Frjáls verslun - 01.07.1972, Page 61
en röskar 105 milljónir eru mn-
vegnar í mjólkurbúin.
FRAMLEIÐSLAN MJÖG MIS-
MUNANDI EFTIR ÁRSTÍMUM
Mjólkurframleiðslan er mjög
mismunandi eftir árstímum og
skapar það mjólkuriðnaðinum
talsverða erfiðleika og kostnað
umfram þann, sem væri, ef
framleiðslan væri stöðugri. Öll
móttökuskilyrði og tæki þarf
að miða við hámarksframleiðslu
og standa því tækin lítið notuð
eða ónotuð mikinn hluta af ár-
inu, eða þann tíma, sem lítil
mjólk berst.
Sem dæmi um óstöðugleika
framleiðslunnar má nefna að í
júlí í fyrra bárust 12,2 millj-
ónir kílóa mjólkur til mjólkur-
búanna, en ekki nema 6,3 millj-
ónir í janúar sama ár. Auk
þess er fitumagn mjólkurinnar
mjög mismunandi eftir árstím-
um, mest á sumrin og fram á
haust, en minnst á veturna,
einkum eftir áramót. Mjólkur-
framleiðslan sunnanlanas
dregst oft svo mikið saman yf-
ir vetrartímann, að flytja verð-
ur mjólk að norðan tii þess að
fullnægja eftirspurninni. Pétur
Sigurðsson sagði, að til þess að
tryggja stöðugan markað,
þyrfti umframframleiðslan að
vera a. m. k. 10%.
Tilraunir hafa verið gerðar
til þess erlendis að greiða bænd-
um hærra verð fyrir mjólkina
yfir þann tíma sem framleiðsl-
an er minnst, í þeim tilgangi að
þeir reyni að auka framleiðsl-
una með aukinni fóðurgjöf, tn
þessar tilraunir hafa lítinn ár-
angur borið, og taldi Pétur ekki
líklegt að þetta fyrirkomuiag
verkaði fremur hér en erlendis.
Sælgætisgeröin Linda:
Fyrsta flokks gæði skáka
innflutningnum
— Meðan ég set gæðin númer
eitt, cttast ég ekki samkeppn-
ina við innflutninginn, enda
merki ég ekki neinn samdrátt
hjá mér nema síður væri, því
framleiðslan þyrfti að vera 39
til 40% meiri nú til þess að
fullnægja eftirspurn, sagði Ey-
þér H. Tómasson, forstjóri Sæl-
gætisgerðarinnar Lindu h/f á
Akureyri.
NEYZLAN BYGGIST Á
GÆÐUM
Hann sagði, að neyzlan byggð-
ist fyrst og fremst á gæðum, og
gæðin byggðust upp á fyrsta
flokks hráefnum, og því keypti
hann þau og sparaði ekkert
til, enda hefði hann fengið
mjög góðar niðurstöður úrrann-
sóknum á Lindu-súkkulaði, sem
gerðar voru á erlendum rann-
sóknarstofum.
— Ég tel að Lindusúkkulaði
standist fyllilega samanburð
við hvaða súkkulaði sem er,
sagði Eyþór, enda ætla ég að
reyna að hefja reglulegan út-
flutning á því og er unnið að
markaðskönnun í Kanada og í
Bandaríkjunum. Nokkur tonn
af Lindusúkkulaði voru flutt út
til Bandaríkjanna á síðasta ári,
og var það selt þar sem fyrsta
flokks súkkulaði og var í háum
verðflokki. Annars taldi Eyþór
rétt að útflutningsdeild iðnað-
arins kannaði þessa möguleika,
því að verksmiðjan sjálf hefði
vart bolmagn til þess. Þannig
er til dæmis ókannaður austan-
tjalds markaðurinn, Norður-
lönd og fleiri svæði, sem Eyþór
taldi ekki ólíklegt að mætti
komast inn á.
SÉRMENNTAÐ FÓLK
Eyþór sagði, að sérmenntað
fólk og strangar kröfur væru
frumskilyrði gæðanna, sem
yrðu umfram allt að vera jöfn
og örugg, og ætlaði hann ekki
að láta sér verða það á að senda
frá sér misheppnaða vöru, sem
eyðilegði markaðinn, eins og
nokkrum aðilum hefði því mið-
ur orðið á.
Varðandi umboð og innflutn-
ing á erlendu sælgæti, sagðist
Eyþór ætla að flytja inn það,
sem hann byggi ekki til sjálfur
FV 6-7 1972
53