Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1977, Blaðsíða 81

Frjáls verslun - 01.01.1977, Blaðsíða 81
Bílaleiya Bolungarvíkur: Afhendir bílana á ísafjarðarðarflugvelli og þangað er þeim skilað aftur — Ég var með 10 bíla af ýmsum gerðum á síðasta ári, en í vetur ekki nema þrjá, aðallega jeppa. Vertíðin byrjar í apríl og stendur fram í nóvember en það er þó háð veðri og samgöngum. Það er áberandi að 80—90% af kúnnunum eru verktakar eða alls konar sölumenn og er það ástæðan fyrir því að bílarnnir eru af ýmsum gerðum því þarfirnar eru svo ólíkar. Ég afhendi bílana á ísafjarð- arflugvelli og sæki þá þangað að notkun lokinni, þannig að við- skiptavinurinn stígur út úr flugvélinni upp í bílinn og öfugt án nokkurs endurgjalds fyrir þá þjónustu, sagði Valdimar L. Gísla- son, bifreiðastjóri, og eigandi Bílaleigu Bolungarvíkur í viðtali við blaðamann FV fyrir skömmu. — Það er óþægilegra að hafa bílakostinn svona blandaðan því reksturinn verður dýrari. Annars er einn bíll Suparo frá Japan sem kemur til með að leysa þetta vandamál þar sem hann er byggður eins og fólks- bíll en er með fjórhjóladrifi eins og jeppi og mun ég auka notkun á honum. Þá gera slæm- ir vegir einnig strik í .reikning- inn svo viðhaldskostnaður er mikill en við höfum gott verk- stæði hér og munar miklu um það. TVENNS KONAR BENZÍN- VERÐ — Ég er hins vegar mjög ó- hress með að þurfa að borga sama skatt til umferðarinnar og þeir sem alltaf aka á mal- biki. Og það er svo að við ifáum engan veginn sömu þjónustu þar sem viðhald er miklu meira á malarvegum. Ég hef oft sagt að það er mjög auðvelt að leysa þetta misræmi með tvenns kon- ar verðlagi á benzíni. Það er vonlaust að láta höfðatölureglu eða umferðarþunga gilda um það hvar eigi að byggja hrað- brautir því þá fáum við aldrei slíkt. Hins vegar ætti að sam- ræma hlutina þannig að árlega væri ákveðinni upphæð varið til þéttbýliskjarna í hverjum landsfjórðungi til hraðbrauta með varanlegu slitlagi og þá fyrst væri réttlætanlegt að hafa sama verð á benzíni alls staðar á landinu. ÞÖRF NÝS VEGAR Á ÞORSKAFJARÐARHEIÐI — Sem dæmi um hversu þessi mál eru andsnúin Vest- fjörðum má nefna að við eigum ennþá að notast við veg sem byggður var á fimmta áratugn- um og tengir okkur við aðal- brautakerfi landsins. Við erum orðnir ansi þreyttir á að bíða eftir nýjum vegi á Þorskafjarð- arheiði í stað þess að notast við veg sem liggur yfir 7 heiðar cg hálsa og er þar að auki ófær mest allan veturinn. — Með bættum samgön^um yrði lífvænlegra fyrir svona fyrirtæki. Við Bolvíkingar er- um á endastöð en í nálægð við mestu ferðamannaparadísina sem landið hefur upp á að bjóða sem eru Jökulfirðir og Hornstrandir fyrir utan það gósenland hér til fjallaferða og sjóstangaveiði í ómenguðu lofts- lagi. SJÁVARFRÉTTIR koma nú út í hverjum mánuði. • Upplag SJÁVARFRÉTTA er nú á sjöunda þúsund eintök. Fjórfalt stærra blað en nokkuð annað á sviði sjávarútvegsins. SJÁVARFRÉTTIR er lesið af þeim, sem starfa við sjávarútveginn og taka ákvarðanir um innkaup vöru og þjónustu fyrir útgerð, fiskiðnað, skipa- smíðastöðvar, vél- smiðjur og aðra aðila á sviði sjávarútvegs og þjónustu- greina hans. Eflið viðskiptin við sjávarútveginn og kynnið vörur og þjónustu í SJÁVARFRÉTTUM. SJÁVARFRÉTTIR LAUGAVEGI 178. SÍMAR 82300 OG 82302. FV 1 77 81
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.