Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1977, Side 94

Frjáls verslun - 01.01.1977, Side 94
CLARK AUGLÝSING Yfir 300 lyftarar hafa verið fluttir inn Clark verksmiðjurnar í Bandaríkjunum og V-Þýska- landi eru elstu og langstærstu framleiðendur og seljendur lyftara í heiminum í dag. Fram- leiðslan verður sífellt full- komnari, en megináhersla er lögð á tæknileg gæði fram- Ieiðslunnar. Cla.rk lyftarar hafa verið í notkun hér á Iandi um áratuga skeið, en Elding Trad- ing Company hefur umboð fyr- ir Clark lyftara. Yfir 300 lyftarar hafa verið futtir inn. Hægt er að fá lyftara frá Vz lestar lyftigetu upp í 30 lestir, en algengasta stærðin er frá 3—3,5 lestir. Clark lyftarar eru fáanlegir með fjölbreytt- um sérútbúnaði eftir þörfum hvers og eins viðskiptavinar. Meðal aukahluta. sem fást með Clark lyfturum má nefna salt- og malarskóflur, ýtutennur, gálga og klemmur með velti- búnaði. Á þessum lyfturum geta verið hreinsitæki, sem hreinsa 90% útblástursins þeg- ar lyftarinn er í notkun innan- húss. Fáanlegir eru rafmagns-, gas-, bensín- og diesellyftarar. Mest hefur verið flutt inn og selt af diesellyfturum, en aukning hef- ur orðið í sölu rafmagnslyftara. Mörg flutninga- og verslunar- fyrirtæki hér á landi nota Clark lyftara svo og helstu frysti- og fiskvinnslulhús á landinu. Eim- skipafélag íslands, Ríkisskip, Hafskip, SÍS, Áburðarverk- smiðja ríkisins, Fóðurblandan, Á.T.V.R., Coca Cola, Kassa- gerðin og Sementsverksmiðja ríkisins nota m.a. Clark lyftara. Ennþá eru í fullum gangi lyftarar, sem komu til landsins fyrir rúmum 30 árum með bandaríska hernum. Verð á Clark lyftara er breytilegt eftir stærð og auka- búnaði, en verð er frá 2 millj- ónum króna. Fyrirtækið Vélaröst sér um viðgerða- og varahlutaþjón- ustu, og eru viðgerðarmennirn- ir sérþjálfaðir af Clark verk- smiðjunum. HYSTER: S U Mýir fullkomnir rafmagnslyftarar n B Hamar hf. hefur umboð fyrir Hyster vörulyftara hér á landi. Hyster fyrirtækið er eitt þrótt- mesta fyrirtæki á sínu sviði. Hér á landi eru yfir 100 Hyster lyftarar í notkun. Hyster fyrir- tækið rekur verksmiðjur og dótturfyrirtæki víða um heim, en móðurfyrirtækið er banda- ríkst og var það stofnað árið 1929. Utan Bandarkja.nna eru stærstu verksmiðjurnar í Skot- landi og HoIIandi. Hyster vö.rulyftarar eru framleiddir frá 1—30 tonna lyftigetu og má fá fjölbreyttan sérútbúnað eftir óskum við- skiptavina. Við framleiðslu lyftaranna er farið eftir ströng- ustu kröfum um takmörkun umhverfismengunar. Stórum á- fanga var náð á þessu sviði þeg- ar nýju Hyster rafmagnslyftar- arnir komu á markaðinn fyrir u.þ.b. 4 árum. búnir rafeinda- stýringum af fullkomnustu gerð. Framfarir í rafeindatækni hafa orðið örar síðustu ár og hafa leitt til þess að nú eru Hyster verksmiðjurnar að senda frá sér nýja rafmagnslyft- ara svokallaða B línu. Helstu yfirburðir þessara nýju rafmagnslyftara fram yf- ir eldri A gerðir eru m.a. þess- ir: 1. Nýir sparneytnir vökva- hreyflar sem hafa í för með sér að hver rafgeymahleðsla endist lengur. 2. Ný rafeinda- stjórntæki, sem bæta verk- hæfni lyftarans og leiða til hraðaaukningar og viðhald verður einfaldara. 3. Ný gerð hjólbarða, bæði loftfylltir og mjúkir massívir hjólbarðar og 4. Ný gerð öryggisgrindar og auðveldari rafgeymaskipting. Hamar hf. hefur stóraukið varahlutaþjónustu sína, en fyr- irtækið annast einnig viðhald og viðgerðir á vélaverkstæðum sínum og hefur haft með hönd- um kennslu fyrir lyftarastjórn- endur í stjórn og meðferð vöru- lyftara. 94 FV 1 77

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.