Frjáls verslun - 01.01.1973, Síða 47
isins, sjúkrasamlög o. fl. stofn-
anir sem fólk á samskipti við.
Þá þarf ríkið að koma laga-
breytingum og nýjum lögum
betur á framfæri með því að
birta kafla úr þeim á læsilegan
og aðgengilegan hátt í auglýs-
ingaformi. Á Norðurlöndum rík-
ir víðtækari upplýsingaskylda
gagnvart almenningi. sem náð
hefur tilgangi sínum.
— Hvað finnst þér um aug-
lýsingarnar gegn tóbaksnotk-
un?
Framkvæmd þess máls er
frá upphafi þannig, að slembi-
lukka ein ræður, hvort her-
ferðin skilar einhverjum ár-
angri eða ekki. Blaðaauglýs-
ingarnar, sem eru illa unnar,
mér liggur við að segja óunn-
ar, hafa á þessum stutta tíma,
síðan herferðin fór af stað, ver-
ið af mörgum mismunandi
gerðum, án nokkurs sýnilegs
samhengis, ekki er heldur um
að ræða tengingu við þær sjón-
varpsauglýsingar, sem notaðar
hafa verið. Þá er mér hulin
ráðgáta, hvað lagt er til grund-
vallar í dreifingu auglýsing-
anna og skiptingu þeirra milli
miðla. Svo hefur verið að sjá,
að hvaða blað sem er, eigi rétt
á birtingu auglýsinga gegn
reykingum, hversu ómerkilegt
sem það annars er. Ég vil vekja
athygli á þessari staðreynd, að
hér er verið að ráðstafa al-
mannafé, mínum peningum,
þínum — sameign okkar allra.
Fólki þætti sjálfsagt illt til
þess að vita, og myndi mót-
mæla, ef skolað væri niður um
salerni svo og svo miklu úr
sameiginlegum sjóði lands-
manna. Ég sé ekki, að þarna sé
eðlismunur á, heldur fyrst og
fremst spurning um aðferð við
að sóa peningum. Fyrst verið
var að setja lög um bann við
tóbaksauglýsingum, þá á að
fylgja því eftir, það er ekki
gert. Og úr því að einnig var
lögfest, að verja ákveðnum
hluta af tekjum tóbakssölunn-
ar gegn reykingum, þá bar
þeim aðilum, sem falið var að
annast framkvæmdina, að gera
allt, sem mögulegt væri til
þess að fjármagnið nýttist í
baráttunni gegn reykingum.
Þetta var hiklaust verkefni
fyrir auglýsingastofur, sem
þurfti að vinna að í fullri al-
vöru, en þess í stað var starfs-
manni við opinbera stofnun
falið verkefnið.
— Hvers vegna var ekki
auglýsingastofu falið verk-
efnið?
Ástæðan fyrir því, að verk-
efnið fór aldrei inn á auglýs-
ingastofu til vinnslu, var sú, að
pólitíkusar máttu ekki til þess
hugsa, að dreifing auglýsing-
anna yrði í höndum auglýs-
ingastofu, því þar með yrði
útséð um, að ekki yrði hægt
að skipta ráðstöfunarfénu bróð-
urlega á milli sín.
— Hver sér um framkvæmd-
ina af hálfu hins opinbera?
Framkvæmdin er í höndum
Hvað mundir þú gera, ef þú ynnlr
milljón í Happdrætti SfBS?
.ÖlflSHí
Við fjölgum í ár þeim vinningum sem
koma sér bezt, ekki fáum svimandi
háum. Vinningsupphæðin hækkar um 25
milljónir, sem fara mest í 500 og 200 og
100 þúsund kr. vinninga. Og 10 þúsund
kr. vinningum fjölgar um helming.
Vinningslíkur eru hvergi meiri.
Miðaverð 150 kr.
Verið með og gerið 1973 að happaári.
Happdrætti SfBS
— vinningur margra, ávinningur allra.
BORGA/
ffúsBH
FV 1 1973
47