Frjáls verslun - 01.01.1977, Síða 91
AUGLÝSING
= HÉÐINN =
Vörugeymslur — iðnaðarhús
stöðluð innlend framleiðsla
Héðinn, hið landsþekkta fyr-
irtæki, hefur framleitt stál-
grindahús frá árinu 1967, en
hús þessi hafa reynst mjög hag-
kvæm og ódýr. Á síðasta ári
seldi Héðinn um 70 stálgrinda-
hús frá 100—3000 m-, en þessi
hús eru mjög hentug sem vöru-
skemmur, flugskýli, fiskverk-
unarhús, vélageymslur, hlöður
og fjárhús m.a.
Það er fyrirtæikið Garða-Héð-
inn í Garðabæ, dótturfyrirtæki
Vélsmiðjunnar Héðinn, sem
framleiðir stálramma í stál-
grinda'húsin, en Vélsmiðjan
Héðinn sér hins vegar um sölu
og dreifingu og viðbótarsmíði
þ.e.a.s. klæðningu, langbönd,
sem eru ýmist úr tré eða stáli,
rennur, hurðir og ýmsa auka-
hluti og sérsmíðaða hluti í hús-
in.
SAMVINNA UM SMÍÐI STÁL-
GRINDARHÚSANNA
Húsin eru lagersmíðuð í
stöðluðum stærðum. Lager-
framleiðslan er í 6, 8, 10, 12 og
16 m breiddum, en vegghæð
2—4 m. þakhalli er 10—15°.
Einnig eru húsin sérsmíðuð,
óski kaupandinn þess. Sérsmið-
uð hús hafa verið allt að 25 m
breið.
Klæðning húsanna er plast-
húðað galvaniserað stál og get-
ur plasthúðin verið í ýmsum
litum. Hægt er að fá nokkrar
lengdir af plötum í þök og
veggi eða allt upp í 8 metra.
Framleiðsla burðarrammanna
fer þannig fram í grófum drátt-
um, að plötustál er klippt og
beygt í fleygmyndaða prófíla
sem felldir eru saman, en síðan
eru soðnar á það festingar og
festiplötur fyrir langbönd. Síð-
an fe,r það í gegnum sérstaka
vél, sandhverfu sem sandblæs
og grunnmálar plötugrindurn-
ar, en endanlega er gengið frá
þeim með því að yfirmála þær
með lakkmálningu.
Reynslan hefur sýnt að kostn-
aður við slík stálgrindahús er
20—30% undir byggingarkostn-
aði steinsteyptra húsa. Um 20
manns vinna við smiði húsanna
hjá báðum fyrirtækjunum, en
1—2 mánaða afgreiðslufrestur
er á framleiðslunni. Auðvelt e.r
að reisa slík stálgrindahús, og
uppsetningarkostnaður er 201—
25% af efnisverði hússins. Upp-
setning tekur 1—3 mánuði.
Hús þessi eru bæði seld full-
búin, einnig geta menn fengið
keyptar stálgrindur og ýmsa
aðra hluti og þannig hefur
kaupandinn möguleika að hafa
klæðninguna að vild, eða þá
steypa upp veggi eða hlaða inn-
an í stálgrindurnar. Möguleik-
arnir eru margir.
FJÖLBREYTTUR BÚNAÐUR
SMÍÐAÐUR HJÁ HÉÐNI
Vélsmiðjan Héðinn framleið-
ir rafdrifnar rúlluhurðir í 3
stöðluðum breiddum. Þessar
rúlluhurðir eru mjög hentugar
í vöruskemmur og fiskverkun-
arhús. Um árabil hafa einnig
verið framleiddar fólks-, vöru-
og hráefnislyftur og nú er ver-
ið að smíða vökvaknúnar fólks-,
vö.ru- og sjúkralyftur. Páar slík-
ar lyftur eru til hér á landi, lít-
ið fer fyrir vélbúnaði þeirra,
auk þess sem þær eru hljóðlát-
ari en venjulegar víralyftur.
Vélsmiðjan Héðinn smíðar
einnig eldvarnarhurðir, svo og
loftræstiviftur, en hægt er að
hafa á þeim útbúnað, sem
stoppar þær og he.rðir eða hæg-
ir á þeim allt eftir hita- og raka-
stigi í viðkomandi húsnæði.
Slíkar viftur eru mjög hentug-
ar í gróður- og gripahús svo og
í ýmis konar iðnaðarhúsnæði.
Að lokum má geta þess, að
Vélsmiðjan Héðinn flytur inn
vegg- og gólfflísar frá sænska
fyrirtækinu Höganás, en þess-
ar flísar eru t.d. mjög hentugar
í vinnusali.
FV 1 77
91