Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1972, Qupperneq 67

Frjáls verslun - 01.07.1972, Qupperneq 67
Tækni: Tölvunotkun verður stöðugt útbreiddari á íslandi Um þessar mundir eru 5 ár liðin frá því að IBM World Trade Corporation setti á stofn útibú hér á landi undir nafninu IBM á ÍSLANDI. Útibúið tók við þeim hluta af starfsemi IBM umboðsins, sem Iaut að skýrsluvélum og tölvum, sölu á rekstrarvörum til þeirra, svo og rekstri skýrsluvinnslu. Saga IBM á íslandi var rakin að nokkru í við- tali við Ottó A. Michelsen, forstjóra, í 7. tbl. F.V. árið 1970, og verður ekki endur- tekin hér. Hins vegar þykir hlýða á þessum tímamótum að gefa lesendum F.V. hug- mynd um það með nokkrum dæmum, hversu notkun tölva er orðin snar þáttur í tilveru nútímamannsins. Þessi þáttur í atvinnu- og viðskiptalífinu, sem kallað- ur hefur verið á ensku Automatic Data Processing, og á íslenzku mætti nefna sjálfvirka gagnavinnslu, hef- ur tekið afar stórstígum framförum á síðustu árum, og í engri grein hefur orðið jafn ör fjölgun starfsfólks. Á þetta bæði við um fjölda fólks við framleiðslu véla, beint og óbeint, sem og við rafreiknideildir þeirra aðila, sem nota þessa nýju tækni. UPPHAF TÖLVUTÆKNI. Tímabil sjálfvirkrar gagnavinnslu er talið hefj- ast árið 1952, þegar fyrstu fjöldaframleiddu tölvurnar voru boðnar til sölu. Þá var það mat markaðssérfræð- inga, að varla myndu nema svo sem 50 fyrirtæki hafa not fyrir slíkar vélar. Nú, 20 árum seinna, skipta þau þúsundum. Það má því segja, að þessi starfsgrein hafi þegar slitið barnsskón- um — máske væri réttlæt- anlegt að segja vaxið upp úr þeim. Reynslan hefur sýnt, að það tekur æ skemmri tíma frá því að uppfinning er gerð og þar til farið er að nota hana á hagnýtan hátt. Útbreiðsla nothæfra nýj- unga verður með hraða sem líkja má við sprengingu. Svo varð um sjálfvirka gagnavinnslu, þar með að sjálfsögðu tækin, sem hún er unnin með, tölvurnar. Tölvu má með nokkrum sanni kalla eftirlíkingu af heila mannsins. Sumir segja mjög lélega eftirlíkingu, en þó verður að játa að hún hefur vissa yfiríburði. Má þar helzt nefna að minnið er óbrigðult innan þeirra marka, sem stærð tölvunn- ar ákveður. Tölvan ályktar líka alltaf eins út frá sömu tilteknum forsendum; hún er með öðrum orðum laus við mannlega duttlunga og geðbrigði. Eitt atriði enn er hraðinn. Hún getur reiknað eða borið saman stærðir og ýmis önnur ákveðin atriði miklu hraðar en nokkrum manni væri kleift. Tölvur eru sem sagt geysi- öflug tæki til sjálfvirkrar gagnavinnslu. Takmörkin fyrir því, hvaða verkefni megi leysa með hjálp þeirra er torvelt að nefna. Þar er hugmyndaflug tölvusmið- anna og þeirra, sem matbúa í þær efnið, kannske hið eina, sem endanlega ræður. Hitt er svo annað mál, hvað er hagkvæmt fjárhagslega og raunhæft tæknilega. Englendingurinn Charles Babbage hannaði og smíð- aði að nokkru á öldinni sem leið „greiningarvél“ með þeirra tíma tækni, tannhjól- um og stöngum, sem gat framkvæmt flestar þær ló- gisku aðgerðir, sem tölvur nútímans eru byggðar á. Vél þessi varð hins vegar bæði of dýr og alls ekki nothæf til hagnýtra verk- efna. Hætt er við að svona gæti enn farið um hugmyndir, er að þessu lúta. En eitt er víst: Með öllu er ástæðu- laus sá ótti, sem ýmsir hafa látið í ljósi, að tölvan geti einn góðan veðurdag tekið völdin og farið að stjórna sjálf því sem skeður í kringum hana. Að þessum varnagla slegnum mætti kannske víkja að nokkrum verkefn- um úr ýmsum áttum, sem leyst eru með hjálp tölv- unnar. STÖÐLUÐ BÓKHALDSVERKEFNI. Til þess að vinna tiltekið verk í tölvu þarf að gera fyrir hana svokallað forrit. Forritunin tekur nokkurn tíma, allt eftir því hversu margbrotið verkið er, og nauðsynlegur byrjunarliður er ávallt að skilgreina verk- ið nákvæmlega, lið fyrir lið. Þarna er nokkur þröskuld- ur, sem yfirstíga verður áð- ur en unnt er að nýta kosti tölvunnar. Kerfisfræðingar IBM á Islandi hafa gert verulegt átaK til að létta þessa byrj- un hjá smærri og meðal- stórum fyrirtækjum með því að búa til stöðluð forrit, sem auðvelt er að aðhæfa þörfum flestra fyrirtækja. Hér er um að ræða fjár- hagsbókhald, víxlabókhald, rekstrarbókhald, viðskipta- mannabókhald og launabók- FV 6-7 1972 59
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.