Frjáls verslun - 01.01.1977, Page 48
• Hótel Loftleiðir
Margir veislu- og fundarsalir eru á Hótel
Loftleiðum, en þar eru nú hverja helgi haldnar
árshátíðir, auk þess sem mikið er þar um fund-
artiöld og ráðstefnur, bæði innlendar og erlendar.
Á hótelinu er einnig fjölbreytt þjónusta s.s.
sundlaug, gufubað, verslun, snyrtistofa og hár-
greiðslustofa.
Víkingasalur er stærsti salur hótelsins, en
hann er eingöngu leigður út til veisluhalda. Þar
rúmast 200 manns í mat. Krystalssalur tekur 150
manns, en hann er leigður út til ráðstefnu og
fundarhalda svo og veisluhalda.
Leifsbúð er leigð út til fundarhalda og veislu-
halds, en þar er unnt að hafa 70 manns í mat.
Einnig er hægt að skipta Leifsbúð í tvo minni
sali. í stjórnarherberginu, sem einkum er leigt
út til fundarhalda og einkasamkvæma rúmast 25
manns í mat og í kvikmyndaherberginu geta um
100 manns setið.
Blómasalurinn er opinn á veturna frá kl. 12—
14.30 og 19—22.30. Hann er opinn almenningi
jafnt sem hótelgestum. Blómasalur rúmar um 130
manns, og þar eru á boðstólum 1. flokks veiting-
ar, auk þess sem í hverju hádegi er kalt borð.
VERZLUN
JÓNASAR MAGNÚSS0NAR
Hafnarstræti 11, Isafirði.
Sími 94-3225.
Verzlum með:
• MATVÖRUR
• HREINLÆTISVÖRUR
• SNYRTIVÖRUR
• ÖL, TÓBAK, SÆLGÆTI
o. fl.
Einnig er sérstakur barnamatseðill með hæfileg-
um skammti af mat við hæfi barnanna s.s. heit-
um samlokum, hamborgurum, kjúklingum og
fiskhamborgurum.
Nú í vetur býður Hótel Loftleiðir sérstakan
afslátt á gistingu fyrir landsmenn.
i Hótel Esja
Þrír veislu- og fundarsalir eru á Hótel Esju
við Suðurlandsbraut. Sameina má þá í einn 150
manna sal, og nú meðan tími árshátíðanna stend-
ur yfir er þar ýmislegt um að vera um hverja
helgi. Á Hótel Esju halda ýmis fyrirtæki og fé-
lagasamtök árshátíðir sínar.
Einnig halda ýmis félög reglulega fundi í
fundarsölum hótelsins. Á 2. hæðinni er einnig
bar. Nú er verið að innrétta á 9. hæðinni stóran
sal með bar. Kaffiterían Esjuberg rúmar um 250
manns í sæti, en þessi kaffitería hefur átt mikl-
um vinsældum að fagna m.a. vegna þess að stað-
urinn hefur vínveitingaleyfi. Á Esjubergi má
velja mjög fjölbreytta rétti, bæði sérrétti og rétt
dagsins á hóflegu verði.
Hótel Esja rúmar um 270 hótelgesti og í vetur
veitir hótelið sérstakan afslátt á gistingu fyrir
landsmenn.
TRÉSMÍÐAVERKSTÆÐI
DANÍELS KRISTJÁNSSONAR
Árnagötu 2, Isafirði.
Sími 94-3130.
Önnumst alla almenna trésmíða-
vinnu, svo sem:
• HURÐIR
• GLUGGAR
• INNRÉTTINGAR
o .fl.
Einnig húsbyggingar.
48
FV 1 77