Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1975, Blaðsíða 79

Frjáls verslun - 01.06.1975, Blaðsíða 79
F.V.: — Hvaða verkefni ern það sem eru mest aðkallandi? Heimir: — Ég er búinn að nefna hafnargerðina, en auk hennar held ég að telja megi endurbætur á vatnsveitukerfi og holræsum brýnustu verkefn- in. Ég sagði áðan að staðurinn hefði byggst upp í skorpum. Vatnsveitu- og holræsakerfið ber þess merki og horfir til stórvandræða ef ekki verður eitthvað að gert hið allra fyrsta. Allar lagnir í þorpinu eru illa unnar og án verkfræðilegs und- irbúnings. Verksmiðjan býr við vatnsskort og mörg íbúðarhús eru vatnslaus mikinn hluta dagsins. Fyrir skömmu var verkfræðingur hér til þess að athuga málin. Hann telur að ekkert af því kerfi sem fyrir er sé nýtilegt. Það þýðir að við þurfum að endurbyggja allt kerfið í bænum, en allra fyrst verður að ná holræsunum burt úr höfninni, en þau liggja út i sjó alveg við frystihúsið. Ef vel hefði átt að vera hefði verk- fræðingur þurft að grípa inn í fyrir 15 árum. Við vonumst til að geta hafið endurbygginguna á þessu sumri, en þarna horf- um við fram á margra ára verk. Verkfræðiskrifstofa Stefáns Ól- afssonar, er að undirbúa verk- ið fyrir okkur en samkvæmt áætlun frá ársbyrjun 1975, áttu framkvæmdir við vatnsveitu- kerfið eitt að kosta 12V2 milljón króna. Til fróðleiks má geta þess að heildartekjur Raufar- hafnar í fyrra voru um 17 milljónir og má af því sjá að hér er um mikið átak að ræða fyrir staðinn. F.V.: — Getur Raufarhöfn boðið aðkomufólki upp á við- unandi húsnæði, ef það vili koma og setjast hér að? Heimir: — íbúum á Raufar- höfn hefur fjölgað verulega frá því 1973 og hefur það orðið til þess að húsnæðisskortur fór að gera vart við sig. En nú eru húsbyggingar hafnar hér eftir margra ára stöðnun á því sviði og hvorki meira né minna en 12 hús eru nú í smíðum. Það sem meira er þá eru húsin sem er verið að byrja á staðsett við götu, sem er hin fyrsta hér sem er unnin eftir viðurkenndum aðferðum, þ. e. það eru settar í hana lagnir og skipt um jarð- veg. Hún er hugsuð þannig að hægt verði að setja á hana var- anlegt slitlag eins og það er kallað. Annars hefur verið mjög erfitt að standa í hús- byggingum á Raufarhöfn. Hér vantar ótrúlega margt og þjón- usta er í lágmarki. Núna erum við að koma okkur upp véla- kosti sem ætti að gera okkur léttara fyrir. Við eigum jarð- ýtu, krana og nýkeypt er loft- pressa og traktorsskurðkrafa og fl. að ógleymdum steypubíl, sem er nýkominn hingað. Þá er ætlunin að koma líka upp steypustöð hér. Við teljum að slík stöð sé nauðsynleg og ætti hún að geta þjónað norðaustur- hluta landsins. En þó að hrepp- urinn sé að verða sæmilega vel búinn tækjum þá eru ýmis önnur þjónustusvið langt á eftir. Trésmíðaþjónusta hér er léleg, vélaviðgerðir takmark- aðar og verslunarþjónusta í al- gjöru lágmarki. Hér fást naum- ast brýnustu nauðsynjar. Allt þetta þarf að bæta sem allra fyrst. F.V.: — En verður húshygg- ing á Raufarhöfn ekki alltaf vafasöm fjárfesting þó svo að þessir þjónustuþættir verði bættir? Heimir: — Fyrir skömmu var gerð byggðaþróunaráætlun fyrir Norður-Þingeyjarsýslu. Þó við höfum margt við hana að athuga þá gefur hún okkur samt tilefni til þess að halda að hér eigi ýmislegt jákvætt eftir að gerast á næstu árum. í skýrslunni er gert ráð fyrir að á næstu tveimur árum verði unnið að uppbyggingu niður- suðu hér, trésmíðaverkstæðis, alhliða vélaverkstæðis og gerð fiskmóttöku fyrir frystihúsið. Þá er einnig gert ráð fyrir sjúkramóttöku og íþróttamann- virkjum auk þess sem 3—4 í- búðarhús verði byggð árlega. Ef þessi áform verða að raun- veruleika og við höldum áfram að horfast í augu við staðreynd- ir, þá er ég sannfærður um að Raufarhöfn eigi sér bjarta framtíð. Mörg ný hús eru nú í byggingu og húsnæðis- skortur gerir varf við sig. FV 6 1975 79
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.