Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1977, Síða 69

Frjáls verslun - 01.01.1977, Síða 69
G. E. Sæmundsson: * Islenska málningin stenst samanburð Sigurður Guðmundsson ásamt sonum sínum Magnúsi, Guðmundi og Kristjáni. um miðjan október og reiknað með að kvótanum sé náð í lok marz, enda komin þúsund tonn á land um áramót. Þetta er vegna verndunarsjónarmiða og er stefnt að því að ekki komi að landi minni rækja en svo að 300 stykki séu í kílóinu. Við megum veiða 15,5% af kvótan- um 360—370 tonn og gerum við út einn bát en kaupum rækju af fjórum öðrum bátum. Astæð- an fyrir því að við kaupum ekki rækju af fleiri bátum er sú að þetta aflamagn jafnist sem best niður á bátana þannig að allir beri eitthvað úr býtum. Aðal- markaðssvæðið eru Norður- löndin, þar af er Svíþjóð stærst. Um erfiðleika í rækjufram- leiðslunni er það að segja að ís- land er ekki lengur stór fram- leiðsluaðili. Aflinn hefur ekki endilega minnkað, 'heldur hafa komið ný lönd inn á markaðinn sem veiða miklu meira magn. Samt er þróunin upp á við. VERKA SALTFISK OG SKREIÐ — Fyrir tveim árum byggð- um við skemmu og byrjuðum að verka fisk í salt og skreið. Aðalástæðan var sú að rækju- tímabilið var alltaf að styttast og við sáum fram á að brúa þurfti 6-—7 mánuði af árinu. Þá voru einnig miklir erfiðleikar hjá bátunum að iosna við fisk í frystihúsin. 8 handfærabátar leggja upp hjá okkur fisk á sumrin. Aðalvandamálin sem fylgja þessari fiskvinnslu eru að fiskurinn er smár og saltfisk- útflutningurinn liggur niðri á þessum tíma svo við verðum að liggja með fiskinn allt sumarið. Erfiðleikarnir við skreiðarfram- leiðsluna eru að ekki er hægt að hengja upp nema á vorin og haustin vegna maðks. Þá fer sá fiskur í frystingu og er fluttur á Rússlandsmarkað og stendur hann ekki undir fram- leiðslukostnaði. FRAMLEIÐIR SMJÖRLÍKI FYRIR VESTFIRÐINGA f fyrra keyptum við Smjör- líkisgerð fsafjavðar en hún var stofnsett 1925 Nú erum við að flytja vélarnar í okkar eigið húsnæði hér á Hnífsdal en þær voru áður í leiguhúsnæði á fsa- firði. Smjörlíkisgerðin á í vök að verjast vegna samkeppni. Framleiðslan ber heitið Stjörnusmjörlíki og er ráðandi á markaðnum hér fyrir vestan, en vantar að komast inn á markað annars staðar á land- inu, en þar skortir verulega að framleiðslan sé kynnt. Árið 1920 hóf Guðmundur E. Sæmundsson málarameistari á ísafirði rekstur smásöluverzl- unar með málningarvörur og veggfóður, auk þess sem hann starfaði að iðninni. Þá var allt flutt inn frá Danmörku og Þýskalandi, en eftir að íslensku málningarverksmiðjurnar tóku til starfa hefur fyrirtækið mest verið með íslensku framleiðsl- una. Kom þetta fram í stuttu rabbi um starfsemi fyrirtækisins, þeg- ar blaðamaður FV hitti eigend- urna, syni Guðmundar, þá Kjartan, Níels, Sigurð og Sæ- mund. Þeir starfa allir við reksturinn, enda allir fetað í fótspor föðurins sem málara- meistarar. MIKLAR FRAMFARIR f MÁLNINGARIÐNAÐINUM Sæmundur sagði að gerbi’eyt- ing hefði orðið í málningariðn- aðinum, með tilkomu plast- málningarinnar. Elstu bræðurn- ir Kjartan og Níels muna þá tíð þegar málarar urðu að búa til alla málningu úr dufti og hræra hana út sjálfir. í dag hef- ur þróunin orðið gífurleg og fer litablöndunin að mestu fram í vélum, sem leiðir af sér meiri þægindi og mun fjölbreyttara litaúrval ásamt hraðari þjón- ustu. Þegar þeir bræður voru spurðir um gæði íslenskrar málningar samanborið við þá dönsku sem þeir flytja inn, sögðu þeir, að sú íslenska reyndist mjög vel að þeirra mati. — Við erum með prufur á 'húsinu Aðalstræti 17 þar sem verzlunin er til húsa, frá þrem íslenskum aðilum og einum dönskum svo við tölum af raun- hæfri reynslu. FV 1 77 69
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.