Frjáls verslun - 01.06.1975, Page 28
RAUÐARÁRSTÍG 31
lögmálum frumskógarins. Fáir
hugleiða, hvílíkt vérk það er
fyrir stjórnai’skrifstofur að
leysa t. d. tindæmið hér að ofan
með gagnasöfnun og boðsend-
ingum um gervallt hagkerfið.
Fræðimenn hafa sýnt fram á,
að í fullkominni samkeppni við
bestu skilyrði sé þörfum neyt-
enda fullnægt í réttri forgangs-
röð eftir því, sem auðlindir hag-
kerfisins. frekast leyfa og miðað
við þann tekjujöfnuð,.sem ríkir
hverju sinni. Þau skilyrðþ sem
þarfbtil.að ná þessum árangri,
hafa Jxvergi verið fyrir hendi,
og í reynd eru gallar lausbeisl-
aðs markáðsbúskapar margir.
Geigvænlegustu vandamálin
eiga rætur að rekja til óstöðug-
leika kerfisins, hinna svoköll-
uðu hagsveiflna, og verðbólgu
og atvinnuleysis, sem þeim
fylgja. Ótamið markaðskerfi
sér þjóðinni heldur ekki fyrir
nauðsynlegri samneyslu, og
tekjuskipting getur verið óvið-
unandi. í boðum þeim, sem
ganga milli fyrirtækja og neyt-
enda er ekki tekið tillit til ým-
issa hliðaráhrifa af framleiðslu
og neyslu, svo sem mengun.
Loks má nefna, að ávallt er við-
búið, að ýmsir aðilar komist í
einkasöluaðstöðu og nái mikl-
um völdum yfir efnahagslífinu.
Hin ýmsu vandamál markaðs-
búskaparins vega á móti þeim
kostum, sem lýst hefur verið.
Úr mörgum þessara ágalla hef-
ur reynst auðvelt að bæta, en
aðrir hafa verið erfiðari við-
fangs. Mikilvægt er að gæta
þess, að sníða af vankanta án
þess að kostir markaðskerfisins
fari forgörðum, en þess hefur
ekki verið gætt sem skyldi. Til
dæmis um þetta má nefna ýms-
ar af þeim leiðum, sem farnar
hafa verið hér og erlendis, til
að bæta kjör lágtekjufólks.
HAGKERFI OG HAG-
VÖXTUR
Miðstjórn efnahagslífsins er
oft sagt það til ágætis, að með
slíku skipulagi megi ná örari
hagvexti en ef rekin er mark-
aðsbúskapur. Þessi skoðun er
svo almenn, að margir, sem yf-
irleitt aðþyllast markaðsskipu-
lag, mæla’ með miðstýrðum á-
ætlanabúskap handa þróunar-
FV 6 1975