Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1977, Síða 98

Frjáls verslun - 01.01.1977, Síða 98
Frá iritsijórn Okur hjá Pósti og síma? Póstur og sími er stærsta fyrirtæki á ís- landi. Segir það nokkuð um mikilvægi þeirrar þjónustu,sem fyrirtækið veitir lands- mönnum enda þarf hvert íslenzkt heimili og öll fyrirtæki í landinu að treysta meira og minna á þjónustu Pósts og sima. Þegar eitt fyrirtæki ríkisins eða ein stofnun er orðin svo tröllvaxin sem Póstur og sími verður að gæta þess sérstaklega að hún ræki þjónustuhlutverk sitt af lipurð við viðskiptavinina, veiti nægjanlegt öryggi, sýni hagkvæmni í rekstri og verðleggi þjón- ustu sína á sanngjarnan hátt. Gagnvart slíkri stofnun standa fulltrúar heimilanna og einstakra fyrirtækja, sem kaupa þjónustuna, fremur máttlitlir hver í sínu lagi og ekki er líklegt að samtök not- enda Pósts og síma nái skjótum árangri enda ólíklegt að forsendur séu fyrir því að heyja mótmælastríð eða aðrar ámóta að- gerðir gegn stofnuninni. Það eru þó ekki litlir peningar, sem einstaklingar og fyrir- tæki i þessu landi greiða til Pósts og síma. Reikninga verða allir aö borga þótt grunsemdir vakni og upphæðir þyki há- ar. Stofnunin ein hefur yfirlit yfir símanotkun og notandi hefur engin gögn í höndunum, þó að hann hafi grun um að skrefatalning hjá sér hafi verið óeðlilega há o.s.frv. Póstur og sími verðleggja teng- ingu nýrra símatækja, flutning tengla á milli herbergja, lengri snúrur í símatæki og þess háttar eftir eigin höfði og oftast óheyrilega hátt, þannig að mönnum blöskr- ar. Einokunaraðstöðunni ættu tvímælalaust að fylgja ákveðnar skyldur um ráðgjöf og þjónustu við notendur. Hvort tveggja er í algjöru lágmarki hér. Mikið skortir á að Póstur og sími leggi sig fram um að hafa eðlilegt framboð á þeim tækjakosti, sem er- lendis hefur rutt sér til rúms og þykir hent- ugri og fulkomnari en eldri tæki. Á þetta við um símatæki, skiptiborð og fleira. Hér á eftir verður rakið eitt dæmi um gjaldskrármál Pósts og síma, sem forstöðu- mönnum íslenzkra fyrirtækja kann að þykja forvitnilegt vegna þess að það lýtur að símgjöldum til útlanda, nánar tiltekið milli íslands og Bandaríkjanna. Islenzkt fyrirtæki lét gera könnun a þessu mali nu nyverið og leiddi hún margt athyglisvert í ljos, m.a. þaö, að þaö er 25% dýrara að hringja frá Islandi til Bandaríkj- anna en ótugt. Mioaö vio vegaiengd eru simtól mihi Isiands og Bandanhjanna aht aö sexiatt hærri en mihi BandariKjanna og þeirra landa annarra, sem konnumn nær til þar meö taiin JSIoröurlönd, Italia, ffrakk- iand, Þýzkaland, Astralía, Japan og Fhips- eyjar. Ef samanburöur er gerður á gjöldum íyrir simtöl milli Bandaríkjanna og Islands annars vegar og Bandaríkjanna og Norður- landanna hins vegar kosta símtöl frá Is- landi nærri þrefalda þá upphæð, sem gildir um Norðurlönd, miðaö við vegalengd. Ef tekið er dæmi um gjöld fyrir stöðva- símtöl (station to station) frá New York lítur þaö þannig út miðað við 4 mín. samtal: Danmörk, Noregur, Svíþjóð og Finnland 9 dollarar á daggjaldi en 6,80 á næturgjaldi. Frá New York til Islands kost- ar fjögurra mínútna símtal 16 dollara og er ekkert næturgjald í gildi. Fyrir fyrstu þrjár mínúturnar er gjaldið 12 dollarar en síðan 4 dollarar á hverja mínútu. Enn dýr- ara er að hringja frá íslandi til New York eða 20 dollarar fyrir fjögurra mínútna sam- tal. Frá New York kostar jafnlangt símtal til Ástralíu 12 dollara á daggjaldi en 9 doll- ara á næturgjaldi. Sama gildir fyrir Japan og Filipseyjar. Ef borinn er saman kostnaður á hverja mílu í 4 mínútna símtali frá New York, miðað við daggjald, kemur í ljós að það er 0,23 sent til Danmerkur og Svíþjóðar, 0,25 sent til Noregs, 0,22 sent til Finnlands en 0,61 sent til Islands. Frá íslandi er mílu- gjaldið aftur á móti 0,77 sent. Það er alltof lítið um það, að stjórn Pósts og síma sé krafin skýringa á atriðum sem þeim, er hér hafa verið rakin að framan. Helztu viðskiptamenn símans hafa ef til vill ekki heldur verið nógu vel á varðbergi og haft tiltækan samanburð við símagjöld, sem notendur í nágrannalöndum okkar þurfa að greiða. Full þörf er á að veita Pósti og síma aukiö aðhald í þessum efnum svo náið sem gjaldskrá þess fyrirtækis snertir afkomu fyrirtækja og einstaklinga. 98 FV 1 77
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.