reykjavíkur.
Má þar fyrst nefna Emm Ess-
ísinn, sem nú er framleiddur í
32 tegundum. Sú framleiðslu-
grein hófst 1959 og var að
mestu leyti nýjung þá, og sagði
Stefán að það hefði tekið nokk-
urn tíma fyrir fólk að átta sig
á vörunni, en síðustu ár hefur
orðið mikil söluaukning í ísn-
um, einkum með tilkomu ís-
tertanna. Sýrður rjómi til mat-
argerðar kom næstur, og var
honum mun betur tekið en von-
ir stóðu til. Súkkulaðimjólk var
nýlega send á markaðinn, og
var henni mjög vel tekið, en
neyzla hennar er mest yfir vet-
urinn, þegar skólar eru starf-
andi.
FJÖLDI NÝJUNGA
Þá kom hrært skyr í dós-
um á markaðinn fyrir nokkru
og er mjög vaxandi sala í þeirri
vöru, enda stefnt að því, að
skyr verði aðeins selt þannig í
framtíðinni, þar sem það er
betra í geymslu og auðveldara
að matbúa það. Loks er fram-
leiðsla á Yougurt nýlega haf-
in og hefur hlotið miklar vin-
sældir svo að eftirspurn er enn
mun meiri en framboð. En
nú stendur til að auka við fram-
leiðsluna. Fieiri nýjungar eru
stöðugt í athugun, án þess að
hægt sé að nefna neina vænt-
anlega nýjung að svo stöddu.
Markaðurinn er það lítill, sagði
Stefán, að mikil fjölbreytni
hlýtur að verða dýr, auk pess
sem við verðum fyrst að anna
eftirspurn eftir þeirri vöru sem
er á markaðnum, áður en farið
verður út í eitthvað nýtt.
Stefán vonaðist til að þessi
stóraukna neyzla mjólkuraf-
urða kæmi ekki niður á neyzlu
nýmjólkur. Hins vegar er nú
ljóst að mjólkurneyzlan stend-
ur í stað, en eykst ekki eins
og flest önnur matvælaneyzla.
Ekki er þó enn hægt að greina
samdrátt.
BÆNDUR VILJA MEIRI-
HLUTAAÐSTÖÐU UM
DREIFINGU
Varðandi þá ósk fjölda mat-
vörukaupmanna að fá að selja
mjólk í búðum sínum, sagði
Stefán, að það væri stefna
bænda að hafa meirihluta að-
stöðu í sölu og dreifingu mjólk-
ur, en leyfa öðrum að selja
hana eftir því sem þurfa þykir
og hentar. Með því telja bænd-
ur sig geta haft áhrif á dreif-
ingarkostnað, byggt upp ódýr-
ara dreifingarkerfi og haft því
meira upp úr mjólkursölunni.
— Kaupmenn hafa nú þegar
yfirburðaaðstöðu, þar sem þeir
selja mjólk á 85 stöðum, en
Mjólkursamsalan hefur 75 út-
sölustaði, sagði Stefán.
Verð á mjólkurafurðum og
mjólk er svipað eða lægra hér
en víðast annars staðar, og hin-
um miklu vinsældum mjólkur-
afurðanna þakkaði Stefán fyrst
og fremst það, að þær eru nær-
ingarríkar, en þó fituminni en
nýmjólk. —
FV 6-7 1972
45