Frjáls verslun - 01.06.1975, Blaðsíða 50
Sumarhótelið Stykkishólmi,
Bókhlöðustíg 4, sími 93-8231.
Gisting: 18 herbergi eru í sumarhótelinu, eins
manns á kr. 1825 tveggja manna á kr. 2585 og
þriggja manna á kr. 3485. Hótelið getur einnig
útvegað svefnpokapláss. Morgunverður, hlaðr
borð, kostar kr. 495, en aðrar máltíðir eru skv.
matseðli. Opið er frá 4. júni til 1. september.
Dægrastytting: Setustofa með sjónvarpi er í
hótelinu og í bænum er sundlaug. Ferðahópar
geta fengið bát á leigu til siglinga um Breiða-
fjörð, en einnig siglir flóabáturinn Baldur
nokkra daga vikunnar til Brjánslækjar, með
viðkomu í Flatey. Hótelið útvegar veiðileyfi í
Baulárvatni, Selvallavatni og í Hraunsfjarðar-
vatni.
Hótelstjóri: Hörður Sigurjónsson.
Hótel Bjarkarlundur,
Reykhólasveit, sími um Króksfjarðarnes.
Gisting: Hótel Bjarkarlundur býður ferðia-
mönnum m. a. gistingu í eins, tveggja og þriggja
manna herbergjum, heitan mat allan daginn,
kaffi, smurt brauð og kökur. í Verzluninni fást
smávörur fyrir ferðamenn. Benzín og smurolíur
eru afgreiddar til kl. 23.30. Bjarkarlundur er
góður áningarstaður fyrir þá sem leggja leið sína
um Vestfirði. Opið er frá 1. júní og þar til vegir
lokast.
Dægrastytting: Sjónvarp er í setustofunni.
Sundlaug er að Reykhólum, í um 15 km fjarlægð
frá Hótelinu. Hægt er að fá leigða báta á Beru-
fjarðarvatn. Bjarkarlundur er tilvalinn áningar-
staður á leiðinni til og frá Reykjavík. Þar er
fallegt landslag fyrir gönguferðir og stuttar öku-
ferðir m. a. upp á Þorskafjarðarheiði og að Húna-
flóa.
Hótelstjóri: Svavar Ármannsson.
Hótel Flókalundur,
Vatnsfirði, sími um Patreksfjörð.
Gisting: Ferðamönnum er boðið upp á gistingu
í eins, tveggja og þriggja manna herbergjum.
Snyrtiherbergi ásamt baði fylgir hverju her-
bergi. Heitur matur er seldur allan daginn, sömu
leiðis kaffi, smurt brauð og kökur. Verzlunin
selur m. a. öl og gosdrykki, tóbak, sælgæti og
ýmsar smávörur fyrir ferðamenn. Benzín og
smurolíur eru afgreiddar til kl. 23.30.
Dægrastytting: Setustofa með sjónvarpi í nýja
hótelinu. Sundlaug er að Birkimel, sem er í um
20 mín. akstur frá Flókalundi. Veiði: Silungs-
veiði í Vatnsdalsvatni.Frá Flókalundi er hægt að
fara í dagferðir til ýmissa staða á Vestfjörðum
s. s. Látrabjargs, í Arnarfjarðardali, til Patreks-
fjarðar og margra annarra staða á Vestfjörðum.
Hótclstjóri: Heba A. Ólafsson.
Gesta- og Sjómannaheimili
Hjálpræðishersins,
Mánagötu 4, ísafirði, sími 94-3043.
Gisting: Hjálpræðiisherinn hefur yfir að ráða
16 herbergjum en engum svefnpokaplássum. Op-
ið er allt árið um kring. Á gistiheimilinu eru 4
eins manns herbergi, en 12 tveggja manna. Verð
á tveggja manna herbergjum er: Á fyrstu hæð
kr. 1,200, en á annarri hæð kr. 1.000. Verð á
eins manns herbergi á fyrstu hæð er kr.. 850, en
á annarri hæð kr. 750. Morgunverðurinn er á kr.
300, síðdegiskaffið á kr. 250. Hádegisverður er
frá kr. 320, en kvöldverður er kr. 500.
Dægrastytting: Á gisti- og sjómannaheimilinu
er setustofa með sjónvarpi, útvarpi, góðum bók-
um og blöðum. Ýmislegt er hægt að gera sér til
skemmtunar í bænum t. d. iðka sund í Sundhöll
ísafjarðar. Ennfremur er hægt að fara í fjall-
göngur um nágrennið eða í dagsferðir um Vest-
firðina.
Forstöðumaður: Nils-Petter Enstad.
Hótel Mlánakaffi,
Mánagötu 1, ísafirði, sími 94-3777.
Gisting: Á Hótel Mánakaffi eru fjögur tveggja
manna herbergi, tvö eins og tvö þriggja manna.
Hægt er að koma við svefnpokaplássi, sé þess
óskað. Ennfremur getur hótelið útvegar her-
bergi í bænum. Opið er allt árið. Máltíðir eru
skv. matseðli og í veitingasalnum, sem er opinn
frá 8.00 til 23.30 eru einnig fáanlegir grillréttir.
Dægrastytting: Djúpbáturinn Fagranes siglir
á þriðjudögum og fimmtudögum frá ísafirði til
ýmissa hafna við Djúpið og aftur til ísafjarðar
samdægurs. Aðra tvo daga vikunnar siglir hann
m. a. til Bolungarvíkur, Önundarfjarðar og Súg-
andafjarðar. Á sjálfu hótelinu er setustofa með
sjónvarpi. í bænum er slundlaug. Margir fara
um ísafjörð á leið sinni út á Hornstrandir.
Hótelstjóri: Bernharð Hjaltalín.
50
FV 6 1975