Frjáls verslun - 01.06.1975, Blaðsíða 71
fyrir umbótum á löggjöf er að
verzlunarmálum lýtur og hver
sýnist ykkur skilningur stjórn-
málamanna vera á |>örfum
verzlunarinnar?
Gísli: — Verzlunarráðið hef-
ur beitt sér fyrir að fá löggjöf,
sem lýtur að verzlun og við-
skiptum, gerða sem frjálsasta,
þannig að verzlunin geti sjálf
skipulagt sig á þann veg, að
hún starfi með hámarksafköst-
um. Það sem helzt virðist á
skorta að stjórnmálamenn
skilji, er, að verzlunin getur
verið án afskipta þeirra. Marg-
ir stjórnmálamenn halda að
útilokað sé að verzlunin geti
verið vel rekin, fyrst þeir hafa
ekki sett lög um allt, er lýtur
að rekstri hennar, bæði í smáu
og stóru. Starfsemi Verzlunar-
ráðsins hefur því bæði beinzt
að því að koma í veg fyrir ó-
þarfar lagasetningar og að
rýmka til á þeim sviðum, þar
sem áður hefur verið búið
að setja lög sem telja verður
óæskileg, svo sem leifar frá
haftastefnutímanum. Annars er
ekki hægt að segja að afskipti
Verzlunarráðsins viðvíkjandi
löggjafarstarfsemi einskorðist
við verzlunarmál, þar sem
þeir málaflokkar, sem Verzlun-
arráðið lætur einkum til sín
taka, eru skattamál, fjármál,
tollámál, verðlagsmál og önn-
ur löggjafaratriði sem lúta að
þeirri umgjörð, sem hið opin-
bera setur atvinnulífinu í heild.
Gísli Einarsson fylgist með daglegur störfum hjá Eggerti Kristj-
ánssyni og Co. í Sundagörðu«m í Reykjavík, cn þar er hann fram-
kvæmdastjóri.
Vér bjóðum yður góða þjónustu í verzlunum vorum:
MATVÖRUDEILD: Úrval matvara, búsáliöld.
VEFNAÐARVÖRUDEILD: Sportfatnaður, skór, gjafavörur.
BYGGINGAVÖRUDEILD: Veiðarfæri, viðleguútbúnaður.
ESSÓ-SKÁLI: Veitingar, matvörur, bcnzín, olíur.
Útihú á Blöiuluósi og Skagaströnd. — Eittlivað af öllu.
Verfð velkomin. KAUPFÉLAG HÚNVETNINGA Símí 95-4200, Blönduósi.
FERÐA
FÖLK:
FV 6 1975
71