Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1975, Page 65

Frjáls verslun - 01.06.1975, Page 65
fellt áhrifaminni og hafa í auknum mæli eySandi víxlá- hrif. Stöðug nærvera einbættis- og stjórnmálamanna og sam- ræming á afskiptum þeirra er orðin nauðsynleg, eigi efna- hagslífið að geta starfað stórá- fallalaust, enda framkalla af- skipti þeirra á einu sviði ávallt ný vandamál á öðrum sviðum. HVAÐ MA HELZT GAGNRÝNA? Gallar á fyrirkomulagi íslenzkr- ar hagstjórnar ættu að hafa orð- ið flestum ljósir á s. 1. ári. Að vísu er hluti núverandi vanda- mála versnandi viðskiptakjör, en það er einnig ljóst, að stjórn- völd gátu ekki sinnt þeim dag- legu afskiptum af efnahagslíf- inu, sem gerð hafa verið nauð- synleg. Spurt er um hverja einstaka þætti efnahagsráðstafana nú- verandi ríkisstjórnar megi helzt gagnrýna og eru hér nefnd eft- irfarandi atriði. 1. Skattar Sú mikla hækkun óbeinna skatta, sem átt hefur sér stað, gerði lækkun beinna skatta mögulega. Slæm greiðslugeta ríkissjóðs um áramót ásamt erfiðleikum við lækkun ríkisútgjalda mun sennilega valda ríkis- sjóði greiðsluerfiðleikum allt þetta ár. Hækkun skatta hjá fyrirtækjum með lækkun stuðulsfyrningar er ekki til þess fallin að efla atvinnulíf- ið. Nær hefði verið að endur- skoða afskriftarreglurnar þannig að verðhækkunar- stuðulinn komi til hækkunar á bókfærðum eignum fyrir- tækjanna, en ekki afskriftar- upphæðinni. 2. Afnám to'la, niðurfelling söluskatts Lækkun vöruverðs er góðra gjalda verð, en það, að fella niður gjöld á ákveðnum vörutegundum, en ekki öðr- um, eykur verðmisræmið og hefur skaðleg áhrif á fram- leiðslu þjóðfélagsins og neyzlu. Hér er enda aðeins verið að kaupa vísitölustig ódýrt. 3. Flugvallargjald Þetta flugvallargjald, sem er mun hærra en í öðrum lönd- um, er sett til þess að draga úr ferðalögum landsmanna. Ef ætlunin væri að láta flug- velli standa betur fjárhags- lega undir þjónustu sinni, þá hefðu tekjustofnar þeirra, sem eru lendingargjöldin, auðvitað verið hækkuð, en ekki verið settur á nýr skatt- ur. Það er hin venjulega leið allra fyrirtækja. 4. Skyldusparnaður Skyldusparnaður ber öll ein- kenni valdbeitingar og sýnir hvert stjórn efnahagsmála stefnir. Nær hefði verið að skattleggja sömu aðila fyrir þessari upphæð, þar sem hún er þeim hvort sem er töpuð og verður ekki endurgreidd nema með jafnhárri skatt- heimtu. Hætt er við að nú, þegar horfið hefur verið að því ráði að setja á skyldu- sparnað, verði sá tekjustofn ríkisins aukinn ár frá ári. 5. Lántökuheimildir Að ríkissjóður eða opinberir aðilar taki lán hjá lífeyris- sjóðunum til þess að lána húsbyggjendum og atvinnu- vegum er skrýtin ráðstöfun, þar sem allt lánsfé lífeyris- sjóðanna fer hvort sem er til þessara aðila. Þessi ráðstöf- un sýnir einungis vantrú rík- isvaldsins á að markaðurinn stýri fjármagninu til þeirra framkvæmda, sem ríkið tel- ur að hafa beri forgang, eins og það heitir, hvort sem það stafar af því að ríkisvaldið vantreystir hæfni markaðs- kerfisins eða arðsemi fram- kvæmda sinna. Aðrar aukn- ar lántökur ríkissjóðs koma til með að skerða ráðstöfun- arfé bankanna og auka um- svif hins opinbera á -kostnað atvinnuveganna. Er það mið- ur, þar sem með þvi er fram- kvæmdum, sem skila arði, strax frestað á kostnað fram- kvæmda, sem skila arði síð- ar. EKKERT MIKILVÆGARA EN VINNUFRIÐUR Eins og fram kemur í því, sem hér hefur verið sagt, hafa ráðstafanir í efnahagsmálum ekki verið gerðar til þess að bæta hag atvinnulífsins, heldur virðist svo sem þeim hafi ein- ungis verið ætlað að auðvelda lausn yfirstandandi kjara- deilna. Ef í ljós kemur, að með því hafi tekizt að forða stórá- tökum á vinnumarkaðinum og aðrar betri leiðir hafi af ein- hverjum ástæðum ekki verið færar, verður að telja að vel hafi tekizt, þrátt fyrir allt, þar sem ekkert er atvinnulífinu mikilvægara en vinnufriðurinn. En ef verkföll brjótast samt sem áður út og verða víðtæk og langvarandi, verður að telja að til meira ógagns en gagns verði unnið með setningu efnahags- laga ríkisstjórnarinnar. Við núverandi aðstæður í efnahagsmálum hefur tekizt að halda fullri atvinnu með rýrn- un kaupmáttar. Eigi hins vegar að bæta þá kaupmáttárskerð- ingu, sem næst að fullu í sumar, leiðir það óhjákvæmilega til verðbólgu og atvinnuleysis. Að- ilum vinnumarkaðarins er því mikil vandi á höndum að stilla kauphækkunum svo, að til sem mestra heilla horfi fyrir þjóð- félagið í heild sinni. SJAVARFRETTIR, sérrit þeirra, sem fylgjast með sjóvarútvegi og fiskiðnaði. Eingöngu selt í áskrift. • Áskriftarsímar 82300 - 82302. SJÁVARFRÉTTIR, LAUGAVEGI 178, REYKJAVIK. FV 6 1975 65

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.