Frjáls verslun - 01.06.1975, Blaðsíða 11
<3
25%
Erlend blaðakaup íslendinga:
Samdráttur um tæp
á innan við einu ári
Andrés önd jafnvel endursendur
Það sem af er þessu ári hefur sala erlendra blaða og tímarita
dregist verulega saman, enda verð þeirra hækkað mjög mikið,
bæði vegna hækkandi framleiðslukostnaðar í útgáfulöndunum,
og einnig og þá kannski aðallega vegna lækkunar á gengi islenzku
krónunnar. Dýrustu erlendu tímaritin munu nú kosta á fjórði’
hundrað krónur, en flest vinsælustu heimilisblöðin kosta þó enn
innan við 200 krónur.
Enginn tollur er greiddur af
prentuðu máli, sem flutt er inn
erlendis frá og hækka því geng-
isfellingar verð blaðanna hlut-
fallslega meira en þann inn-
flutning, sem tollar eru greidd-
ir af. Mun láta nærri, að sala er-
lendra blaða og tímarita hafi
minnkað um 25% á tæpu ári,
samkvæmt þeim upplýsingum
sem Frjáls verzlun fékk hjá
Innkaupasambandi bóksala á
dögunum.
ÞRJÚ AF HVERJUM
FJÓRUM BLÖÐUM DÖNSK
Um þrír fjórðu hlutar þeirra
erlendu blaða og tímarita, sem
flutt eru hingað til lands, koma
frá sama landinu. íslendingar
eiga sennilega ekki erfitt með
að giska á rétt land í þessu
sambandi, enda hafa ýmis
heimilisblöð þessarar nágranna-
þjóðar okkar verið vinsælt les-
efni hér á landi um árabil. Að
sjálfsögðu er átt við dönsku
blöðin. Samdrátturinn i blað-
sölunni hefur ekki síður komið
fram gagnvart dönsku blöðun-
um, en þeim blöðum, sem keypt
eru frá öðrum löndum.
Grímur Gíslason framkv.stj.
Innkaupasambands bóksala,
tjáði Frjálsri verzlun, að salan
á vinsælasta danska blaðinu
hefði fyrrum komist upp í 2800
eintök af hverju tölublaði, og
þar sem um vikublöð væri að
ræða þýddi þetta 11.200 eintök
á mánuði. Nú væri salan kom-
in niður í 1800 eintök, miðað
við vikuna, eða 7.200 eintök á
mánuði. Um þessar mundir
væri blaðið Hendens Verden
vinsælast dönsku blaðanna, en
lengi vel hefði Familie Journal-
en skipað þann sess. Þegar talað
er um vinsælustu blöðin í þessu
sambandi er átt við heimilis-
blöðin, enda eru flest þeirra
milli 20 og 30 blaða- og tíma-
rita, sem keypt eru frá Dan-
mörku í þeim flokki.
ANDRÉS ÖND i
SÉRFLOKKI
Aftur á móti má segja, að
myndasögublaðið Anders And
og Co. sé í algjörum sérflokki
meðal blaðanna, sem við kaup-
um af Dönum. Andrés er nú
seldur í 4.200 eintökum á viku
eða á sautjánda þúsund ein-
tökum á mánuði hér á landi.
Salan var lengi vel 4.800 eintök
á viku, en gengisfellingarnar
og verðhækkanir í framhaldi af
þeim hafa haft áhrif á Andrés
„Kreppan“ virðist koma jafnt
niður á öllum tcgundum blaða.
FV 6 1975
11