Frjáls verslun - 01.01.1977, Side 15
Skyggnzt inn í sovét-
samfélagið
James l\l. Wallace, fréttamaður bandaríska vikuritsins L. S. IVews
&. World Report segir frá kynnum sínum af Sovétmönnum og greinir
frá viðhorfum þeirra til innanlandsmála og þess sem gerist
á alþjóðavettvangi
Fyrir nokkru birtist í bandaríska vikuritinu U.S. News and World Report athyglisvert viðtal
við James N. Wallace, sem starfað hefur sem forstöðumaður skrifstofu tímaritsins í Moskvu og
hefur sem fréttamaður átt þess kost að ferðast talsvert um Sovétríkin og hitta að máli fulltrúa
hinna ólíku þjóðfélagshópa þar í landi. Hér fer á eftir ágrip af þessu viðtali, en í inngangi að
því varpar blaðið fram þeirri spurningu, hvort Sovétríkin séu hugsanlega að verða Bandaríkjun-
um keppinaufur hvað lífskjör snertir, frelsi og stjómmálalegan stöðugleika eða hvort samfélagið
þar eystra sé staðnað, ófært um að meðtaka nýjar hugmyndir?
Blaðamaður U.S. News, sem
ræddi við Wallace, rifjaði upp,
að margir Bandaríkjamenn
veltu því fyrir sér, hvort Sovét-
mönnum væri raunverulega
treystandi og bað Wallace að
segja skoðun sína á því.
Hann svaraði: — Þetta er
sérlega erfið spurning vegna
þess að sömu orðin hafa mis-
munandi merkingu fyrir okk-
ur og Sovétmenn og vegna þess
hve gildismatið er frábrugðið.
Þá er það breytilegt hvernig
mönnum er treystandi og að
hvaða marki. Ég held, að hver
einasti kaupsýslumaður á Vest-
urlöndum muni taka undir það,
að Rússar leggja sig alla fram
um að standa við alla skil-
mála skriflegra samninga, og
þeir búast við hinu sama af
viðskiptavininum. En getum
við treyst því að þeir reyni
ekki að svindla á samkomulagi
James N. Wallace fyrir utan
Kreml í Moskvu.
um kjarnorkuvopn? Ég er ekki
viss um að þeim sé treystandi
að því leytinu. Enginn útlend-
ingur í Moskvu getur sagt til
um hvort þeir hafi svindlað
með þessum neðanjarðarspreng-
ingum, sem blöðin sögðu frá
fyrir tveimur eða þremur mán-
uðum. Með dvöl minni í Moskvu
hef ég hins vegar komizt að
staðréynd, sem er miklu mikils-
verðari: Bandaríkjamenn veita
því ekki nógu mikla athygli,
sem Sovétmenn segja heima hjá
sér og hvað það merkir fyrir
þeim. Þegar Ford forseti segir
að stefna okkar sé að koma í
veg fyrir heimsstyrjöld þá þýð-
ir það að komið skuli í veg
fyrir heimsstyrjöld, punktur.
En fyrir sönnum Sovétmanni
þýðir þessi setning í raun að
koma eigi í veg fyrir að „heims-
valdasinnarnir" ráðist á Sovét-
ríkin, sem er allt annar hlutur.
FV 1 77
15