Frjáls verslun - 01.01.1977, Qupperneq 9
Innan Stjórnarráðsins
gengur sú saga að Guð-
mundur í. sendiherra í
Svíþjóð verði senn sendi-
herra íslands hjá NATO
í Briissel. Hann á að vera
þar í tvö, þrjú ár, eða
þar til sendiherrann verð-
ur sjötugur. Mörgum em-
bættismanninum finnst
að betur hæfði að senda
ungan og fullfrískan
mann til Briissel bæði
vegna Atlantshafsbanda-
lagsins og Efnahags-
ba.ndalags Evrópu. Tóm-
as Tómasson, sendiherra
í Briissel, fer víst til Sam-
einuðu þjóðanna.
Athygli vakti þegar
rússneskir sendiráðs-
starfsmenn. sem flytja
áttu ,diplómatapóst“ frá
Kaupmannahöfn til Is-
lands neituðu að fara í
gegnum vopnaleitartæki
eins og allir flugfarþegar
eiga að gera. Rússarnir
ku enn streitast við og
munu nokkrir flugstjórar
Flugleiða hafa neitað
'þessum diplómötum um
flutning nema þeir færu
eftir settum reglum á
Kastrupflugvelli. Þessu
taka Rússar með stóískri
ró og bíða bara eftir
annarri vél eða öllu
heldur öðrum flugstjóra,
sem vill taka þá með þó
vopnaleitinni sé sleppt.
Það mun vera skoðun
forystumanna Sambands-
ins að nú sé orðið nauð-
synlegt, að forstjórarnir
verði tveir, vegna þess
hve fyrirtækið er risa-
vaxið. Erlendur Einars-
son er víst þreyttur á
sínu hlutverki og vill fá
annað starf. Hann mun
hafa beðið Einar Agústs-
son um sendiherrastöðu
en utanríkisráðherra ekki
talið slíkt starf liggja á
lausu. Þá er bara seðla-
bankastjórastarf eftir, ef
það þá fæst.
Bílaskip bílainnflytj-
enda á að hefja siglingar
í marzmánuði eftir því
sem síðustu fréttir
herma. Enn hefur ekki
verið ákveðið hver eigi
að veita nýja skipafélag-
inu forstöðu. Sagt er að
einn aðalhvatamaðurinn
að stofnun félagsins, Þór-
ir Jónsson hafi mikinn
áhuga á að fá Sigurð
Njálsson, fyrrum for-
stjóra Hafskips, til að
taka að sér forstjórastarf-
ið hjá nýja útgerðarfyrir-
tækinu.
Annar stórforstjórinn
á í erfiðleikum um þess-
ar mundir. Stjórn Eim-
skips er sögð óánægð með
200—300 milljón króna
fjárfestingu Othars Möll-
er í ryðvarnarstöð félags-
ins. Bílainnflytjendur
eru u.þ.b. að hætta að
flytja bíla með Fossun-
um vegna þess hve flutn-
ingsgjöld eru óeðlilega
há. Þá eru aðrir innflytj-
endur einnig óánægðir
og segjast þeir greiða nið-
u.r aðrar vörur, sem flutt-
ar eru með skipum félags-
ins, svo sem fisk og ann-
an útflutning. Eimskip
'hefur t.d. reynt að ná til
sín saltfiskútflutningnum
frá litlu skipafélögunum
með undirboðum.
Cargolux, vöruflutn-
ingaflugfélag Flugleiða í
Luxemburg, gengur ekki
eins vel og til skamms
tíma. Það stafar af auk-
inni samkeppni flugfé-
laga eins og t.d. Luft-
hansa sem notar Jumbo-
þotur til vöruflutninga
milli meginlands Evrópu
og Hong Kong. Félagið
hefur þannig náð í góðan
bita af varningi sem
Cargolux hefur til þessa
flutt. Yfirvöld í Hong
Kong og víðar þar austur
frá eru ekki allt of ánægð
með aukið fraktflug stóru
félaganna og kanna
möguleika á að vernda
sín eigin félög, en Cargo-
lux mun njóta góðs af
því.
FV 1 77
9