Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1977, Blaðsíða 15

Frjáls verslun - 01.06.1977, Blaðsíða 15
Samgöngur: DASH-7 flugvélin heppileg til innanlandsflugs hér Lífill hávaöi, stuttar flugbrautir og þægindi fyrir farþegana Flugvélin, sem sterklega kemur til greina við endurnýjun innanlandsflugflota Flugleiða var fyrir skömmu kynnt hér á landi. Þetta er skrúfuþotan DASH-7, sem smiðuð er hjá De Havilland verk- smiðjunum í Kanada en vél þessi hefur verið i sýningarferð undanfarið víða um lönd. Fulltrúar verksmiðjanna og Sveins Björnssonar & Co., sem hefur umboð fyrir De Havilland kynntu framá- mönnum íslcnzkra flugmála. þessa nýju vél og buðu í flugferð með henni áður en haldið var vest- ur um haf með viðkomu á Grænlandi. DASH-7 í sterkum hliðarvindi á Reykjavíkurflugvelli. DASH-7 er alveg ný af nál- inni en það var í apríi á þessu ári, sem yfirvöld í Kanada og Bandaríkjunum gáfu henni flughæfnisskírteini fyrir far- þegaflug. Vélin, sem hér hafði viðkomu er reyndar sú fyrsta, er smíðuð var en tvær aðrar eru nú komnar úr verksmiðj- unni breyttar og endurbættar miðað við þá reynslu, sem feng- izt hefur af þessari fyrstu vél. SVIPUÐ FOKKER FRIEND- SHIP Að ýmsu leyti svipar DASH- 7 til Fokker Friendship-vél- anna, sem Flugleiðir nota til innanlandsflugs. Hún tekur að vísu nokkru fleiri farþega eða 58, þegar farþegarými er notað til hins ýtrasta. Aftur á móti er hún fjögurra hreyfla, mun hljóðlátari en Fokker-vélarnar og notar skemmri flugbrautir en þær. Vélin er reyndar al- veg sérstaklega hönnuð til notk- unar við erfið flugvallarskil- yrði og þarf mjög stuttar braut- ir til flugtaks og lendingar og getur athafnað sig í miklum hliðarvindi. ÞÆGILEGT FARÞEGARÝMI DASH-7 má breyta innan- borðs til að auka farangurs- og vöruflutningarými ef þörf kref- ur og býður að því leyti upp á svipaða möguleika og Fokker Friendship. Mjög áberandi munur er hins vegar á farþega- rými þessara tegunda og mun- ar mestu hvað DASH-7 er mi'klu rýmri og þægilegri. Minna innréttingar í henni að mörgu leyti á farþegarými í Boeing-þotum en þess má geta, að samstarf !hefur tekizt milli De Havilland og Boeinig um framleiðslu og sölu á DASH-7 og mun það vera í fyrsta skipti að Boeing-verksmiðjurnar taka upp þess konar samvinnu við annan flugvélaframleiðanda. Pantanir á DASH-7 liggja fyrir frá mörgum flugfélögum m.a. Wideröe’s Flyveselskap í Noregi, sem heldur uppi sam- göngum til 35 staða í Noregi og 'hefur aðallega notað til þess eldri flugvélategund frá De Havilland í Kanada, þ.e. Twin Otter eins og vélar Vængja og Flugfélags Norðurlands. GALLI OG KOSTIR Helzti ókostur DASH-7 er meira eftirlit og viðhald sem fjórir hreyflar útheimta miðað við tvo eins og á Fokker Friend- ship. Ákvörðun um endurnýjun innlandsflugflota Flugleiða er ekki á döfinni í bili. En víst er að til viðbótar hinum hreinu flugi'ekstrarlegu þáttum, sem legið hafa til grundvallar fyrri ákvörðunum um flugvélakaup, verður í vaxandi mæli að taka tillit til umhverfismála, fyrst og fremst með hliðsjón af notkun Reykjavíkurflugvallar. Með aukinni notkun vallarins verða óskir um hávaðatakmarkanir meira áberandi og eins verður það talinn kostur frá öryggis- sjónarmiði ef flugvélar geta komið í meiri flughæð en nú inn yfir miðbæinn og lent inn- ar á flugvallarsvæðinu með notkun styttri flugbrauta. Þessi skilyrði uppfyllir DASH-7 sennilega betur en nokkur önn- ur flugvél, sem til greina kem- ur fyrir innanlandsflug á ís- landi. FV 6 1977 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.