Frjáls verslun - 01.01.1977, Blaðsíða 43
toga, að íslendingar þekkja þar bæði sjálía sig
og umtiverí'i sitt og njota í senn spaugsemi og
aivörunnar, sem þar er að íinna.
iNytt isienskt ieiKrn Æskuvmir eítir bvövu
Jakobsdottur, sjonleikurinn um konuna, sem
ekki er lengur húsráöanOi i sínu eigin husi, var
írumsynt í haust undir leikstjórn tírietar ±ieö-
msaottur og svo ui samtímis var írumsýnt 1
/\usturbæjarbíoi, útibúsleiksviði Leikielags
Reykjavikur gamanleikurinn Kjarnorka og
kvenhylli eftir Agnar Þórðarson, og rennur allur
ágóði af þeim f jöruga ádeiluleik tii húsbygginga-
sjóðs Leikfélags Reykjavíkur. Leikstjóri er big-
riður Hagalín.
Fyrir utan íslensku verkin er gamanseminni
haldið á lofti i Iðnó í léttum skopleik, Stórlöx-
um, eftir ungverska ieikskáldið Ferenc Molnár.
Þar eru einka- og athafnalíf stórvirkra banka-
stjóra höfð að yrkisefni. Leikstjóri er Jón Hjart-
arson.
Um miðjan janúar hófust æfingar á enn tveim
íslenskum leikritum. Það eru Straumrof eftir
Halldór Laxness og nýr gamanleikur eftir Kjart-
an Ragnarsson. Halldór Laxness skrifaði Straum-
rof árið 1934. Var það fyrsta leikritið sem hann
skrifaði og hefur ekki sést á sviði síðan og verið
ófáanlegt á prenti um árabil. Straumrof verður
frumsýnt í Iðnó á sama tíma og Helgafell gefur
leikinn út í nýrri útgáfu. Brynja Benediktsdóttir
leikstýrir Straumrofi.
Vorgaman leikhússins verðui- síðan gaman-
leikurinn eftir Kjartan Ragnarsson og nefnist
leikritið Blessað barnalán. Þar segir frá spaugi-
legum atburðum í stórri fjölskyldu austur á
fjörðum. Höfundurinn er sjálfur leikstjóri að
verkinu.
• Þjóðleikhúsið
Verkefni Þjóðleikhússins á útmánuðum eru
margvísleg. Fjögur leikrit verða sýnd á stóra
sviðinu, þar af eitt barnaleikrit og ennfremur
listdanssýning. Á litla sviðinu eru tvö leikrit í
gangi.
Sólarferð er nýtt leikrit eftir Guðmund Steins-
son, sem hlotið hefur mikla aðsókn. Leikritið
lýsir á gamansaman hátt ferðalagi tveggja hjóna
suður í lönd að sóla sig. Með aðalhlutverkin fara
Þóra Friðriksdóttir og Róbert Arnfinnsson, en
leikstjóri er Brynja Benediktsdóttir. Sólarferð
var frumsýnd 18. september á síðasta ári.
Hið gamalkunna þjóðlega leikrit Gullna hliðið
er nú sýnt í þriðja sinn á stóra sviði Þjóðleik-
hússins og í nýjum búningi. Leikrit þetta var
frumsýnt á annan jóladag. Leikstjóri er Sveinn
Einarsson, en Guðrún Stephensen leikur kerl-
ingu að þessu sinni, Helgi Skúlason Jón bónda
og Erlingur Gíslason leikur óvininn.
Thorbjörn Egner hefur verið mjög vinsæll
Úr sýningu á Gullna hliði Þjóðleikhússins.
bai’naleikritahöfundur og nú eru hafnar sýning-
ar á leikriti hans Dýrin í Hálsaskógi, en það var
sýnit hér í fyrsta skipti fyrir fjórtán árum. Hér
hitta börnin aftur Mikka ref, sem Bessi Bjarna-
son leikur og Lilla klifurmús, sem leikin er af
Árna Tryggvasyni. Mörg börn hafa kynnst þess-
um persónum á hljómplötu með lögum úr leik-
ritinu. Frumsýning var 15. jánúar, en leikstjóri
er Klemenz Jónsson.
Atriði úr þekktum sígildum ballettum og ný
dansatriði, m.a. úr Svanavatninu og Gosbrunnin-
um á Bakhtsjisaræ og Les Sylphides eftir Fokin
eru nú flutt í heild sinni. Hinn nýi ballettmeist,-
ari Þjóðleikhússins stjórnar sýningunni. í henni
taka þátt íslenski dansflokkurinn og nemendur
Listdansskóla Þjóðleikhússins. Gestur á þessum
sýningum er Per Arthur Segerström frá Stokk-
hólmsóperunni. Fyrsta sýning var í byrjun des-
ember á síðasta ári.
2. mars verður frumsýnt leikritið Lér konung-
ur, en þetta stórbrotna leikrit Shakespeares hef*
ur aldrei verið flutt áður hér á landi. Þýðingin
er eftir Helga Hálfdánarson, en leikstjóri og
leikmyndateiknari eru breskir, Hóvhannes I.
Pilikian og Ralph Koltai, báðir frægir menn í
heimalandi sínu. Rúrik Haraldsson fer með
hlutverk Lér konungs og Baldvin Halldórsson
leikur fíflið.
Á litla sviðinu er verið að sýna Nótt ástmeyj-
anna, en það er sænskt nútímaleikrit, sem fer
sigurför um mörg lönd um þessar mundir. Aðal-
pei-sónurnar eru leikskáldið August Strindberg
og Siri von Essen kona hans. Iæikurinn gerist á
leikæfingu í Kaupmannahöfn. Erlingur Gíslason
og Helga Bachmann leika þessi hlutverk í leik-
stjórn Helga Skúlasonar. Nótt ástmeyjanna var
frumsýnd í októberlok á síðasta ári.
Meistarinn er nýtt leikrit eftir Odd Björnsson,
einn mikilvirkasta leikritahöfund okkar. Rób-
ert Arnfinnsson fer með aðalhlutverkið í leik-
stjórn Benedikts Árnasonar. Leikritið var frum-
sýnt 16. janúar sl.
FV i 77
43