Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1975, Blaðsíða 45

Frjáls verslun - 01.06.1975, Blaðsíða 45
Hótelið rekið í tengslum við félagsheimilið Hótel Húsavík: Á Húsavík er rekið stórt og glæsilegt hótel með gistiaðstöðu fyrir 68 manns. Hótelið var opnað 1973 og hefur frá upphafi verið rekið í nánum tengslum við félagsheimili staðarins sem er í hliðarálmu við hótelið. Þetta er fyrsta tilraun hér á landi til þess að tengja hótel og félagsheimili saman á þennan hátt og virðist margt benda til þess að samstarfið gefist mjög vel. Hin ýmsu félög á Húsavík eiga auðveldan aðgang að veit- ingasölum hótelsins þegar eitt- hvað sérstakt er um að vera á fundum hjá þeim og hótelið nýtur svo aftur góðs af sölu félagsheimilisins þegar það hýsir ráðstefnugesti eða tekur á móti stórum hópum í mat. FULLBÓKAÐ FYRIR SUMARIÐ Um sl. áramót var Einar Ol- geirsson ráðinn hótelstjóri á Hótel Húsavík, en Einar er gestum Hótel Sögu að góðu kunnur eftir margra ára starf þar. Frjáls verslun heimsótti hótelið fyrir skömmu og rabb- aði við hótelstjórann. Hann var mjög bjartsýnn, enda full á- stæða til, þar sem hótelið var þegar fullbókað fyrir sumarið og útlit fyrir að ferðamanna- straumurinn entist lengra fram á haustið en venjulega. — Það virðist vera að ferða- menn erlendis frá sæki meira til landsins en undanfarin ár. Trúlega má þakka það betur skipulögðum ferðum hingað og tiltölulega hagstæðara verði á hótelum. Verð á herbergjum er alltaf gefið upp í dollurum og verðið í sumar er hið sama og i fyrra. Gengisfellingin gerir það hins vegar að verkum að er- lendir ferðamenn koma nú ó- dýrar út úr þessum kostnaðar- lið, á meðan innlendir ferða- menn súpa seiðið af gengisfell- ingunni. En við erum nú að at- huga möguleika á einhverjum tilslökunum fyrir íslenska ferðamenn, þannig að þeim verði gert það auðveldara að dvelja næturlangt á hótelum en nú er, sagði Einar. Hótel Húsavík er reis,uleg bygging. KAFFITERÍA Á HÓTELINU Eins og áður segir er gistiað- staða fyrir 68 manns á hótelinu. Herbergi eru ýmist eins eða tveggja manna og eru þau hin vistlegustu. Matur er seldur í kaffiteríu, en þegar stærri hóp- ar koma eða veislur haldmar, þá er borinn fram matur í sal fé- lagsheimilisins. Þá er á döfinni að koma upp vistlegri setustofu með allri aðstöðu. Einar sagði að öll aðstaðan á staðnum hent- aði mjög vel fyrir ráðstefnu- hópa og væri þegar farið að berast nokkuð af pöntunum fyrir slíka hópa í sumar. — Ég held að staðir eins og Húsavík henti miklu betur fyrir ráðstefnuhald en stærri staðir. Hér er auðvelt að halda hópn- um saman við störf, því hér er fátt sem glepur hugann, sagði Einar. Síðan vék hann að því að um páskana í ár hefði verið gerð tilraun með fjölskylduferð- ir til Húsavíkur, sem hefðu Einar Olgeirsson, hótelstjóri. gefist mjög vel. Skíðaaðstaða í fjailinu fyrir ofan bæinn er góð og nú hefur ferðaskrifstofunni Útsýn verið falið að sjá um skipulagningu vetrarferða til Húsavíkur á næsta ári, sem menn binda miklar vonir við. — En það er ekki bara skíða- land og friðsæld sem við getum auglýst upp, heldur náttúran hér í kringum Húsavík. Það er hægt að fara dagsferðir frá Húsavík í heila viku og sjá alltaf nýjar og heillandi hliðar á íslenskri náttúru, sagði Einar Olgeirsson að lokum. FV 6 1975 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.