Frjáls verslun - 01.07.1972, Side 63
og ekki svaraði kostnaði að gera
hér, en annars hygðist hann
ætla að halda sinni framleiðslu
óbreyttri áfram og sjá til, hver
þróunin yrði, þegar ekki væru
lengur tollar og höft á erlenda
sælgætinu.
Linda er einn stærsti sæigæt-
isframleiðandinn hérlendis, og
er þar allt unnið í fullkomnurn
vélum nema konfektið, þar sem
vélum verður vart við komið.
Grænmetisverzlun landbúnaðarins:
Kartöflur góð megrunarfæða
fslendingar borða að meðal-
tali 50 til 60 kíló af kartöílum
á mann árlega, en hins vegar
eru talsverðar sveiflur í kar-
töfluneyzlunni eftir efnahag
fólks. Þegar kaupgeta almenn-
ings er í íáginni, er neyzla
kartaflna í hámarki, en þetta er
gagnstæð þróun miðað við
flestar aðrar neyzluvörur og
mun betta stafa af því að kar-
töflur eru mjög ódýr fæða.
Þessar upplýsingar fékk blaðið
hjá Jóhanni Jónassyni, forstjóra
Grænmetisverzlunar landbún-
aðarins.
Jóhann sagði að meðalárs-
neyzla okkar íslendinga væri
110 til 120 þúsund tunnur, tunn-
an tekur 190 kíió, og eru þá
útsæðiskartöflur taldar með,
sem eru um 15% af heildarsöl-
unni. í fyrra voru hins vegar
framleiddar hátt í 150 þúsund
tunnur, enda var árið í fyrra al-
gert metár í kartöfluframleiðsl-
unni. Þetta þýðir þó ekki að
við verðum sjálfum okkur nóg-
ir um kartöflur í sumar, bar
sem geymsluörðugleikar koma
í veg fyrir það, og efaðist Jó-
hann um að það tækist nokk-
urn tímann að láta endana na
saman vegna þessa, nema
breytt geymslutækni kæmi til.
GEYMSLUVANDAMÁLIÐ
MIKIÐ
Aðalvandamálið er spírun
kartaflnanna, þegar fer að vora,
en seinvirk aðferð hefur hingað
til verið notuð til þess að koma
í veg fyrir hana. Nú í vetur
voru hins vegar flutt inn tæki
og efni til þessa verks, sem eru
ódýr og fljótvirk. Þau eru ný-
lega tilkomin og hafa reynzt vel
erlendis, og vonaðist Jóhann tii
þess að með þeim verði fram-
vegis hægt að geyma kartöflur
lengur fram á sumarið en nú.
Kartöfluuppskeran er afar
mismunandi frá ári til árs, þrátt
fyrir að svipað magn sé sett
niður, og veltur uppskeran
mjög á veðráttu. Þannig fengu
margir kartöfluræktendur allt
að tífalda uppskeru í fyrra
haust, miðað við það, sem sett
var niður í fyrravor. Undan-
farin sex til sjö ár á undan voru
slæm kaitöfluár og fékkst þá
oft meira en helmingi minni
uppskera en í fyrra, eða þre-
til fimmföld miðað við þaö sem
sett var niður. Þessar gífurlegu
sveiflur gera framleiðendunum
crfitt fyrir, þar sem sáralitii
framleiðsla getur orðið eitt ár-
ið og offramleiðsla það næsta,
en samt sem áður þurfa þeir
alltaf að gera ráð fyrir met-
framleiðslu fyrir það hvað
vélar og þau tæki, sem halda
réttu raka- og hitastigi í þeim,
eru dýr, en kartöflur eru mjög
viðkvæmar í geymslu og í fiutn-
ingum. Þrátt fyrir geysimikla
framleiðslu síðasta sumars,
varð ekki teljandi geymslu-
skortur, en Jóhann sagði að svo
furðulegt væri það, að þrátt
fyrir tækniútbúnað þann, sem
nú væri notaður í stærri
geymslum, til þess að halda
réttu raka- og hitastigi, geymd-
ust kartöflurnar alltaf bezt í
niðurgröfnum jarðhýsum, þar
sem engin tæki sæju um á-
stand þeirra. Til þess að kom-
ast hjá verulegum flutningum
á kartöflum innanlands, hefur
Grænmetisverzlunin komið upp
65 útibúum víðsvegar um land-
ið sem dreifa í kringum sig.
Varðandi offramleiðslu sagði
Jóhann, að Grænmetisverzlun-
in keypti að sjálfsögðu ekki
meiri birgðir en hún gæti selt,
en hins vegar væri reynt að
kaupa sem jafnast frá kartöflu-
bændunum til þess að einn sæti
ekki ef til vill uppi með alla
framleiðslu sína um leið og
annar hefði selt alla sína. Þetta
er að vísu erfitt verk, sagði Jó-
hann, en við reynum að taka
tillit til framleiðslu viðkom-
andi aðila á undanförnum árum
og nota það sem grundvöll.
Hins vegar er offramleiðslan
bændunum ekki ónýt, af því að
kartöflur eru ágætis skepnu-
fóður, einkum handa kindum.
GÆÐI OG VERÐ ÞEIRRA ER-
LENDU MISMUNANDI
Þær erlendu kartöflur, sem
venjulega eru fluttar hingað inn
yfir sumartímann, koma frá
Evrópu, aðallega Ítalíu. Verð
þeirra er mjög mismunandi og
sömuleiðis gæði. Jóhann taldi,
að gullauga og íslenzkar rauð-
ar kartöilur, stæðu þeim er
lendu hvergi að baki nema sið-
ur væri. Þær íslenzku hefðu
yfirleitt meira þurrefnisinni-
hald en erlendar matarkartöfl-
ur, en aftur á móti væri bragðið
smekksatriði hvers og eins.
Kartöflur eru mjög heppileg
megrunarfæða, sagði hann, þær
eru heppilegt fyllifæði fyrir
magann, og hafa þó næringar-
innihald. Ef næringargildi og
magn kartaflna er miðað við
eitt kíló af mjöli í brauði, gefa
sex til sjö kíló af kartöflum á-
líka margar hitaeiningar og
eitt kiló af mjöli, auk þess sem
ýmis vítamín eru í kartöflun-
um, sem ekki eru í mjölinu.
Að lokum sagði Jóhann, að
útlit væri fyrir gott kartöfluár
í ár hjá þeim 25 þúsund aðilum,
sem talið er að setji niður kar-
töflur árlega. Yfirgnæfandi
meirihluti þessa fólks eru ein-
staklingar, sem aðeins rækta
fyrir sig og heimili sitt.
FV 6-7 1972
55