Frjáls verslun - 01.01.1977, Side 95
------------------------- AUGLÝSING -----------------
I. PÁLIVIASOIV HF.:
Fjölbreyttur búnaður til eldvarna
I. Pálmason hf. Dugguvogi 23
flytur inn fjölbreyttan búnað á
sviði eldvarna s.s. reykskynj-
ara, brunaviðvörunarkerfi,
handslökkvitæki, asbestteppi,
brunaslönguhjól o.fl. I. Pálma-
son hf. sem stofnað var fyrir 13
árum starfar nú aðallega við
sölu á vökvadrifnum vindum í
fiskiskip svo og fiskidælum,
hliðarskrúfum og öðrum vökva-
drifnum tækjum ásamt inn-
flutningi á skipum.
Flutt er inn frá bandarísku
fyrirtækjunum Kidde og BRK
electronic og breska fyrir-
tækinu Kerr, sem öll eru
mjög framarlega á sinu sviði. I.
Pálmason 'hf. selur m.a. 3 gerð-
ir af heimilisreykskynjurum
svo og sjálfvirk brunaviðvörun-
arkerfi, sem eru með átengdum
símhringjara við slökkvistöð.
FJÖLBREYTTAR GERÐIR
HANDSLÖKKVITÆKJA
Til eru fjölbreyttar gerðir af
handslökkvitækjum allt frá 2
kg. tækjum upp í 250 kg.
slökkvivagna. í flestum iþess-
ara handslökkvitækja er ABC
þurrduft, sem hefur kæfandi
áhrif. Á öllum tækjunum er
handhægur leiðarvísir á ís-
lensku, sem segir til um, hvern-
ig eigi að nota þau.
I. Pálmason ihf. flytur einnig
inn Davy björgunaiihjól sem
ætluð eru til að forða fólki út
úr brennandi húsi svo og asbest-
teppi, sem einkum eru ætluð
fyrir heimili. mötuneyti og
veitinga'hús t.d. ef kviknað hef-
ur í feiti, og ræður þá asbest-
teppið niðurlögum eldsins á
skömmum tíma.
NÝJUNG f SLÖKKVIKERF-
UM HÉR Á LANDI
Eitt nýjasta slökkvitækið
sem framleitt hefur verið í
'heiminum og er algjör nýjung
hér á landi er Halon 1301
slökkvikerfið. í tækinu, sem er
fyrirferðarlítið er vökvi, og
þegar honum er hleypt út í and-
rúmsloftið breytist hann í loft-
tegund, sem slekkur eld á
nokkrum sekúndum og skaðar
ekki fólk, þó það andi að sér
loftinu.
LÉTTFROÐUKERFI OG
BRUNASLÖNGUHJÓL
Á boðstólum eru einnig stað-
bundin léttfroðukerfi, sem eink-
um eru ætluð í vöruhús. Með
slíku tæki má ráða niðurlögum
eldsins á skömmum tíma og
froðan skemmir lítið frá sér.
Brunaslönguhjól eru mjög
handhæg til notkunar í fyrir-
tækjum, skólum félagsheimil-
um og skemmum. Slangan get-
ur orðið allt að 35 m. löng og
bæði er hægt að beina vatns-
bunu eða úða að eldinum.
I. Pálmason hf. tekur að sér
að koma upp tækjum til eld-
varna svo og er haft reglubund-
ið eftirlit með öllum búnaði á
þessu sviði sem fyrirtækið hef-
ur selt.
Markcíðsþáttur F'rjcítsrar ver&lunar
IVV aðferð §em sskilar árangri
FV 1 77
95