Frjáls verslun - 01.07.1972, Page 73
í þessum tilgangi hafa
tölvur einmitt verið notað-
ar með góðum árangri. Bú-
in hafa verið til lagerstýr-
ingarkerfi, þar sem tölvan
er látin fylgjast með öllu
sem skeður á lagernum, allt
frá því að pöntun er gerð
og þar til varan er seld. Með
því að hagnýta sér þessa
tækni, hefur mörgum fyrir-
tækjum tekizt að lækka
birgðafjárfestingu til muna
samfara því að þjónusta við
viðskiptavini hefur batnað.
TÖLVUR VIÐ
VÍSINDARANNSÓKNIR.
Það er einkenni margra
vísindalegra rannsókna, að
mikið magn gagna og upp-
lýsinga er flutt saman á
einn stað og síðan flokkað,
borið saman og niðurstöður
skilgreindar.
Einna fyrstur hér á landi
til að notfæra sér tölvu-
tækni við hagnýtar vísinda-
rannsóknir var Stefán Aðal-
steinsson, dr. phil. Þegar
tölva kom í fyrsta skipti
hingað til landsins árið
1963, en þá var IBM 1620
fengin að láni í fjórar vik-
ur, hafði hann mikið magn
tilbúið til véltöku af ýmsum
rannsóknargögnum. Tölvan
var mjög umsetin, því að
margir þurftu að prófa
hana, en dr. Sefán notaði
nóttina, og vann á einni
nóttu það, sem hann kallaði
ársverk ella.
Nokkru síðar kom tölva
af IBM 1620 gerð hingað til
landsins og stofnsett var
Reiknistofnun Háskóla ís-
lands. Þessa tölvu hefur dr.
Stefán notað mjög mikið við
störf sín. Seguldiskaminni
hennar notar hann m.a. til
þess að safna saman ár frá
ári hvers konar upplýsing-
um um nálægt 1500 ær og
um 2000 lömb. Upplýsinga-
söfnunin fer þannig fram,
að í tölvunni eru prentaðar
út vasabækur í handhægu
formi til að skrá í niður-
stöður vigtana, útkomu um
sauðburð og annað, sem at-
hugað er. Bókunum er svo
safnað inn, hinar nýju upp-
lýsingar færðar á gatspjöld
og lesnar inn á seguldiskinn.
I árslok eru allar útkom-
ur prentaðar út í tölvunni
svo að hvenær sem er megi
fletta upp hverri á og
hverju lambi. Ársuppgjör er
einnig framkvæmt á segul-
diskinum. Auk þess má
hvenær sem er velja út til
séruppgjörs allt fé, sem er í
sérstökum tilraunum.
Með þessu kerfi vinnst
m.a. það, að aldrei þarf að
lesa upplýsingar um kind
eða tilraunaniðurstöðu nema
einu sinni inn í tölvuna.
O R I G I N A L
FV 6-7 1972
65