Frjáls verslun - 01.06.1975, Blaðsíða 92
Síminn, sem Ernst hannaði.
hlutar, eins og of algengt er um
framleiðslu nýrra iðnaðarvara
hér.
Ernst er nýkominn frá námi,
eins og fyrr segir, og sagðist
hann ekki enn hafa fengið nein
umtalsverð verkefni. Hann
vinnur nú fremur að útfærslu
eigin hugmynda til að bjóða
framleiðendum og nú vinnur
t. d. eitt fyrirtæki að smíði hlut-
ar eftir hann. Ernst hefur á-
huga á hönnun hverskonar iðn-
aðarvara, sem aukið gætu fjöl-
breytni í útflutningsiðnaði okk-
ar.
Ernst Backman, iðnhönnuftur:
Iðnhönnun á að vera
þáttur í framleiðslunni
„Iðnhönnun cr alls ekki nægilega kynnt hérlendis og hún er ckki
komin hér inn sem þáttur eða hugtak í framleiðslunni eins og hún
er í öllum þróuðum iðnríkjum, sem ekki notast við gamlar utanað-
komandi hugmyndir, líkt og hér er talsvert um. Reyndar er ég
ekki nema annar tveggja útlærðra iðnhönn'uða hérlendis, fyrii
utan iðnhönnuði við listmunagerð, þótt þessi grein sé bráðnauð-
synleg hér ef útflutningsiðnaðurinn á ekki að dragast enn frekar
afturúr“, sagði Ernst Backman, iðnhönnuður, í viðtali við FV.
Hugtakið iðnhönnun er lítt
þekkt hérlendis, eins og fram
kom í upphafi spjallsins og báð-
um við Ernst að skýra stuttlega
starfssvið sitt. Hafi framleið-
andi hug á að hefja framleiðslu
á einhverjum ákveðnum hlut,
er hlutverk iðnhönnuðar að
safna öllum tiltækum upplýs-
ingum um hliðstæða hluti, ef til
eru, og hefja vinnslu úr þeim
gögnum. Finna vandamál,
hlutnum viðkomandi og leita
Torfi
Jónsson
auglýsinga-
teiknari
og Ernst
á vinnu-
stofunni.
Ernst lauk fjögurra ára námi
við Myndlistarskólann hér en
að því loknu fór hann sem
gestanemandi á fyrsta ári í
Konstfack skólann í Stokk-
hólmi. Að þeim vetri loknum
bauðst honum að sitja skólann
annan vetur, sem lokavetur, og
lauk hann þannig fjögurra ára
námsefni á tveim árum. Hann
er nýkominn heim og starfar
nú við fyrirtækið Grafik og
hönnun í Reykjavík. Prófverk-
efni hans var að hanna heppi-
legt löndunarkerfi úr togurum,
eða hringrás fiskkassa úr
þvottavél í frystihúsi um borð
í togarann, geymslu þar og
heppilega fyllingaraðferð, stöfl-
un fullra kassa, löndun þeirra
upp úr skipi aftur, flutning
til frystihúss, losun kassa þar
og aftur í þvottavélina. Af öðr-
um verkefnum má nefna að
hann hannaði síma sem síma-
framleiðslufyrirtækið Ericsson
keypti af honum, þótt ekki sé
enn ljóst hvort fyrirtækið hugs-
ar sér að nota hugmyndina eða
ekki. En þar er leitast við að
leysa það vandamál að þurfa
ekki að halda á tólinu þegar
talað er, en það er oft vanda-
mál þegar menn þurfa að skrifa
um leið og þeir tala.
heppilegra lausna þeirra. Hanna
hlutinn frá fagurfræðilegu sjón-
armiði og samræma hönnunina
pökkuniareiginleikum hlutarins
og flutningamöguleikum, sem
er þýðingarmikið atriði varð-
andi útflutning. Síðast en ekki
síst verður hluturinn svo að
samræmast markaðsfræðilegum
athugunum og falli öll þessi at-
riði saman, er til orðinn vel
seljanlegur hlutur. Með þessu
móti á ekki að ríkja óvissa um
markaðsmöguleika viðkomandi
92
FV 6 1975