Frjáls verslun - 01.06.1975, Blaðsíða 43
Miðnætursólin og Grímsey
verða stöðugt vinsælli
*
I Grímsey er einstaklega fjölskrúðugt fuglalíf
Grímsey er ein af perlunum, sem Norð'ijrland hefur upp á að
bjóða. Þar er fjölskrúðugt fuglalíf, sérkennilegt stuðlaberg og
falleg fjallasýn til lands. Vinsældir eyjunnar hafa farið mjög
vaxandi meðal erlendra ferðamanna og auk þess á hún líka fastan
hóp íslenskra aðdácnda sem heimsækja eyjuna gjarnan reglulega.
Sumarferðir
Drangs frá
Akureyri i eyna
Póstbáturinn Drangur á Ak-
ureyri á sinn þátt í þvi að gera
Grímsey að stað fyrir ferða-
menn þar sem hann hefur sér-
stakar sumarferðir á dagskrá
sinni fyrir þennan hóp. Þór-
ólfur Matthíasson, starfsmaður
hjá póstbátnum sagði í viðtali
við Frjálsa verslun að þessar
ferðir stæðu yfir frá 24. júni—-
29. julí og væri farið tvisvar í
viku út í eyju. Það er farið kl.
8 að morgni á þriðjudögum og
komið til Akureyrar samdæg-
urs og auk þess er farið kl. 18
síðdegis á föstudögum og komið
til Akureyrar síðdegis daginn
eftir.
MIÐNÆTURSÓLIN
— Ferðirnar eru mjög vin-
sælar, sérstaklega meðal er-
lendra ferðamanna, sagði Þór-
ólfur. — Það er í raun og veru
mjög eðlilegt að svo sé, þar sem
siglingin út Eyjafjörð er
skemmtileg í góðu veðri og eyj-
an er sérkennileg. Og síðast en
ekki síst þá fá heppnir ferða-
langar tækifæri til þess að sjá
miðnætursólina eins og hún
gerist fegurst.
Þórólfur sagði að það væru
þrjú ár síðan póstbáturinn tók
upp þessar beinu sumarferðir
til Grímseyjar. Siglingin út tek-
ur 6 tíma og kostar ferðin
1600—2000 krónur eftir því
hvort keyptur er farseðill með
eða án kojupláss. Þá er hægt
að fá keyptan mat um borð í
Drangi. Skipið tekur 60 far-
þega þegar vel viðrar. Skip-
stjóri er Steindór Jónsson.
SVEFNPOKAPLÁSS í
GRÍMSEY
Loks má geta þess að ferða-
langar sem vilja dveljast leng-
ur í eyjunni en þá tíma sem
Drangur stoppar, geta fengið
svefnpokapláss í eyjunni.
Grímsey er næst stærsta eyja
við ísland, en hún er 5.3 km
að stærð. Eyjan er 40 km norð-
ur af Gjögurtá.
Á myndinni má sjá nær alla byggðina í Grímsey, en þar eru
innan við 100 íbúar. Þeir eru duglegir og gestrisnir og þykir
mörgum ferðamönnum gaman að heimsækja þá, þegar Drangur
hefur skilað þeim á land í sólskini um miðnætti.
FV 6 1975
43