Frjáls verslun - 01.01.1977, Side 45
• Sinfóntuhljómsveifin
Sinfóníuiiljómsveit íslands, sem stofnuð var
árið 1950 hefur niú hafið sitt 27 starfsár. Eins og
á undanförnum ái'um mun Sinfóníuhljómsveitin
sinna margvíslegum verkefnum á starfsárinu,
auk sextán reglulegra áskriftartónleika. Um 60
manns leika með hljómsveitinni, en auk þess
munu ýmsir hljómlistarmenn, og stjórnendur
koma fram með hljómsveitinni í vetur. Stjórn-
endur Sinfóníuhljómsveitar íslands eru þeir Páll
P. Pálsson og Karsten Andersen, en fram-
kvæmdastjóri er Sigurður Björnsson,, óperu-
söngvari.
10. febrúar hefst síðara misseri í hljómleika-
haldi Sinfóníuhljómsveitarinnar. Á efnisskrá er
Völuspá eftir Jón Þórarinsson og trompetkonsert
og sinfónía nr. 2. eftir Beethoven. Einleikari með
hljómsveitinni verður Lárus Sveinsson, tro,mpet-
leikari, stjórnandi verður Karsten Ande.rsen.
Á hljómleikunum 24. febrúar stjórnar Frakk-
inn J.P. Jacquillat hljómsveitinni, en einleikari
Reglulegir tónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar
fara fram í Háskólabíói.
er Jónas Ingimundarson. Á efnisskrá er Carna-
val Romain eftir Berlioz, Píanókonsert nr. 2 eftir
Saint-Saens og Sinfónía í d-moll eftir Franck.
J.P. Jacquillat stjórnar einnig hljómsveitinni
á hljómleikunum 10. mars, en þá er einleikari
með hljómsveitinni ítalski fiðluleikarinn Pina
Camirelli. Leikin verður sinfónía n,r. 40 í g-moll
eftir Mozart, fiðlukonsert eftir Sjostakovitsj og
Eldfuglinn eftir Stravinsky.
A hljómleikum 24. mars verður flutt nýtt verk
eftir Pál P. Pálsson, en hann stjórnar einnig
hljómsveitinni á þessum hljómleikum. Ennfrem-
ur verða fluttir flautukonsertar eftir Quantz og
Rivier og Sinfónía nr. 8 eftir Beethoven. Manu-
ela Wiesler flautuleikari, sem er austurísk verð-
ur einleikari með hljómsveitinni á hljómleikun-
um.
Bandaríkjamaðurinn Samuel Jones stjórnar
hljómsveitinni á hljómleikunum 21. apríl, en
einleikari með hljómsveitinni verður breski pí-
anóleikarinn John Lill. Þá verður á efnisskrá
nýtt verk eftir Þorkel Sigurbjö.rnsson og enn-
fremui' verk eftir Samuel Jones, Beethoven og
Borodin.
Tveir síðustu hljómleikarnir á þessu misseri
verða 5. og 19. maí. 5. maí er stjórnandi Hubert
Soudant frá Hollandi en einleikari verður Erling
Blöndal Bengtson og 19. maí stjómar Karsten
Andersen en einsöngvari með hljómsveitinni
verður Peter Peai's frá Bretlandi.
Fyrirhugað er að halda tónleika úti á landi
m.a. þetta misseri á Laugarvatni, og ennfremur
verða haldnir f jölskyldutónleikar, skólatónleikar,
barnatónleikar og hljóðritaðir verða niokkrir tón-
leikar hljómsveitarinnar til flutnings í útvarpi.
Fl
• Kjarvalsstaðir
Margar áhugaverðar sýningar og menningar-
viðburðir verða að Kjarvalsstöðum í vetur og
vor. Stærsta sýningin, sem haldin verður er sýn-
ing á norrænni vefjalist, sem hófst 29. janúar og
stendur til 22 febrúar. Sýning þessi hefur verið
á öllum Norðurlöndunum og vefarar frá öllum
Norðurlöndunum, nerna Færeyjum eiga verk á
sýninigunni, þar af 6 íslenskar konur.
Á þessari sýningu á norrænni vefjalist verða
um 116 verk og í tengslum við hana verða haldn-
ir fyrirlestrar og einnig leiðbeina vefararnir sýn-
inigargestum um sýninguna.
Dagana 23. febrúan—15. mars heldur Hringur
Jóhannesson, listmálari einkasýningu á olíumál-
verkum og teikningum, og 16. mars—5. apríl
heldui' Baltasar listmálari einkasýningu á mál-
verkum og teikningum.
Frá 7.—26. apríl n.k. halda Haukur Dór og
Þorbjörg Höskuldsdóttir saman málverkasýn-
ingu og dagana 27. apríl—10. maí verða haldn-
ar tvær sýningar á verkum listmálaranna Jónas-
ar Guðmundssonar og Ómars Skúlasonar. 11.
FV 1 77
45