Frjáls verslun - 01.01.1977, Side 71
Kaupfélag Önfirðinga
IUjólkurskortur, þegar ófært
er frá Reykjavík eða Akureyri
Kaupfélagið rekur Karðfiskverkun og voru tæp
14 tonn seld suður ■ fyrra
Cyifi
SLÍ Traustason
kaupfélags
stjóri á
Flateyri.
Kaupfélag Önfirðinga á Flat-
eyri var stofnað 1918 og verður
því 60 ára á næsta ári. Gylfi
Traustason kaupfélagss'tjóri tók
við stjórn þess fyrir tæpu ári,
en hann hafði starfað á skrif-
stofunni í 11 ár áður. Þegar
blaðamaður FV var á ferð á
Vestfjörðum ræddi hann við
Gylfa um rekstur félagsins ftg
horfur í byggðarlaginu.
Gylfi sagði að verzlunin væri
stærsti þáttur rekstursins, en
einnig ræki kaupfélagið harð-
fiskverkun og sláturhús á
haustin. Kaupfélagið var með
útgerð í um 16 ár en hún var
lögð niður 1971.
5700 FJÁR SLÁTRAÐ SL.
HAUST
— Við erum með alla þjón-
ustu við bændur hér og það
segir til sín sem fer til búanna
enda allt orðið dýrt sem þeir
þurfa. Hér var slátrað um 5700
fjár í haust og hefur sú tala
haldist mjög svipuð undanfarin
ár. Sauðfjárrækt hefur verið
meiri hér í sveitinni en kúabú-
skapur, enda mi'klum erfiðleik-
um háð að 'koma mjólkinni frá
bændum. Fyrir bændurna yst í
firðinum er það ógerlegt á vetr-
um vegna ófærðar, enda kemur
þriðjungur fjárins sem slátrað
er þaðan. Þessir bændur verða
að ikoma sjóleiðina til að verzla
hér á Flateyri.
f haust var heildarþungi 84,6
tonn af dilkum og fullorðnu fé.
Við höfum frystigeymslur hér
fyrir 40 tonn, en við þurftum
að senda suður í sláturtíðinni
33,8 tonn, afgangurinn fer suð-
ur næsta sumar en við seljum
um 15 tonn á ári á þessu mark-
aðssvæði. Við höfum enga kjöt-
vinnslu á staðnum enda enginn
grundvöllur fyrir því vegna
smæðar. Allar fullunnar kjöt-
vörur eru fluttar hingað með
skipum að sunnan eða frá Ak-
ureyri, og fáum við mjög góða
þjónustu hjá Afurðasölu SÍS i
því sambandi.
BORIÐ Á MJÓLKURSKORTI
— Mjólkurframleiðslan er
heldur á uppleið, þar sem lána-
fyrirgreiðslur eru batnandi við
uppbyggingu kúabúa. Þá á að
flytja mjólkina frá bændum
en þeir hafa orðið að skila
henni sjálfir á bryggju þar sem
Djúpbáturinn tekur við henni
og flytur til ísafjarðar. Vonandi
er að þetta lagist, þar sem hér
hefur verið mjólkurskortur
þrjú undanfarin ár þegar ófært
er frá Akureyri eða Reykjavik.
Mjólkurstöðin á ísafirði fær
eteki næga mjólk af svæðinu til
að anna öllum kauptúnunum,
þó að öll mjólkin sem kemur til
Þingeyrar sé flutt með Flug-
félaginu frá Reykjavík.
UNNIÐ ÚR 175 TONNUM AF
FISKI SL. ÁR
— Við harðfiskverkunina
vinna fjórir en hráefnið
fáum við hjá frystiíhúsinu
Hjálmi og er það mest af tog-
aranum Gylli. Byrjað var 1956
á þessari verkun og var allur
fiskur þurrkaður úti þar til
fyrir fjórum árum að byggðir
voru sérstakir þurrkklefar. Öll
framleiðslan er send suður til
Reykjavíkur til Vestfirsku Iharð-
fisksölunnar sem fullvinnur
hráefnið og dreifir því í verzl-
anir. Á síðasta ári var unnið úr
175 tonnum af fiski og úr því
kemur tæp 14 tonn af harð-
fiski þannig að nýtingin er 8%.
Söluverðmætið er um 15 millj-
ónir til okkar.
VELTA KAUPFÉLAGSINS
180 MILLJÓNIR
— Við erum með afgreiðslu
fyrir Flugfélagið Vængi, Ríkis-
skip, Sambandsskipin og
Djúpbátinn, og erum vel settir
með lagerhúsnæði til að sjá um
það.
Vængir hafa þjónað okkur
mjög vel og halda uppi reglu-
legum ferðum þegar fært er, en
skipaferðir mættu vera tíðari
hjá Ríkisskip. Það eru ekki
nema tvær ferðir í mánuði og
verðum við að taka inn meira
af vörum í einu, sém heldur
veltunni niðri, en það eru jú
allir að keppast við að halda
henni uppi eða auka.
FV 1 77
71