Frjáls verslun - 01.01.1977, Blaðsíða 50
SamtíðarmaAur
Páll Friðbertsson, forstjóri á Suðureyri:
„Gerum ráð fyrir að skila þjóðar-
búinu milljarði í gjaldeyri
á þessu ári”
Páll Friðbertsson hefur stundað útgerð og vinnslu sjávarafla í 40 ár. Ásamt Óskari Kristjánssyni
er hann nú aðaleigandi Fiskiðjunnar Freyju sem var eitt af fyrstu fyrirtækjum hérlendis sem
bjó frystihús sitt í samræmi við ströngustu reglur um hollustuhætti. Gegnir Páll stöðu forstjóra
fiskiðjunnar en Óskar er skrifstofustjóri og forstjóri útgerðarfélags sem er dótturfyrirtæki Freyju.
I þessu samtali er vikið að ýmsum þáttum í starf semi fiskiðjunnar á Suðureyri.
F.V.: — Nú fæst hæsta verð
f.vrir fisk á Iiandaríkjamarkaði
og eftirspurn er mikil. Telur þú
að við verðum færir um að afla
alls þess fisks sem beðið er unj
á mörkuðum okkar erlendis?
Páll: — Okkar frystihús hef-
ur ekki fengið nægilegt hrá-
efni síðastliðið á,r og ég held að
eftirspurnin sé meiri núna en
við getum framleitt yfirleitt.
Framleiðslan hjá okkur í fyrra
var 2090 tonn af flökum og þar
af fóru yfir 90% á Bandaríkja-
markaðinn.
F.V.: — Hvaða skipakostur á
Suðureyri er það, sem aflar
þessa hráefnis?
Páll: — Það eru þrír vetrar-
bátar, 200—250 tonn á stærð,
togarinn Trausti og svo um 15
trillur. Til viðbótar afla þess-
ara skipa höfum við fengið ör-
lítið af fiski frá öðrum stöðum
til vinnslu, og þá aðallega frá
Flateyri.
F.V.: — Þið gerið út báta
auk þess að vera með fisk-
vinnsluna?
Páll: — Já, það er systurfé-
lag fiskiðjunar, sem gerir út
stærstu bátana og togarann,
sem var keyptur frá Noregi. Nú
eigum við annan togara í smíð-
um hjá Stálvík og þegar hann
kemur í gagnið verður Trausti
seldur.
F.V.: — Hver hefur reynsl-
a,n verið af togaraútgerðinni?
Páll: — Togaraútgerðin hef-
ur gengið mjög vel á Vest-
fjö.rðunum almennt talað og
verið atvinnulífi í byggðarlög-
50
PV 1 77