Frjáls verslun - 01.08.1972, Page 61
stjórnunarfræðslu, og sam-
keppnisaðstaða evrópskra fyr-
irtækja yrði ekki bætt, fyrr en
þetta stjómunarbil yrði brúað.
Þessi skýring var almennt við-
urkennd og síðan fyrrgreind
bók kom út hefur framlag^ til
stjórnunarfræðslu í Evrópu
stóraukizt.
Þetta hefur einnig orðið til
að varpa ljósi á, að vandamál
þróunarlandanna verða ekki
eingöngu leyst með því að
senda þangað fjármagn og
flytja þangað háþróaða tækni.
Stjórnun rekstrar þessara
landa þarf að vera árangurs-
rík og þótt stjórnun sé í eðli
sínu alþjóðleg, þá verður að
laga hana að aðstæðum þess-
ara þjóðfélaga. Stjórnunar-
fræðsla á þannig greinilega
eftir að gegna veigamiklu hlut-
verki til aukningar hagvaxtar
í vanþróuðu löndunum.
í könnun, sem Efnahags- og
framfarastofnun Evrópu, OE-
CD, lét gera árið 1960 fann
hún 150 sjálfstæðar stofnanir
í Evrópu, er veittu námskeið í
stjórnunarmálum, en árið 1971
voru þessar stofnanir yfir 500
talsins. Og þó talið sé, að yfir
75% allrar stjórnunarfræðslu
fari fram innan fyrirtækjanna,
hefur verið varlega áætlað, að
meir en 2000 milljónum doll-
ara hafi auk þess verið varið
til stjórnunarfræðslu í OECD
löndum Evrópu árið 1971.
Hérler.dis hefur skilningur á
þýðingu stjórnunarfræðslu
einnig vaxið mikið. Stjórnun
hefur verið kennslugrein við
Viðskiptadeild Háskóla íslands,
Verzlunarskóla íslands, Tækni-
skóla íslands og fleiri fram-
haldsskólum og ýmsir aðilar
hafa reynt að bjóða mönnum
úti í atvinnulífinu upp á
stjórnunamámskeið, sem er
mjög mikilvægar þegar litið er
á það, að fæstir þeirra, sem nú
stjórna íslenzku atvinnulífi og
munu stjórna því um næstu
framtíð, hafa fengið formlega
menntun á því sviði. Sem
dæmi um þessa aðila má nefna
Stjórnunarfélag íslands, sem
var stofnað 1961 (en hliðstætt
félag hefur starfað í Banda-
ríkjunum frá 1923, Stjórnunar-
fræðsluna og Verkstjórnar-
fræðsluna, sem Iðnaðarráðu-
neytið hefur starfrækt og auk
þess hafa ýmis samtök at-
vinnurekenda og sjálfstæðir að-
ilar mjög aukið fræðslu sína
á sviði stjórnunar.
Kannanir, sem gerðar hafa
verið á íslenzkum iðnaði síð-
ustu ár hafa sýnt, að fram-
leiðni íslenzkra fyrirtækja er
verulega ábótavant og er því
ekki ólíklegt, að um sé að
ræða nokkuð stórt stjórnunar-
bil milli íslands og nágranna-
landanna í Evrópu, sem fslend-
ingar verða að brúa á næstu
árum, ef þeir ætla að verða
samkeopnishæfir á erlendum
mörkuðum og halda lífskjörum
á við þær þjóðir, sem þeir
bera sig gjarnan saman við.
Framtíðarhlutverk stjórnun-
ar er mikið og vaxandi. Með
stærri fyrirtækjum koma upp
ýmis ný stjórnunarvandamál
og stöðugt stærri verkefni og
viðameiri framkvæmdir krefj-
ast umfangsmeiri áætlana betri
skipulagningar en áður hefur
þekkst. Það þarf að fylgjast
með hinum öru markaðsbreyt-
ingum og stórfelldum tækni-
breytingum og leitast við að
hafa hemil á tækniþróuninni
og þeim vandamálum, sem
henni eru samfara. — Aukin
stjórnunarfræðsla og framfar-
ir í stjórnunarvísindum eiga
því hlutverki að gegna að gera
stjórnendum fært að ráða fram
úr þessum vandamálum og
valda þeim vaxandi kröfum,
sem gerðar eru til þeirra.
BÍLAHLUTIR
PKSTAK CIMIR lllX
prestolite
Kerti
Straumlokur
Alternatorar
Háspennukefli
og margt fleira
Kristinn Guðnason hf.
Klapp'aratíg 27 ....
FV 8 1972
49