Frjáls verslun - 01.06.1975, Blaðsíða 47
Hótelið
blasir við
þegar
ekið er
inn í
þorpið.
HóteS Norðurljós - aðsetur lax-
veiðimanna á Raufarhöfn
Veiðival í Reykjavík hefur á
undanförnum árum selt veiði-
leyfi til útlendinga í þrjár ár í
nágrenni Raufarhafnar. Góð
veiði hef'ur verið í ánum og
hafa þær öðlast sína föstu að-
dáendur sem heimsækja. þær ár
eftir ár. I upphafi bjuggu lax-
veiðimenn í veiðiskála á Rauf-
arhöfn á meðn þeir dvöldu þar
eystra, en nú hefur aðstaðan
verið bætt mikið. Veiðiniönn-
um er nú boðin gisting á Hótel
Norðurljósi, sem er 40 her-
bergja hótel. Hótelið blasir við
þegar ekið er inn í þorpið að
norðan. Það stendur niðri við
höfnina, eins og mciri hluti
byggðarinnar á Raufarhöfn og
úr setustofunni er útsýni yfir
bryggjurnar og höfnina. Starfs-
fólk hótelsins verður 15 talsins
í sumar, en hótelstjóri er Jónas
Sigurðsson.
SILUNGSVEIÐI í VÖTNUM
í viðtali við Frjálsa verslun
sagði Jónas að þó að útlending-
ar hefðu mest notað sér veiði-
aðstöðuna þarna, þá væri öllum
heimilt að kaupa veiðileyfi og
að gista í hótelinu. Að vísu er
nú uppselt í laxveiðiárnar, en
enn eru möguleikar að komast
í silungsveiði í vötnum, sem eru
í kringum Raufarhöfn. Góð
veiði er i mörgum þeirra og
eru það bændur í nágrenninu
sem selja leyfi í þau. Hótelið
hefur tekið upp þá nýjung að
bjóða upp á sjóstangaveiðiferð-
ir. Trilla, 8 tonn að stærð, í
eigu fyrirtaekisins liggur við
bryggju svo að segja við hótel-
dyrnar og er tilbúin fyrir gest-
ina, hvort sem þeir vilja renna
fyrir fisk eða skoða umhverfið
frá sjó.
FUNDARHERBERGI
Að sögn Jónasar hótelstjóra
hefur lítið verið gert af því að
auglýsa hótelið, en nú er búið
að koma allri aðstöðu í það gott
lag að óhætt er að bjóða gestum
að gera svo vel. Sérstaklega
taldi Jónast að hótelið væri
heppilegt fyrir minni ráðstefn-
ur og fundi. Sérstakt fundar-
herbergi er í hótelinu og með
litlum fyrirvara má útbúa
minni fundarherbergi í viðbót.
HÓTEL
VESTMANNAEY)AR
SlMI 98-1900.
• 30 gistiherbergi, eins, tveggja og þriggja manna.
• Fjölbreyttur matur í veitingasal og veitingabuð.
• Vínstúka.
• Diskótek öll kvöld nema miðvikudagskvöld.
• Skipulagðar skoðunarferðir um eldstöðvarnar og Heimaey.
• Opið allt áriðl.
FV 6 1975
47