Frjáls verslun - 01.06.1975, Blaðsíða 82
Raufarhöfn til 1972 og að sögn
Karls varð það til þess að
hleypa nýju lífi í atvinnumál
staðarins, enda aflaði það helm-
ings þess hráefnis sem var unn-
ið í frystihúsinu.
— Það var með tilkomu Jök-
uls að fólki á staðnum hætti
að fækka, sagði Karl, en þegar
ráðist var í kaup á Rauðanúp
árið 1971 snerist þróunin við
og fólksfjölgun varð hér. Rauði-
núpur var keyptur frá Japan
og er 480 tonn að stærð. Hann
kom til landsins 4. apríl 1973.
Það hefur verið auðvelt að
manna skipið og rekstur þess
gengið áfallalítið, þrátt fyrir
tortryggni sem mætti honum
strax í upphafi. Og nú er svo
komið að flestir íbúar staðarins
vinna á einhvern hátt í tengsl-
um við fyrirtækið. Við höfum
meira að segja getað skapað
unglingum niður í 12 ára aldur
sumarvinnu í fiski, en það er
meira en margir stærri staðir
geta státað af.
Þegar Karl var inntur eftir
Smóbáta-
aðstaða
er mjög
slæm í
höfninni.
útkomu fyrirtækisins sl. ár.
sagði hann að afli hefði verið
tæplega í meðallagi. Heildar-
aflinn sem barst á land var
3800 tonn, en þar af var Rauði-
núpur með 2100 tonn.
— Því ber ekki að neita að
fjárhagsafkoman sl. ár var slök,
sagði Karl. En þrátt fyrir það
erum við sannfærðir um þýð-
ingu fyrirtækisins og bjartsýnir
á framtíð þess. En okkur finnst
við njóta mjög lítils skilnings
hjá hinu opinbera. Við höfum
ekki fengið leyfi fjárfestinga-
sjóða til þess að hefja ýmis að-
kallandi verkefni, svo sem end-
urbætur á fiskimóttöku frysti-
hússins og úrbætur á höfninni
svo maður tali nú ekki um
lánatökur til þess að láta
draum okkar rætast um að
kaupa hlut í öðrum skuttogara
til þess að tryggja enn frekar
atvinnuöryggi staðarins og
rekstur fyrirtækisins Jökuls hf.
EYJAFLUG BJARNA JÓNASSONAR
LEIGUFLUG MILLI LANDS OG EYJA.
EINNIG BÍLALEIGA:
Nýir bílar.
Athugið breytt símanúmer: 98-1534 Eyjum — 10880 Reykjavík
8.6946 EYJUM
í>* 8.10880 R.VÍK
82
FV 6 1975