Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1977, Page 13

Frjáls verslun - 01.01.1977, Page 13
Meðal- nýting skipa Skipaút- gerðarinnar hefur verið um 20%. Úti fyrir Norður- landi er hún 5—10%. Um 2% vöruflutn- inga fara fram með flugi. Heildar- nýting vöruflutn- ingabíla er talin vera um eða yfir 60%. nýtingin e,r miklu lakari en hér er á minnst. Ekki liggja fyrir neinar nýlegar tölur um flutn- ingana innbyrðis milli annarra landshluta en Reykjavíkur- svæðisins. Flutningar flutningabílanna eru yfirleitt mjög vei skipu- lagðir og geta þeir boðið allt að daglegar ferðir milli Reykja- víkur og fjarlægra landshluta. Sérstaklega er þó góð aðstaða þeirra er flytja á vegum Vöru- flutningamiðstöðvarinnar hf., en þar er öll aðstaða til vöruaf- greiðslu hin fullkomnasta. Einnig e,r það eftirtektarvert, að flutningabílarnir bjóða þá þjónustu að sækja vörur til sendanda, þegar um stórar sendingar er að ræða, og aka þeim heim til móttakanda. Hef- ur þetta styrkt mjög samkeppn- isaðstöðu vöruflutningabílanna gagnvart flutningum með skip- um, en Flugfélag íslands hefur einnig tekið upp þessa þjón- ustu. Þrátt fyrir gott skipulag á flutningum milli Reykjavíkur og annarra landshluta skortir víða á, að flutningar milli svæða í landshlutunum eða milli landshlutanna séu nægi- lega vel skipulagðir. Er þannig oft erfiðleikum háð að koma vörum milli tiltölulega ná- lægra staða þótt auðvelt sé að koma þeim milli Reykjavíkur og hvors þeirra fyrir sig. SKIPULAGSVANDAMÁL Það, sem hér er sagt að fram- an, á aðallega við um flutninga á löngum leiðum. Ekki eru til neinar upplýsingar um flutn- inga í íheild á stuttum leiðum, enda er þar um að ræða flutn- inga í svo víðri me.rkingu að engar skýrslur eru til um þá alla og ómögulegt að afla full- kominnar vitneskju um þá nema með ýtarlegri umferðar- talningu, þar sem flutningur hvers bíls um sig er kannaður, og þarf slík athugun að fara fram nokkrum sinnum á einu ári til þess að öruggt geti talist. Talsverð skipulagsvandamál eru í sumum þessara flutninga Má þar nefna að á undanförn- um árum hefur átt sér stað svo- kölluð tankvæðing í sveitum, þannig að mjólkurbílarnir, sem áður voru algengir, þ.e. svo- kallaðir hálfkassabílar, sem höfðu rúm bæði fyrir farþega og vörur, eru að mestu úr sög- unni. Þessir bílar gátu sinnt ýmsum flutningaþörfum á við- komandi svæðum, því auk mjólkurflutniniga fóru gja,rnan fram með þeim póstflutningar, farþegaflutningar og heimsend- ing á vörum frá verslunum. í nágrannalöndunum, svo sem Svíþjóð og Noregi, hefur mikil áhersla verið lögð á það í dreif- býli að skipuleggja flutninga þannig að sömu bílarnir geti L FV 1 77 13

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.