Frjáls verslun - 01.06.1975, Page 49
Vegna takmarkana á utanferðum núna, má búast við að fleiri eyði sumarleyfum sínum
til ferðalaga innanlands en áður. Margir hugsa sér þá sjálfsagt að gista í eigin tjöldum, en
sumir hafa ekki heilsu til þess, aðrir taka þægindi notalegra hótela fram yfir tjöldin, þrátt
fyrir kostnað, og flestir, sem eitthvað að ráði hafa ferðast með tjöld, þekkja hversu nota-
legt það getur verið að flýja á náðir hótelanna, þegar veður hafa gegnbleytt eða feykt tjöld-
um þeirra um koll. Því hefur FV nú tekið saman lista yfir hótel og gististaði um allt
land, til hagræðis fyrir lesendur sína, þegar þeir halda út á land í sumarieyfið.
Hótel Akranes,
Bárugötu, sími 93-2020.
Gisting: 12 eins, tveggja og þriggja manna
herbergi eru á hótelinu, en einnig er hægt að fá
leigð herbergi í bænum á vegum hótelsins. Verð
á eins manns herbergi er kr. 1790, tveggja manna
kr. 2535 og þriggja manna kr. 2835. Morgun-
verður kostar kr. 390 og aðrir réttir eru skv.
matseðli.
Dægrastytting: Á hótelinu er setustofa og vín-
bar. Sundlaug er í bænum og einnig mjög for-
vitnilegt byggðasafn. Frá Akranesi er stutt i
Borgarfjörð, á Mýrar og í Skorradal og fleiri
staði. Akraborgin siglir þrisvar á dag milli
Reykjavíkur og Akraness og áætlunarbilar fara
einnig oft í viku á milli sömu staða.
Hótelstjóri: Gunnar Guðjónsson.
Hótel Borgarnes,
Borgarnesi. símar 93-7119 og 93-7219.
Gisting: Hótel Borgarnes hefur yfir að ráða
19 he-rbergjum á hótelinu, sein eru eins, tveggja
og þriggja manna og 6 herbergjum í bænum.
Verð á eins manns herbergi er kr. 1790, á
tveggja manna herbergjum er verðið þrískipt:
Lítið herbergi kr. 2535, stórt hjónaherbergi þar
sem hægt er að koma inn tveim aukarúmum
kr. 2835 og hjónaherbergi með baði kr. 3955.
Verð á þriggja manna herbergi er kr. 3695 og
verð á aukarúmi kr. 860.
Morgunverðarhlaðborð er kr. 495, hádegisverð-
ur (kjötmáltíð) frá kr. 710 og kvöldverður frá
kr. 800. Fiskmáltíð er nokkru ódýrari en kjöt-
máltíð. Hótel Borgarne-s selur heitan mat allan
daginn. Opið er allt árið um kring.
Dægrastytting: Á hótelinu er setustofa með
sjónvarpi og sömuleiðis eru seldar þar vínveit-
ingar yfir sumartímann. Þar er ákjósanlegur án-
ingarstaður fyrir þá sem vilja sjá sig um í Borg-
arfirði og á Snæfellsnesi.
Hægt er að útvega veiðileyfi í nærliggjandi
vötnum. Áhugamenn um golfíþróttina geta spil-
að golf á 9 holugolfvelli í Hamarslandi fyrir of-
an Borgarnes. Áætlunarferðir eru til og frá
Reykjavík tvisvar til þrisvar á dag.
Á hótelinu er góð aðstaða fyrir 50—70 manna
fundarhöld.
Hótelstjóri: Geir Bjömsson.
Hótel Edda,
Reykholti Borgarfirði.
Gisting: 64 herbergi eru í þessu hóteli, sem er
nú opið í fyrsta sinn, jafnframt því sem ekki
verður hótelrekstur lengur að Varmalandi. Verð
á eins manns herbergi er kr. 1875 og á tveggja
manna kr. 2520. Svefnpokapláss í herbergi með
rúmurn og dýnum kostar kr. 780 en kr. 510 í
skólastofum. Opið verður til 31. ágúst.
Dægrastytting: Reykholt er vel sett í fallegum
Borgarfirðinum og er sögustaður. Á staðnum er
m. a. Snorralaug og fleiri gamlar minjar. í hótel-
inu er setustofa og sundlaug á staðnum. Stutt er
í Húsafell og Surtshelli, svo eitthvað sé nefnt.
Hótelstjóri: Jón Grétar Kjartansson.
FV 6 1975
49