Frjáls verslun - 01.08.1972, Síða 5
FRJÁLS
VERZLUN
8. TBL. 1972
ísland
í fréttum af innlendum vettvangi, sem að þessu sinni
birtast í Frjálsri verzlun, er m. a. fjallað um þá
gífurlegu aukningu, sem orðið hefur á innflutningi
gólfteppa til landsins á síðustu misserum. Með tolla-
lækkunum EFTA hafa erlend gólfteppi, sérstaklega
brezk, selzt hér í mjög auknum mæli. Árið 1974 verð-
ur enn tollalækkun á gólfteppum frá EFTA-löndun-
um, og eftir því sem FV hefur fregnað, hafa inn-
lendir teppaframleiðendur hugsað alvarlega um það
að leggja niður framleiðslu sína.
Samtíðarmaður
Við kynnum að þessu sinni samtíðarmanninn, Tómas
Þorvaldsson, útgerðarmann í Grindavík. Tómas stjórn-
ar fiskvinnslu- og útgerðarfélaginu Þorbirni h.f. í
Grindavík, og er auk þess formaður Sölusambands
íslenzkra fiskframleiðenda. í viðtalinu er rakin þró-
unarsaga Grindavíkur, frá þeim tíma, þegar ungling-
ar úr sveit skömmuðust sín fyrir að fara í verið til
Grindavíkur, fyrir nokkrum áratugum, og til þessa
dags, þegar Grindavík er meðal mikilvægustu út-
gerðarbæja á landinu.
Greinar og viðtöl
í þessum efnisflokki birtist nú grein eftir Ellert B.
Schram, alþingismann. í greininni segir Ellert frá
meðferð síðasta Alþingis á nokkmm málum, er bein-
línis snerta verzlunina, og því skilningsleysi, sem
verzlunin á að mæta hjá þingheimi. Þessu fylgja
nokkrar hugleiðingar þingmannsins um stöðu verzl-
unarinnar og hvernig hún þurfi að taka sig saman
í andlitinu til að treysta stöðu sína út á við.
Suðurnes
Blaðauki er helgaður Suðurnesjum. Gengið er á vit
yfirvalda í byggðarlögum á Suðurnesjum og forstöðu-
manna ýmissa atvinnufyrirtækja þar syðra. Rætt er
við forstöðumenn stofnana, er aðsetur hafa á Kefla-
víkurflugvelli, og fjallað um mikilvægi og vöxt hinn-
ar alþjóðlegu flugstöðvar þar.
Efnisyfirlit:
BIs.
í STUTTU MÁLI ............ 9
ísland
STJÓRNMÁL: Tíðinda að vænta
úr herbúðum allra flokka á
næstunni ..................... 11
Stóraukinn innflutningur gólf-
teppa ........................ 12
Auglýsingar á íþróttavelli
Þróttar ...................... 15
Heild h.f....................... 15
Útlönd
Færeyjar: Vandamól í sambandi
við inngöngu í EBE ......... 21
V.-Þýzkaland: Þungur róður fyr-
ir Willy Brandt ............ 23
Fjölmiðlar: Sjónvarpstími til
ráðstöfunar fyrir almenning í
Bandaríkjunum .............. 25
Greinar
og viðtöl
Hugur Alþingis til hagsmuna-
mála verzlunarinnar. — Eftir
Ellert B. Schram .......... 29
Samtíðarmaður: Tómas Þor-
valdsson, útgerðarmaður í
Grindavík ................. 33
Biðleikur. — Eftir dr. Guðmund
Magnússon prófessor ....... 39
Lög og réttur. — Prófkúruum-
boð. Heimildir og takmörk .. 41
Stjómun - Stjórnunarfræðsla —
Fyrsta grein í greinaflokki
um stjómun eftir Bergþór
Konráðsson, viðskiptafræðing 47
Auglýsingar: Auglýsingar og
fjölmiðlar ................ 53
Sambúð við erlend fyrirtæki .. 57
Sportver .................... 59
Cabana romm.................. 59
Kristján Ó. Skagfjörð ....... 61
Servo skjalabindi ........... 61
UM HEIMA OG GEIMA............ 63
FRÁ RITSTJÓRN ............... 64
FV 6-7 1972
5