Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1977, Side 39

Frjáls verslun - 01.01.1977, Side 39
Skúli póstur. og fékk gistingu á Gistiheimil- inu Höfn. Daginn eftir fékk ég þær upplýsingar að Flugfélagið myndi fljúga um hádegið. Ætl- unin var að komast áfram á Bíldudal, Sveinseyri og Pat- reksfjörð. Ég hafði tvo valkosti. Annar var sá að taka Flugfé- lagsvélina til Reykjavíkur enda komin helgi sem yrði lítt nota- drjúg og koma svo með vél að sunnan til Patreksfjarðar á mánudeginum og freista þess að komast landveg til Bíldu- dals eða stóla á að Hörður flygi póstflug og kæmist ég þannig á Patreksfjörð. En þegar ég frétti að Hörður hefði flogið suður með vél sína til skoðunar fyrr í vikunni og hygðist fara á námskeið þar sem hann er að fá nýja Islander- flugvél til farþegaflutninga, ákvað ég að fara suður. Næsti mánudagur: — Flugfélag íslands innan- landsflug. Ég ætlaði að athuga flugið til Patreksfjarðar? — Því miður, það er ófært. Athuga klukkan 12. Klukkan 12: —- Flugfélag íslands innan- landsflug. Ég ætlaði að athuga hvort væri orðið fært til Pat- reksfjarðar? — Því miður. Athuga klukk- an 2. Klukkan 2: — Flugfélag íslands innan- landsflug. Ég er að kanna flug- ið til Patreksfjarðar. — Við erum búnir að aflýsa flugi til Patreksfjarðar í dag. Athuga klukkan 9 í fyrramálið. Það var fært í þetta sinn. Mjólkin komin loftsins vegu til Þingeyrar. STJÓRNUNARFRÆÐSLA Stjórnunarfélags íslands NÁMSKEIÐ í FEBRÚAR: Frumatriði rekstrarhagfræði. Leiðbeinandi: Brynjólfur Sigurðsson lektor. Haldið mánud. 7.2. til föstud. 11.2. kl. 15-19.25. Tímafjöldi samtals 22 klst. Fjármál fyrirtækja I Leiðbeinandi: Árni Vilhjálmsson prófessor. Haldið mánud. 14.2., þriðjud. 15.2., miðvikud. 16.2., fimmtud. 17.2., mánud. 21.2. og þriðjud. 22.2. kl. 15-19. LE AP-st j órnunarnámskeið. Leiðbeinandi: Árni Árnason rekstrarhagfræðingur. Haldið laugard. 26.2. kl. 13-18, sunnud. 27.2. kl. 10-13. Tímafjöldi samtals 8 klst. TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU MEÐ GÓÐUM FYRIRVARA. GERIST MEÐLIMIR. KYNNIÐ YÐUR RIT STJÓRNUNARFÉLAGSINS. STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS, SKIPHOLTI 37, REYKJAVÍK. SÍMI 82930. FV 1 77 39

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.