Frjáls verslun - 01.06.1977, Blaðsíða 81
Fyririaeki, framleiðsla
Verzlunarbankinn:
IMýtt útibú i stóru athafna-
hverfi í Reykjavík
Útibúið á Grensásvegi 13 eykur viðskipti nýrra aðila við bankann
Nýtt útibú Verzlunarbankans var nýlega opnað að Grensásvegi 13 og þar með er tekið til starfa
fimmta útibú Verzlunarbankans. Fyrsta útibú bankans var opnað í des. 1962 að Laugavegi 172,
í marz 1963 hófst rekstur útibús í Keflavík og útibú í Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík hefur
verið starfrækt frá því í júlí 1966. Þá liðu nær níu ár til opnunardags fjórða útibúsins enda stofn-
un nýrra banikaútibúa háð leyfi Seðlahanka. A þeim tíma var umsókmmi bankans um útibú synj-
að, á sama tíma og aðrir bankar, aðallega ríkisbankar, fengu úrlausn sinna mála.
Snemma árs 1975 var Ijóst
að bankinn gæti átt kost á að
eignast húsnæði fyrir útibú
að Grensásvegi 13, og í júní það
ár var undirritaður kaupsamn-
ingur. Samkvæmt honum eign-
aðist bankinn 1047 rúmmetra
húsrými tilbúið undir tréverk
og fullfrágengið að utan ásamt
frágenginni lóð. Húsnæðið er á
tveimur hæðum, sem hvor um
sig er 136 fermetrar. Á efri
hæð, sem er götuhæð að Grens-
ásvegi, er afgreiðslusalur og
starfsvangur. Á þeirri neðri,
sem er jarðhæð til austurs á
móti bílastæðum eru verð-
mætageymslur, kaffistofa
starfsfólks, snyrtiherbergi o.fl.
Snemma á þessu ári, þegar
hylla tók undir leyfi fyrir úti-
búi hófst smíði innréttinga en
all löngu áður lágu fyrir nauð-
synlegar teikningar.
Að sögn Þorvalds Guðmunds-
sonar, formanns bankaráðs,
sem flutti ávarp við opnun úti-
búsins hefur bankinn alla tíð
lagt áherzlu á að gæta hófs við
frágang húsnæðis síns og lagt
kapp á að innréttingar og ann-
ar frágangur bæri smekkvísi
vitni.
LIGGUR VEL VIÐ UMFERÐ
Með opnun þessa útibús
væntir Verzlunarbankinn auk-
inna viðskipta nýrra aðila.
Staðurinn liggur vel við stóru
atvinnuhverfi með fjölda fyr-
irtækja, smárra og stórra, sem
veita miklum fjölda fólks at-
vinnu. Þá liggur útibúið vel við
miklum umferðaræðum og
skammt er í fjölmenn íbúða-
hverfi.
— Verzlunarbankinn vill
leggja áherzlu á að auka þá
margvíslegu þjónustu, sem
hann veitir hinum almenna
borgara, m.a. með það í huga
er þetta útibú sett á stofn. Ég
vil í dag undirstrika að bank-
inn hefir jafnan leitazt við að
veita þeim einstaklingum, sem
til hans hafa beint viðskiptum
sínum, sanngjarna og eðlilega
þjónustu, — sagði Þorvaldur
Guðmundsson.
LÍFEYRISSJÓÐUR
VERZLUNARMANNA í NÝJA
ÚTIBÚINU
Ýmsir viðskiptamenn munu
flytja viðskipti sín til þessa
útibús. Nefna má að Lífeyris-
sjóður verzlunarmanna mun
flytja sín viðskipti þangað. Al-
veg á næstunni flytur Lífeyris-
sjóðurinn starfsemi sína á efstu
hæð hússins. Jafnframt mun
hann hagnýta sér fullkomna
tölvutækni, sem auðveldar öll
upplýsingaskipti við bankann
(on-line-system) viðskipta-
mönnum til hagræðis og tíma-
sparnaður. Afgreiðslutími úti-
búsins verður daglega kl. 9.30
—12.00, 13.00—16.00 og 17.00
—18.30.
Útibússtjóri hefur verið ráð-
inn Einvarður Jósefsson, áður
deildarstjóri víxladeildar. Hann
hefur um árabil skilað góðu
starfi í þágu bankans. Auk
hans verða fyrst um sinn tveir
starfsmenn hjá útibúinu.
FV 6 1977
81