Frjáls verslun - 01.08.1972, Síða 73
Kristján Ó Skagfjörð hf.
60 ára
Heildverzlun Kristjáns Ó.
Skagfjörð, átti nýlega 60 ára
afmæli, en hún er ein stærsta
heildverzlun hérlendis og
verzlar aðallega með matvör-
ur, veiðarfæri, byggingarvörur
og rafeindatæki.
Kristján Ó. Skagfjörð fékk
verzlunarleyfi á Patreksfirði
árið 1912, og verzlaði aðallega
með veiðarfæri og málningar-
vörur. Hann rak fyrirtækið
sem einkafyrirtæki til dauða-
dags, árið 1951. Árið 1952 varð
það svo hlutafélag og hefur
vaxið mikið síðan. Sem dæmi
um vöxtinn, voru aðeins þrír
starfsmenn hjá fyrirtækinu ár-
ið 1952 og var hlutaféð þá 90
þúsund krónur. Nú vinna þar
56 menn og er hlutaféð 6
milljónir.
Fyrirtækið hefur einkaum-
boð fyrir um 70 erlend fyrir-
tæki og er auk þess í stöðugu
sambandi við fjölmörg fleiri.
Þrátt fyrir það er meira en
helmingur verzlunarinnar nú
íslenzk vara og fer það hlut-
fall stöðugt vaxandi, enda er
lögð áherzla á að selja fremur
íslenzka vöru en innflutta, þar
sem um samkeppnishæfa vöru
er að ræða.
Verzlunin dreifir vörum um
ailt landið og hefur 12 sölu-
menn í þjónustu sinni. Fyrir-
tækið rekur tvö dótturfyrir-
tæki, sem eru Reykver í Hafn-
arfirði, þar sem síldarvinnsla
og reyking fer fram, og Haf-
ver h.f. í Reykjavík, sem er
fiskheildsölufyrirtæki. Einnig
eru sömu eigendur að Kristjáni
Ó. Skagfjörð og umboðs- og
heildverzluninni Steinavör.
Samkvæmt upplýsingum
Braga Ragnarssonar, fram-
kvæmdastjóra, er fyrirtækið í
örum vexti og jókst velta þess
um 40% á síðasta ári og hefur
vaxið um 20% það sem af er
þessu ári.
Fyrirtækið hefur nýlega
reist stóra vörugeymslu og
frystiklefa að Hólmsgötu 4, og
er verðmæti þeirrar byggingar
röskar 30 milljónir króna.
Næsta brýna byggingaverkefn-
ið er að reisa nýtt skrifstofu-
húsnæði, þar sem núverandi
skrifstofuhúsnæði er ekki
nema 160 fermetrar og vinna
þar 25 til 30 manns.
Það er frábrugðið með heild-
verzlun K.Ó.S. og öðrum fyrir-
tækjum, að meirihluti starfs-
fólksins á hlut í fyrirtækinu.
Öllum starfsmönnum eru gef-
in hlutabréf eftir fimm ára
starf, og geta þeir aukið við
hlutaféð með aukavinnu, sem
ýmist er greidd í hlutabréfum
eða peningum eftir óskum við-
komandi.
Bragi Ragnarsson sagði, að
þetta hefði marga kosti í för
með sér. Fyrirtækinu héldist
með þessu móti betur á fólki,
það væri áhugasamara og loks
væri það orðið þjálfaðir við-
takendur.
í stjóm félagsins eru nú Jón
Guðbjartsson, formaður, Har-
aldur Ágústsson og Margeir
Sigurjónsson. Framkvæmda-
stjóri er Bragi Ragnarsson.
SERVO
SKJALA-
BIIMDI
Heildverzlun Magnúsar Kjar-
an hefur á boðstólum nýtízku-
leg skjala- og bréfabindi, sem
framleidd eru undir nafninu
SERVO. Þessi bindi eru fáan-
leg í mörgum glaðlegum litum,
sem lífga upp á vinnustaðinn,
og koma líka að notum við
uppbyggingu á skjalavörzlu-
kerfum.
Hliðarnar á kili SERVO-
skjalabindisins eru ávalar og
er því auðvelt að ná taki á
því, þó að það standi þétt á
milli annarra bréfabinda. Kjöl-
urinn er gerður úr plasti, sem
auðvelt er að þrífa og það
skemmir ekki hillur eða borð.
Til þess að auðvelda flettingu
eru SERVO-skjalabindin búin
fjórum járngöfflum og sveigj-
anlegum kili.
Á lager hjá heildverzluninni
eru jafnan fyrirliggjandi
skjala- og bréfabindi í þrem
litum. Gegn sérstakri pöntun
er liægt að fá bréfabindin með
plastik-hliðarspjöldum og er
einnig hægt að fá firmanafn,
vorumeiki o. þ. h. prentað á
plastikspjöldin.
FV 8 1972
61