Frjáls verslun - 01.01.1977, Blaðsíða 63
Ný og glæsileg sundlaug sem verið er að fullgera í Bolungarvík.
Súgandafirði fyrir hitaveitu á
Suðureyri. Boranir í Tálkna-
firði og Patreksfirði gáfu ekki
nægilega góðan árangur, en á-
kveðið er að bora á báðum stöð-
unum aftur. Boruð var til-
raunahola við Hótel Flókalund
í Vatnsfirði á Barðaströnd og
er talið að nægilegt vatnsmagn
sé þar fyrir hendi til að hita
hótelið þann tíma ársins, sem
það er starfrækt. Boraðar voru
grunnar tilraunaholur á Þing-
eyri og við Hólmavík, en ekki
er ennþá ljóst, hvort þar megi
vænta árangurs með meirihátt-
ar borun. Borun í Bolungarvík
er lokið, og hefur dregið úr
vonum manna um að þar sé
heitt vatn að finna. í athugun
er viðbótarborun eftir heitu
vatni á Borðeyri, og fjármagn
að nokkru tryggt til þess verks.
Akveðin er rannsóknarþorun i
Fiatey á Breiðafirði. Borun er
um það bil að hefjast á ísafirði,
en áður var boruð þar rann-
sóknarhola, sem gefur vonir um
að árangurs megi vænta.
ÚTTEKT Á BÚSKAPAR-
AÐSTÖÐU
Búnaðarsamböndin á Vest-
fjörðum og Fjórðungssamband
Vestfirðinga hafa sameiginlega
gert úttekt á búskaparaðstöðu
á Vestfjörðum. Lokið er þriggja
ára framkvæmdum af fimm ára
landbúnaðaráætlun í inn-Djúpi.
Yfir standa framkvæmdir við
hliðstæða áætlun í Árnes-
hreppi í Strandasýslu. Unnið er
að gerð áætlunar fyrir Rauða-
sandshrepp í Barðastrandar-
sýslu. Gerðar hafa verið tillög-
ur um framkvæmdir i landbún-
aði í Kaldrananes-, Kirkjubóls-
og Fellshreppum í Stranda-
sýslu. Byggingarframkvæmdir
hafa staðið yfir í Bæjarhreppi í
Strandasýslu. Búnaðarsam-
böndin hafa keypt bygginga-
tæki og stofnað húsagerðar-
sambönd, sem sjá munu um
framkvæmdir fyrir bændur í
samræmi við fyrirfram gerða
áætlun. f undirbúningi er að
gera ráðstafanir til að auka
mjólkurframleiðslu í Vestur-
ísafjarðarsýslu, en þar hefur
mjólkurframleiðsla dregizt
saman hin síðari ár, en veru-
lega skortir á að fullnægt sé
neyzlumjólkurþörfinni á mjólk-
ursamlagssvæðinu á norðan-
verðum Vestfjörðum með þeirri
mjólkurframleiðslu, sem er á
svæðinu. f heild er aukinn á-
hugi fyrir búskap á Vestfjörð-
um, og nokkra.r eyðijarðir hafa
byggzt.
Vegagerð ríkisins, áætlana-
deild Framkvæmdastofnunar
ríkisins, alþingismenn Vest-
fjarðakjördæmis og Fjórðungs-
samband Vestfirðinga hafa-
komizt að sameiginlegri megin
niðurstöðu um röðun fram-
kvæmdaverkefna í vegagerð á
Vestfjörðum.
Húsgagnaverzlun
ísafjarðar:
Flutnings-
kostnaður-
inn
háir
rekstrinum
Þegar blaðamaður FV var á
ferð á ísafirði fyrir skömmu
ræddi hann við Rut Tryggva-
son eiganda Húsgagnaverzlun-
ar ísafjarðar og Gamla bakarís-
ins. Gamla bakaríið á ísafirði
var stofnað árið 1873, svo Rut
er búin að halda upp á aldar-
a.fmæli fyrirtækisins fyrir
nokkru. Það er of langt mál að
rekja sögu fyrirtækisins í stuttu
blaðaviðtali. en óhætt er að
fullyrða, að bar hafi margir
merkir menn komið við sögu.
Tengdafaðir Rutar, Tryggvi
Jóakimsson konsúll keypti
bakaríið árið 1922. Að honum
Iátnum tók sonur hans Arin-
björn við því en frá bví hann
lést hefur Rut stjórnað bví og
með aðstoð Árna sonar síns síð-
ustu 7 árin.
Rut kom hingað frá Dan-
mörku 1950. Hún sagðist hafa
lært verzlunarstörf í Magasin
DuNord í búsáhalda- og heim-
ilistækjadeildinni. Árið 1953
stofnuðu þau hjónin Húsgagna-
verzlun ísafjarðar, vegna þess
hve Rut leiddist að vera aðgerð-
arlaus heima. Þá var engin slík
verzlun starfrækt á Vestfjörð-
um.
DÝRT AÐ FLYT.TA HÚS-
GÖGN VESTUR
— Húsgögnin eru flest flutt
hingað frá Reykjavík en einnig
frá Akureyri. Ég hef fengið
góða reynslu í gegnum árin að
finna Ihvar það besta er að fá
hjá framleiðendum og legg
mjög mikið upp úr því að vera
aðeins með það besta. Þá reyni
ég að hafa gott úrval, allt að 10
sófasett, ásamt flestum öðrum
húsgögnum eftir því sem rými
leyfir.
FV 1 77
63