Frjáls verslun - 01.06.1975, Page 41
á bátaútgex-ð og nú er verið að
fara af stað með rækjuvinnslu
þar sem heimamenn binda
miklar vonir við.
• Dalvík og
Ólafsfjörður
En ef við snúum okkur aftur
til Akureyrar og ökum norður
frá bænum að vestanverðu er
ekki síður margt að sjá þar en
austanmegin fjarðarins. Það er
t. d. gaman að heimsækja litlu
plássin við ströndina, svo sem
Hauganes og Hjalteyri, en þá
má einnig nefna staði eins og
Möðruvelli og Fagraskóg.
Um klukkustundar akstur frá
Akureyri er Dalvík. Dalvík hef-
ur nú fengið bæjarréttindi og
gegnir veigamiklu hlutverki
sem útgerðarbær og þjónustu-
miðstöð fyrir sveitirnar í kring.
Því miður er gistiaðstaða á
DAL.VÍK léleg, en það mun
standa til bóta þegar búið verð-
ur að byggja heimavist gagn-
fræðaskólans þar. Hótel Víkur-
röst á Dalvík býður hins vegar
upp á mat og kaffi og um helg-
ar er hægt að bregða sér þang-
að á dansleik. Svipaða sögu er
að segja um Ólafsfjörð, þar er
aðstaða fyrir ferðamenn lítil,
en það er ætlunin að bæta úr
því með tilkomu heimavistar á
sama hátt og á Dalvík. En þó
að erfitt sé að fá næturgistingu
á þessum tveimur stöðum eins
og er, þá ættu ferðamenn samt
ekki að láta það hjá líða að
heimsækja þá. Vegir þangað
eru greiðfærir að sumarlagi og
stutt að fara á gististaði bæði á
Akureyri og eins á Siglufirði.
# Siglufjörður og
Skagafjörður
Ef ferðamaðurinn kýs að fara
frá Ólafsfirði yfir Lágheiði til
Siglufjarðar þá býður staðurinn
upp á nokkuð góða aðstöðu fyr-
ir ferðamenn. Þar er Hótei
Höfn með 30 rúm og nokkru
svefnpokaplássi, en rétt innan
við bæinn er tjaldstæði. íþrótta-
og æskulýðsheimilið Hóll er
skammt frá tjaldstæðinu og þar
er ferðamönnum veitt eldunar-
aðstaða og hreinlætisaðstaða og
auk þess er þar gistiaðstaða
fyrir 20 manns. Inni í bænum
sjálfum er líka æskulýðsheim-
ili, sem getur hýst hópa þegar
þörf krefur.
Á Siglufirði eru nokkuð góð
sportflugskilyrði og þokkaleg
flugbraut, en enn vantar braut-
arskýli og vita á Siglunestá. Þá
er þarna góður íþróttavöllur,
sundlaug og kjörin aðstaða til
þess að stunda sjóstangarveiði.
Um klukkustundar akstur frá
bænum er Miklavatn, en þar er
yfirleitt góð silungsveiði.
Ef ekið er frá Siglufii'ði í
gegnum Strákagöng og um
Skagafjörð er margt að skoða á
þeim slóðum. Sögustaðir eru
margir í Skagafirði, en þar má
nefna Hóla, Víðimýri, Glaum-
bæ og fl. En því miður eru
ferðamál í Skagafirði skammt á
veg komin. Að vísu eru tvö
hótel í Varmahlíð og á Sauðái'-
króki sem eru rekin allt árið
um kring, en illa hefur gengið
með rekstur sumai'hótela þai’na.
Verzlun Jóns Bjarnasonar DALBRAUT 1 — BÍLDUDAL — SÍMI 94-2126.
• Kjötvörur. • Vinnufatnaður.
• Nýlenduvörur. • Byggingavörur.
• Vefnaðarvörur. • Málningarvörur.
• Búsáhöld. • Heimilistæki.
Rekstur söluskála frá 1. júní — 1. nóvember.
Umboð fyrir:
Flugfélag íslands — Skeljung — Álafoss.
FV 6 1975
41